Liverpool, Manchester United, Manchester City og Real Madrid fylgjast með Rafael Leao - Man Utd hefur áhuga á Van de Ven
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 3
0
Ægir
Lengjudeild karla
Afturelding
LL 4
7
ÍR
Besta kvenna
Víkingur R.
LL 2
1
Stjarnan
Besta kvenna
Breiðablik
LL 2
0
Þróttur R.
Afturelding
4
7
ÍR
0-1 Stefán Þór Pálsson '10
0-2 Orri Bjarkason '15
0-3 Óliver Andri Einarsson '18
Joacim Holtan '21 1-3
1-4 Stefán Þór Pálsson '26
1-5 Emil Nói Sigurhjartarson '48
Aron Elí Sævarsson '50 2-5
Óðinn Bjarkason '53 3-5
3-6 Emil Nói Sigurhjartarson '57
3-7 Jón Arnar Sigurðsson '63
Elmar Kári Enesson Cogic '75 4-7
24.04.2026  -  19:15
Malbikstöðin að Varmá
Lengjudeild karla
Aðstæður: Sól og blíða
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 723
Byrjunarlið:
1. Arnar Daði Jóhannesson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Axel Óskar Andrésson
4. Gunnar Bergmann Sigmarsson ('46)
5. Jón Vignir Pétursson ('46)
6. Aron Elí Sævarsson (f)
9. Joacim Holtan
10. Elmar Kári Enesson Cogic
11. Óðinn Bjarkason
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
27. Enes Þór Enesson Cogic ('67)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
85. Kristján Hjörvar Sigurkarlsson (m)
8. Bart Kooistra ('67)
14. Daníel Darri Þorkelsson
22. Rikharður Smári Gröndal
24. Trausti Þráinsson ('46)
33. Andi Hoti ('46)
79. Róbert Agnar Daðason

Liðsstjórn:
Magnús Már Einarsson (Þ)
Baldvin Jón Hallgrímsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Enes Cogic
Gunnar Ingi Garðarsson
Garðar Guðnason
Þórður Ingason

Gul spjöld:
Axel Óskar Andrésson ('25)
Gunnar Bergmann Sigmarsson ('45)
Bart Kooistra ('93)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ótrúlegum leik lokið. Viðtöl og skýrsla á leiðinni

