Liverpool hefur áhuga á Senesi, Gordon og Ndiaye - City fylgist með Read - Mourinho orðaður við Newcastle
þriðjudagur 14. apríl
Undankeppni HM kvenna
laugardagur 11. apríl
Mjólkurbikar karla
föstudagur 10. apríl
Besta deildin
fimmtudagur 2. apríl
Meistarakeppni kvenna
þriðjudagur 31. mars
Vináttulandsleikur
mánudagur 30. mars
Undankeppni EM U21
sunnudagur 29. mars
Mjólkurbikar karla
Meistarakeppni karla
föstudagur 27. mars
Kjarnafæðimótið Úrslit
fimmtudagur 26. mars
Mjólkurbikar karla
Undankeppni EM U21
laugardagur 21. mars
Bose-bikarinn Úrslit
Úrslit Lengjubikarsins
miðvikudagur 18. mars
Úrslit Þungavigtarbikarsins
þriðjudagur 17. mars
Undanúrslit Lengjubikarsins
laugardagur 14. mars
laugardagur 7. mars
Undankeppni HM kvenna
þriðjudagur 3. mars
fimmtudagur 26. febrúar
Vináttulandsleikur
miðvikudagur 25. febrúar
Úrslitaleikur Reykjavíkurmótsins
miðvikudagur 18. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
laugardagur 14. febrúar
Lengjubikar karla - A-deild, riðill 1
miðvikudagur 11. febrúar
Evrópubikarinn - 8-liða úrslit
fimmtudagur 18. desember
Sambandsdeildin
fimmtudagur 27. nóvember
miðvikudagur 19. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
sunnudagur 16. nóvember
Undankeppni HM
fimmtudagur 13. nóvember
Undankeppni EM U21
Undankeppni HM
miðvikudagur 12. nóvember
Evrópubikarinn - 16-liða úrslit
fimmtudagur 6. nóvember
Sambandsdeildin
miðvikudagur 29. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
sunnudagur 26. október
Besta-deild karla - Efri hluti
föstudagur 24. október
Þjóðadeild kvenna - Umspil
fimmtudagur 23. október
Sambandsdeildin
miðvikudagur 22. október
Evrópukeppni unglingaliða
mánudagur 20. október
Besta-deild karla - Efri hluti
miðvikudagur 15. október
Evrópubikar kvenna
þriðjudagur 14. október
Undankeppni EM U21
mánudagur 13. október
Undankeppni HM
laugardagur 11. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
föstudagur 10. október
Undankeppni HM
Undankeppni EM U21
fimmtudagur 9. október
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
miðvikudagur 8. október
Evrópubikar kvenna
mánudagur 6. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
sunnudagur 5. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
Besta-deild kvenna - Efri hluti
laugardagur 4. október
Besta-deild karla - Efri hluti
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Besta-deild karla - Neðri hluti
föstudagur 3. október
Besta-deild kvenna - Efri hluti
fimmtudagur 16. apríl
Sambandsdeildin
AZ 2 - 2 Shakhtar D
Fiorentina 0 - 0 Crystal Palace
AEK 0 - 0 Vallecano
Strasbourg 0 - 0 Mainz
Evrópudeildin
Celta 1 - 3 Freiburg
Betis 0 - 0 Braga
Nott. Forest 0 - 0 Porto
Aston Villa 0 - 0 Bologna
fim 16.apr 2026 17:30 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Magazine image

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 8. sæti

Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í áttunda sæti eru ÍR-ingar.

ÍR fagnar marki á síðasta tímabili.
ÍR fagnar marki á síðasta tímabili.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR.
Jóhann Birnir Guðmundsson, þjálfari ÍR.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ágúst Unnar Kristinsson, nýr fyrirliði ÍR.
Ágúst Unnar Kristinsson, nýr fyrirliði ÍR.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Atli Marteinsson.
Kristján Atli Marteinsson.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Bjarkason er spennandi leikmaður.
Orri Bjarkason er spennandi leikmaður.
Mynd/ÍR
Vilhelm Þráinn hefur verið öflugur í marki ÍR síðustu ár.
Vilhelm Þráinn hefur verið öflugur í marki ÍR síðustu ár.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bergvin Fannar var öflugur síðasta sumar.
Bergvin Fannar var öflugur síðasta sumar.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jón Arnar er kominn frá KR.
Jón Arnar er kominn frá KR.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stuðningsmenn ÍR eru mjög ástríðufullir.
Stuðningsmenn ÍR eru mjög ástríðufullir.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ÍR, 104 stig
9. Leiknir R., 95 stig
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig

8. ÍR
Síðustu ár hefur verið mikill uppgangur hjá ÍR og það hefur myndast ákveðin sjálfsmynd í Breiðholtinu sem byggir á samheldni, stemningu og trú á verkefninu. Liðið hefur sýnt að það getur verið með í toppbaráttunni í Lengjudeildinni og spilað kraftmikinn og áræðinn bolta sem er erfiður viðureignar fyrir andstæðinginn. Liðið gerði frábærlega framan af síðasta tímabili og lengi vel létu ÍR-ingar sig dreyma um Bestu deildina, en þegar uppi var staðið þá sat eftir súrt bragð í munninum í neðra Breiðholti. Það er akkúrat svona tímabil sem getur annað hvort brotið lið niður eða kveikt hungur. Ef ÍR nær að læra af lokakafla síðasta tímabils og finna aftur taktinn sem kom þeim í toppbaráttuna, þá gætu þeir hæglega farið ofar en spár gera ráð fyrir og aldrei að vita nema ástríðufullum stuðningsmönnum liðsins geti aftur leyft sér að dreyma.

