| mið 22.apr 2026 12:00 Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð |
|
Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 4. sæti
Fótbolti.net kynnir liðin sem leika í Lengjudeildinni í sumar eitt af öðru eftir því hvar þeim er spáð. Við fengum alla fyrirliða og þjálfara í deildinni til að spá fyrir sumarið og fengu liðin stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fjórða sæti er Afturelding sem er að koma niður úr Bestu deildinni.
Enes Þór Enesson Cogic, yngri bróðirinn, hefur verið að spila mikið í vetur.
Mynd/Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
1. ?
2. ?
3. ?
4. Afturelding, 201 stig
5. HK, 158 stig
6. Vestri, 155 stig
7. Grindavík, 110 stig
8. ÍR, 104 stig
9. Leiknir R., 95 stig
10. Grótta, 68 stig
11. Ægir, 51 stig
12. Völsungur, 15 stig
4. Afturelding
Afturelding mætir aftur til leiks í Lengjudeildinni eftir eins árs veru í Bestu deildinni, þar sem liðið náði ekki að halda sér uppi þrátt fyrir að hafa sýnt ágætis rispur á köflum. Þeim er spáð 4. sæti fyrir Lengjudeildina í sumar, sem endurspeglar það að margir telja liðið líklegt til að vera í baráttunni um að fara beint aftur upp. Reynslan úr efstu deild gæti reynst dýrmæt fyrir Mosfellinga en Afturelding sýndi það í fyrra að liðið getur strítt bestu liðum landsins. Liðið hefur náð að halda í ágætis kjarna sem er mikilvægt í svona stöðu, og liðsheildin hefur verið sterk síðustu árin. Það getur reynst lykilatriði í langri og krefjandi deild þar sem mörg lið eru á svipuðum stað. Ef Afturelding nær að finna taktinn snemma og byggja ofan á það sem gekk vel í fyrra gæti liðið auðveldlega blandað sér í toppbaráttuna en eins og alltaf í Lengjudeildinni verður lítið svigrúm fyrir mistök.
Þjálfarinn: Það var afar sterkt fyrir Aftureldingu að halda í Magnús Má Einarsson sem þjálfara liðsins. Magnús er Aftureldingarmaður í húð og hár en hann spilaði upp yngri flokkana með liðinu og var í sex ár í meistaraflokki. Maggi tók við Aftureldingu árið 2020 eftir að hafa verið aðstoðarþjálfari liðsins en undir hans stjórn fór Afturelding í Bestu deildina í fyrra í fyrsta sinn í sögu félagsins. Maggi leit í kringum sig eftir síðustu leiktíð og var orðaður við HK og kvennalið Breiðabliks, en hann ákvað að vera áfram í Mosfellsbænum þar sem honum líður allra best. Maggi hefur náð flottum árangri með Aftureldingu og hefur liðið spilað skemmtilegan bolta undir hans stjórn.
Álit Badda
Fótboltaþjálfarinn Baldvin Már Borgarsson er sérfræðingur Fótbolta.net fyrir Lengjudeildina. Hann rýnir í öll liðin fyrir tímabilið sem er framundan.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þeir hafa stigið upp
„Mosfellingar eru að koma niður úr Bestu deildinni og ég gagnrýndi þá aðeins í vetur fyrir að mér fannst deyfð í kringum klúbbinn eftir gríðarlega mikla stemningu og kraft síðustu ár. Þeir hafa stigið upp og Maggi virðist vera að setja saman flott lið aftur eftir miklar breytingar í vetur."
„Afturelding getur vel challenge-að efstu sætin en ættu allavega að gera sterkt tilkall í þetta playoffs, verður spennandi að sjá unga stráka fá tækifæri eins og Enes og Róbert Agnar, ásamt því að sjá hvaða áhrif Birkir Már Sævarsson gefur liðinu."
Lykilmenn: Aron Elí Sævarsson og Elmar Kári Enesson Cogic
Tveir leikmenn sem gætu hæglega verið að spila í Bestu deildinni í sumar. Valur hefur lengi verið á eftir Aron Elí, sem er búinn að vera fyrirliði Aftureldingar í fjöldamörg ár núna. Aron er einn öflugasti bakvörður deildarinnar og líklega besti vinstri bakvörður deildarinnar. Hann kemur með býsna mikið að borðinu innan sem utan vallar. Elmar Kári framlengdi nýverið samning sinn við Aftureldingu til 2027. Meiðsli settu strik í reikninginn á síðasta tímabili og náði Elmar ekki að sýna sitt besta í Bestu deildinni, en þrátt fyrir það hefur ÍA reynt ítrekað að kaupa hann í vetur. Elmar er mjög leikinn kantmaður sem getur hrellt varnir Lengjudeildarinnar þetta sumarið.
Gaman að fylgjast með: Birkir Már Sævarsson
Það er ekki oft sem 41 árs gamall leikmaður er settur í þennan flokk. Það voru stór tíðindi núna stuttu fyrir mót þegar Birkir Már ákvað að semja við Aftureldingu. Það þarf ekki að kynna þennan reynslumikla leikmann fyrir þjóðinni en hann spilaði 103 landsleiki og er fjórði leikjahæsti landsliðsmaður Íslands frá upphafi. Hann spilaði með landsliðinu á EM í Frakklandi árið 2016 og HM í Rússlandi árið 2018. Hann hefur æft og spilað með KH í vetur en hefur nú samið við Aftureldingu. Þar hittir hann bróður sinn Aron Elí Sævarsson sem er fyrirliði liðsins. Það verður ótrúlega gaman að fylgjast með þeim bræðrum í sumar.
Komnir:
Birkir Már Sævarsson frá Svíþjóð
Joacim Holtan frá Noregi
Óðinn Bjarkason frá KR (var á láni hjá ÍR)
Andi Hoti frá Val á láni
Jón Vignir Pétursson frá Selfossi
Daníel Darri Þorkelsson frá KFG
Kristján Hjörvar Sigurkarlsson frá Kára
Bart Kooistra frá HK
Farnir:
Hrannar Snær Magnússon til Noregs
Jökull Andrésson í FH
Aron Jóhannsson hættur
Oliver Sigurjónsson hættur
Aron Jónsson í FH
Arnór Gauti Ragnarsson hættur
Þórður Gunnar Hafþórsson í Vestra
Bjarni Páll Linnet Runólfsson í Fram
Benjamin Stokke
Luc Kassi
Samningslausir:
Sigurpáll Melberg Pálsson
Fyrstu þrír leikir Aftureldingar:
24. apríl, Afturelding - ÍR (Malbikstöðin að Varmá)
1. maí, Afturelding - Völsungur (Malbikstöðin að Varmá)
8. maí, Leiknir R. - Afturelding (Domusnovavöllurinn)