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Gunnarsson

93. mín Gult spjald: Bart Kooistra (Afturelding)
Bart Kooistra reynir hjólhestaspyrnu en André Abed nær á undan í boltann og skallar hann frá. Kooistra sparkar í höfuðið á Abed sem liggur lengi eftir.
91. mín
3 mínútur í uppbót
87. mín
723 áhorfendur Frábær stemning hér í kvöld
85. mín Gult spjald: Ísak Atli Atlason (ÍR)
84. mín Gult spjald: Sigurður Karl Gunnarsson (ÍR)
Fer í tæklingu af miklum krafti. Boltinn á milli Sigurðs og Elmars en engu að síður gult spjald.
79. mín
Fram og til baka Holtan á skalla boltann framhjá markinu af góðu færi. ÍR fara síðan í sókn og uppskera hornspyrnu eftir skot Bergvins.
78. mín
Inn:André Musa Solórzano Abed (ÍR) Út:Stefán Þór Pálsson (ÍR)
75. mín MARK!
Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)
Beint úr aukaspyrnu Elmar Kári tekur aukaspyrnu frá vinstri. Afturelding fyllir teig ÍR. Elmar sér hins vegar tækifæri og á óvænt skot framhjá veggnum og í nærhornið. Vilhelm bjóst við fyrirgjöf.
71. mín
Hætta í teig ÍR Óðinn á skot á mark eftir hornspynu. Afturelding að banka, nú hlýtur næsta mark að koma.
69. mín
Inn:Ísak Atli Atlason (ÍR) Út:Orri Bjarkason (ÍR)
69. mín
Inn:Víðir Freyr Ívarsson (ÍR) Út:Ágúst Unnar Kristinsson (ÍR)
67. mín
Inn:Bart Kooistra (Afturelding) Út:Enes Þór Enesson Cogic (Afturelding)
63. mín MARK!
Jón Arnar Sigurðsson (ÍR)
Þetta var stórfurðulegt Stórhættuleg sending í teig Aftureldingar. Jón Arnar á skot sem fer í slánna. Hann og Stefán reyna báðir að ná frákastinu en Jón Arnar er undan að boltanum og skorar. Upphaflega var dæmd rangstæða á Stefæan en Arnar dómari leiðréttir það
59. mín
Inn:Guðjón Máni Magnússon (ÍR) Út:Óliver Andri Einarsson (ÍR)
57. mín MARK!
Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR)
Stoðsending: Orri Bjarkason
Frábært mark! ÍR-ingar fámennir í sókn sinni. Orri fær boltann utarlega í teig Aftureldingar með bakið að markinu. Hann sendir boltann út á Emil Nóa sem smellhittir hann. Fast skot Emils fer beint í vinkilinn
53. mín MARK!
Óðinn Bjarkason (Afturelding)
Stoðsending: Elmar Kári Enesson Cogic
Elmar Kári keyrir upp hægra kantinn. Þegar hann er kominn að endalínu á hann skot/sendingu á nærstöng. Vilhelm nær ekki að handsama boltann sem hrekkur til Óðins. Skot hans af metra færi ratar í netið
50. mín MARK!
Aron Elí Sævarsson (Afturelding)
Stoðsending: Elmar Kári Enesson Cogic
Heimamenn fljótir að svara Elmar Kári með flotta fyrirgjöf úr aukaspyrnu vinstra megin. Boltinn ratar á Aron Elí sem skallar hann í bláhornið
48. mín MARK!
Emil Nói Sigurhjartarson (ÍR)
Emil Nói öruggur á punktinum. Rennur boltanum í vinstra hornið en Arnar fór í vitlaust horn
47. mín
ÍR fá víti Andi Hoti togar Bergvin Fannar niður
46. mín
Inn:Halldór Atli Kristjánsson (ÍR) Út:Hrafn Hallgrímsson (ÍR)
Gestirnir gerðu líka skiptingu í hálfleik
46. mín
Inn:Andi Hoti (Afturelding) Út:Gunnar Bergmann Sigmarsson (Afturelding)
46. mín
Inn:Trausti Þráinsson (Afturelding) Út:Jón Vignir Pétursson (Afturelding)
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað
45. mín
Hálfleikur
Tökum okkur 15
45. mín Gult spjald: Gunnar Bergmann Sigmarsson (Afturelding)
+1
Bergvin Fannar liggur eftir brot Gunnars
43. mín Gult spjald: Kristján Atli Marteinsson (ÍR)
39. mín
Afturelding uppsker enn eina hornspyrnuna en ekkert kemur úr henni.
33. mín
Holtan í góðu færi Afturelding liggur á ÍR þessa stundina. Holtan fær boltann til sín eftir darraðardans eftir horn. Hann nær skotinu en það er beint á Vilhelm
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Bjartur Bjarmi með flotta fyrirgjöf á fjærstöngina. Þar er Óðinn Bjarkason en hann skallar boltann yfir markið úr góðri stöðu
26. mín MARK!
Stefán Þór Pálsson (ÍR)
Stoðsending: Óliver Andri Einarsson
Hvað er að gerast í Mosfellsbæ? Óliver Andri með þversendingu frá hægri. Stefán Þór er ákveðnastur í teignum og nær að stýra boltanum í fjærstöngina með vinstri.