Þjálfarinn: Jóhann Birnir Guðmundsson er á leið inn í sitt annað tímabil sem aðalþjálfari ÍR. Árni Freyr Guðnason og Jóhann Birnir þjálfuðu liðið saman áður en Árni hætti til að taka við Fylki. Það var stutt gaman hjá Árna þar sem allt gekk á afturfótunum í Árbænum á meðan ÍR-liðið blómstraði hjá Jóhanni, að minnsta kosti framan af. Jói var frábær leikmaður á sínum ferli og var meðal annars atvinnumaður hjá Watford á Englandi. Eftir að skórnir fóru upp á hillu starfaði Jóhann sem afreksþjálfari hjá FH og sem yfirþjálfari hjá Keflavík áður en hann tók við í Breiðholtinu. Hann er í miklum metum hjá stuðningsmönnum ÍR eftir síðustu ár og passar þetta verkefni vel við hann. Davíð Örvar Ólafsson er aðstoðarþjálfari Jóa.

Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Muni vera í ansi þægilegum málum
„Mjóddarmenn koma inn í sitt annað tímabil með Jóa Birni og Davíð Örvar við stýrið. Þeir náðu flottum árangri í fyrra eins og árið þar á undan og eru alltaf að mínu mati algjörlega að hámarka afköst síns liðs að hverju sinni, sem einkennir góða þjálfara, enda Davíð ekki langt að sækja slíka hæfileika eða önnur ráð sem sonur Óla Jó."

„Liðið hefur náð að stabilísera sig betur hvað varðar sinn leikmannahóp milli ára núna heldur en þar á undan, sem ætti að vera ákveðinn styrkleiki og ég held að þeir muni bara vera í ansi þægilegum málum í deildinni með sinn sterka kjarna, sitt öfluga starfslið og sína gríðarlegu liðsheild sem fleytir þeim alltaf áfram eins og síðustu ár."


Lykilmenn: Ágúst Unnar Kristinsson og Kristján Atli Marteinsson
Ágúst Unnar hefur verið einn öflugasti bakvörður Lengjudeildarinnar síðustu ár og hann er gífurlega mikilvægur fyrir lið ÍR. Hann skrifaði í vetur undir nýjan samning við ÍR og fékk meiri ábyrgð þar sem hann var gerður að fyrirliða liðsins. Ágúst, sem er fæddur 2001, lék alla deildarleiki ÍR í Lengjudeildinni á síðustu leiktíð nema einn. Kristján Atli er einstakur leikmaður og karakter. Það er aldrei að spyrja að því með Kristján, hann gefur sig alltaf 110% fram og neitar að gefast upp. Hann hefur strax stimplað sig inn í hjörtu ÍR-inga og er afar mikilvægur fyrir ÍR liðið. Kristján er með risa ÍR hjarta og á stóran þátt í þeirri geðveiki sem hefur verið í gangi í Seljahverfinu.

Gaman að fylgjast með: Orri Bjarkason
Efnilegur leikmaður sem kom á láni frá Breiðabliki fyrir tímabilið. Orri átti frábært tímabil í 3. deildinni í fyrra þar sem hann lék á láni með Augnabliki og reyndist algjör lykilmaður. Hann skoraði átta mörk og gaf tólf stoðsendingar í 20 deildarleikjum. Hann leikur sem framsækinn miðjumaður að upplagi og getur einnig spilað úti á kanti, en það verður spennandi að fylgjast með honum í sumar.

Komnir:
Jón Arnar Sigurðsson frá KR
Halldór Atli Kristjánsson frá Augnabliki
André Solórzano frá Hetti
Orri Bjarkason frá Breiðabliki á láni

Farnir:
Marc Mcausland í Víði
Reynir Haraldsson hættur
Breki Hólm Baldursson í KA (var á láni)
Óðinn Bjarkason í Aftureldingu (var á láni frá KR)
Gils Gíslason í FH (var á láni)
Gabríel Aron Sævarsson í Hauka (á láni frá Blikum)
Óliver Elís Hlynsson í Fram (var á láni)
Gúndur Elllingsggaard Petersen
Renato Punyed Dubon



Fyrstu þrír leikir ÍR:
24. apríl, Afturelding - ÍR (Malbikstöðin að Varmá)
1. maí, Þróttur R. - ÍR (AVIS völlurinn)
8. maí, ÍR - Grindavík (AutoCenter-völlurinn)
banner