Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 09:50
Elvar Geir Magnússon
Siglingaáætlun til og frá Eyjum hefur mikil áhrif á Bestu deildina
Herjólfur. Sá gamli góði.
Herjólfur. Sá gamli góði.
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Vestmannaeyjar.
Vestmannaeyjar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samgöngumál til og frá Vestmannaeyjum hafa haft mikil áhrif á leikjaplan ÍBV og hafa þónokkrar færslur verið á leikjadagskrá liðsins.

Til dæmis á leik dagsins en Valur og ÍBV munu mætast klukkan 16:30 á Hlíðarenda sem er svo sannarlega ekki besti tíminn fyrir fótboltaleik.

Landeyjahöfn hefur verið lokuð stóran hluta það sem af er ári en eftir óveðrið sem gekk yfir landið um páskana þá hefur jafnvel dæluskipið átt erfitt með að komast að til að losa sand.

Siglt hefur verið frá Þorlákshöfn og til að gera stöðuna enn strembnari kom upp bilun í Herjólfi og Breiðafjarðarferjan Baldur mun leysa hann af í einhverja daga.

Leikur ÍBV og KR sem átti að vera næsta miðvikudag verður spilaður næsta fimmtudag, sumardaginn fyrsta, klukkan 13:00. Þá hefur tímasetningu á leik ÍBV í Bestu deild kvenna 25. apríl verið breytt.

„Þetta er bara eins og það hefur verið undanfarin ár, þetta ætlar aldrei að lagast. Þetta er alltaf sama vesenið. Þetta er bara hundfúlt að þurfa alltaf að standa í þessu að þurfa alltaf að sigla héðan úr Þorlákshöfn. Þetta er ekkert bjóðandi lengur,“ sagði Sigurjón Birgisson Vestmannaeyingur í fréttum RÚV á dögunum.
Besta deildin
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    KR 1 1 0 0 3 - 2 +1 3
2.    Stjarnan 1 1 0 0 3 - 2 +1 3
3.    Þór 1 1 0 0 2 - 1 +1 3
4.    ÍA 1 0 0 1 3 - 3 0 1
5.    Fram 1 0 0 1 3 - 3 0 1
6.    Breiðablik 1 0 0 1 1 - 1 0 1
7.    FH 1 0 0 1 1 - 1 0 1
8.    Víkingur R. 1 0 0 1 1 - 1 0 1
9.    ÍBV 1 0 0 1 1 - 1 0 1
10.    KA 1 0 1 0 2 - 3 -1 0
11.    Keflavík 1 0 1 0 2 - 3 -1 0
12.    Valur 1 0 1 0 1 - 2 -1 0
Slapp
banner
banner