Varnarleikur Aftureldingar ekki upp á marga fiska
25. mín Gult spjald: Axel Óskar Andrésson (Afturelding)
21. mín MARK!
Joacim Holtan (Afturelding)
Afturelding bítur til baka Aron Elí á stangarskot í kringum vítapunktinn. Boltinn hrekkur í Joacim Holtan sem fær boltann í sig en nær stjórn á honum og rennir honum framhjá Vilhelmi.
18. mín MARK!
Óliver Andri Einarsson (ÍR)
Stoðsending: Stefán Þór Pálsson
Breiðhyltingar leika á alls oddi! ÍR sundurspilar vörn Aftureldingar. Stefán Þór kemur boltanum á Óliver Andra sem er kominn í góða stöðu og vippar boltanum yfir Arnar Daða
15. mín MARK!
Orri Bjarkason (ÍR)
Stoðsending: Stefán Þór Pálsson
Virkilega vel gert hjá gestunum! Vilhelm Þráinn með langan bolta á Stefán Þór. Hann keyrir upp völlinn og rúllar honum á Orra sem var kominn í overlappið. Hann klárar færið með mikilli list.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín MARK!
Stefán Þór Pálsson (ÍR)
Stoðsending: Emil Nói Sigurhjartarson
ÍR-ingar komnir yfir Emil Nói tekur hornspyrnu frá hægri. Boltinn skoppar einu sinni áður en Stefán Þór á viðstöðulaust skot í fjærhornið sem Arnar Daði nær ekki til.
7. mín
Afturelding fær fyrstu hornspyrnu leiksins en það verður ekkert úr henni.
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn sparka þessu í gang
Fyrir leik
Ólafs Pálmarssonar minnst – mínútu klapp Á dögunum lést eftir stutt veikindi einn af okkar allra öflugustu stuðningsmönnum, Ólafur Pálmarsson aðeins þrítugur að aldri. Hans verður sárt saknað á leikjum liðsins í framtíðinni en til að heiðra minningu hans lét knattspyrnudeild merkja sætið hans og mun minning hans lifa með okkur um ókomna tíð. Við sendum fjölskyldu Óla og fjölmennum vinahóp okkar innilegustu samúðarkveðjur og þökkum fyrir tímann sem við áttum með honum með mínútu klappi.
Fyrir leik
Veðrið leikur við okkur hérna í Mosfellsbæ. Það er 9 gráður og heiðskýrt, frábært fótboltaveður á öðrum degi sumars
Fyrir leik
Byrjunarliðin Afturelding
1. Arnar Daði Jóhannesson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
3. Axel Óskar Andrésson
4. Gunnar Bergmann Sigmarsson
5. Jón Vignir Pétursson
6. Aron Elí Sævarsson (f)
9. Joacim Holtan
10. Elmar Kári Enesson Cogic
11. Óðinn Bjarkason
16. Bjartur Bjarmi Barkarson
27. Enes Þór Enesson Cogic

ÍR
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
4. Sigurður Karl Gunnarsson
5. Hrafn Hallgrímsson
6. Kristján Atli Marteinsson
8. Emil Nói Sigurhjartarson
9. Bergvin Fannar Helgason
15. Stefán Þór Pálsson
17. Óliver Andri Einarsson
23. Ágúst Unnar Kristinsson (f)
25. Jón Arnar Sigurðsson
29. Orri Bjarkason
Fyrir leik
Dómari kvöldsins
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lögmaðurinn Arnar Þór Stefánsson verður á flautinni í kvöld. Tomasz Piotr Zietal og Ásgeir Viktorsson verða aðstoðardómarar. Jón Magnús Guðjónsson er eftirlitsmaður KSÍ.
Fyrir leik
Halli Hróðmars spáir Afturelding 2-1 sigri Haraldur Árni Hróðmarsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur, spáir í leikina sem eru framundan í 1. umferð Lengjudeildarinnar.
„Mosfellingar hafa litið vel út á undirbúningstímabilinu og slógu ÍR út úr bikarnum með góðri frammistöðu. Ég reikna með að þeir verði erfiðir heim að sækja í sumar."
Fyrir leik
Liðin styrktu sig í vikunni Andi Hoti
Afurelding samdi við varnarmanninn Andi Hoti í vikunni. Hann kemur á láni frá Val og mun leika með Aftureldingu út tímabilið.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Ísak Atli Atlason
Ísak Atli mun leika hjá ÍR á lánssamningi frá FH. Bakvörður ungi samdi við félagið í gær og mun styrkja liðið í sumar.
Mynd: ÍR



Fyrir leik
Komnir og farnir hjá Aftureldingu Komnir
Birkir Már Sævarsson frá Svíþjóð
Joacim Holtan frá Noregi
Óðinn Bjarkason frá KR (var á láni hjá ÍR)
Andi Hoti frá Val á láni
Jón Vignir Pétursson frá Selfossi
Daníel Darri Þorkelsson frá KFG
Kristján Hjörvar Sigurkarlsson frá Kára
Bart Kooistra frá HK

Farnir
Hrannar Snær Magnússon til Noregs
Jökull Andrésson í FH
Aron Jóhannsson hættur
Oliver Sigurjónsson hættur
Aron Jónsson í FH
Arnór Gauti Ragnarsson hættur
Þórður Gunnar Hafþórsson í Vestra
Bjarni Páll Linnet Runólfsson í Fram

Samningslausir
Benjamin Stokke
Sigurpáll Melberg Pálsson
Luc Kassi
Fyrir leik
Komnir og farnir hjá ÍR Komnir
Jón Arnar Sigurðsson frá KR
Halldór Atli Kristjánsson frá Augnabliki
André Solórzano frá Hetti
Orri Bjarkason frá Breiðabliki á láni
Ísak Atli Atlason fra FH á láni
Sæþór Ívan Viðarsson frá Hetti
Benedikt Þórir Jóhannsson frá KV

Farnir
Marc Mcausland í Víði
Alexander Kostic hættur
Reynir Haraldsson hættur
Breki Hólm Baldursson í KA (var á láni)
Óðinn Bjarkason í Aftureldingu (var á láni frá KR)
Gils Gíslason í FH (var á láni)
Gabríel Aron Sævarsson í Hauka (á láni frá Blikum)
Óliver Elís Hlynsson í Fram (var á láni)
Gúndur Elllingsggaard Petersen
Renato Punyed Dubon til Níkaragva
Fyrir leik
Aftureldingu spáð 4. sæti Fyrirliðar og þjálfarar deildarinnar voru fengnir til að spá fyrir sumarið. Samkvæmt þeirri spá lendir Afturelding í 4. sæti í ár.

Mosfellingar léku í Bestu deildinni í fyrsta skipti í sögu félagsins í fyrra. Liðið lendi í 12. og síðasti sæti deildarinnar en spilamennskan var oft fín.

Fyrir leik
ÍR spáð 8. sæti ÍR er spáð 8. sæti í spá fyrirliða og þjálfara Lengjudeildarinnar.

Breiðhyltingar gerðu fínt mót í fyrra. Liðið byrjaði afskaplega vel en endaði í 6. sæti og missti af sæti umspilinu á markatölu.

Fyrir leik
Loksins hefst Lengjudeildin Komið heilir og sælir kæru lesendur og verið hjartanlega velkomnir í beina textalýsingu frá leik Aftureldingar og ÍR í Lengjudeildinni.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og er eiginlegur opnunarleikur deildarinnar ásamt leik Fylkis og Ægis sem fer fram á sama tíma.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

föstudagur 24. apríl
19:15 Fylkir-Ægir (tekk VÖLLURINN)
19:15 Afturelding-ÍR (Malbikstöðin að Varmá)

laugardagur 25. apríl
14:00 Vestri-Grindavík (Kerecisvöllurinn)
14:00 Þróttur R.-Njarðvík (AVIS völlurinn)
16:00 Völsungur-Leiknir R. (GPG völlurinn)
16:00 HK-Grótta (Kórinn)
Byrjunarlið:
1. Vilhelm Þráinn Sigurjónsson (m)
4. Sigurður Karl Gunnarsson
5. Hrafn Hallgrímsson ('46)
6. Kristján Atli Marteinsson
8. Emil Nói Sigurhjartarson
9. Bergvin Fannar Helgason
15. Stefán Þór Pálsson ('78)
17. Óliver Andri Einarsson ('59)
23. Ágúst Unnar Kristinsson (f) ('69)
25. Jón Arnar Sigurðsson
29. Orri Bjarkason ('69)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
27. Jóhannes Kristinn Hlynsson (m)
2. André Musa Solórzano Abed ('78)
3. Halldór Atli Kristjánsson ('46)
11. Guðjón Máni Magnússon ('59)
14. Víðir Freyr Ívarsson ('69)
16. Ísak Atli Atlason ('69)
20. Mikael Trausti Viðarsson

Liðsstjórn:
Jóhann Birnir Guðmundsson (Þ)
Helgi Freyr Þorsteinsson
Ívan Óli Santos
Ómar Atli Sigurðsson
Davíð Örvar Ólafsson
Jónþór Atli Ingólfsson
Manuel Nikulás Barriga

Gul spjöld:
Kristján Atli Marteinsson ('43)
Sigurður Karl Gunnarsson ('84)
Ísak Atli Atlason ('85)

Rauð spjöld: