PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Lengjudeild karla
HK
LL 4
1
Grótta
Lengjudeild karla
Völsungur
LL 1
1
Leiknir R.
Besta kvenna
Valur
LL 2
1
Grind/Njarð
Besta kvenna
Þór/KA
LL 1
1
FH
HK
4
1
Grótta
0-1 Jónatan Ari Bragason '30
Karl Ágúst Karlsson '42 1-1
Karl Ágúst Karlsson '53 2-1
Dominik Radic '67 3-1
Jóhann Þór Arnarsson '82 4-1
25.04.2026  -  16:00
Kórinn
Lengjudeild karla
Dómari: Elías Ingi Árnason
Byrjunarlið:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
2. Sigurður Gunnar Jónsson
4. Aron Kristófer Lárusson
5. Þorsteinn Aron Antonsson ('71)
10. Atli Hrafn Andrason
16. Svavar Örn Þórðarson
17. Dominik Radic
21. Ívar Örn Jónsson (f)
24. Magnús Arnar Pétursson ('62)
28. Tumi Þorvarsson ('81)
29. Karl Ágúst Karlsson ('71)
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
25. Andri Már Steinsson (m)
6. Þorvaldur Smári Jónsson
9. Jóhann Þór Arnarsson ('71)
18. Róbert Quental Árnason ('81)
19. Atli Þór Gunnarsson ('62)
22. Haukur Leifur Eiríksson ('71)
45. Alexander Örn Guðmundsson

Liðsstjórn:
Gunnar Heiðar Þorvaldsson (Þ)
Þjóðólfur Gunnarsson
Arnþór Ari Atlason
Sandor Matus
Sigurður Már Birnisson
Arnar Freyr Smárason
Ingvar Örn Kristinsson Valberg

Gul spjöld:
Sigurður Gunnar Jónsson ('49)
Tumi Þorvarsson ('72)
Aron Kristófer Lárusson ('72)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Elías flautar hér leikinn af og HK sigra hér sannfærandi gegn Gróttu.

Viðtöl og skýrla koma inn sienni í kvöld, eigið áfram góða helgi og takk fyrir mig!
91. mín
Björgvin Brimi hjá Grótta á flott skot á markið sem Ólafur gerir vel í að verja. Grótta fær horn.

Ólafur grípur boltann beint frá horninu.
87. mín
Dagur Bjarka rennur sér á boltann en tekur Svavar Örn með sér sem liggur niðri. Hann hoppa hér á einum fæti útaf á meðan það er verið að skoða hann.
82. mín MARK!
Jóhann Þór Arnarsson (HK)
Faglega gert þarna! Jóhann hleypur einn upp vinstri kantinn með mann á sér. Hann kemmst að teignum og sér að Guðmundur í markinu er skríngilega staðsettur og rennur boltanum frá vinstri kanti, kavið Guðmund og inn í mark.
81. mín
Inn:Róbert Quental Árnason (HK) Út:Tumi Þorvarsson (HK)
77. mín
Inn:Viktor Orri Guðmundsson (Grótta) Út:Kristófer Dan Þórðarson (Grótta)
73. mín Gult spjald: Elmar Freyr Hauksson (Grótta)
Gult spjald eftir að hafa verið inná í tvær mínútum
73. mín
Matías Kjeld með auakspyrnu inn í teig sem Ólafur nær að grípa.
72. mín Gult spjald: Tumi Þorvarsson (HK)
72. mín Gult spjald: Aron Kristófer Lárusson (HK)
71. mín
Inn:Haukur Leifur Eiríksson (HK) Út:Karl Ágúst Karlsson (HK)
71. mín
Inn:Jóhann Þór Arnarsson (HK) Út:Þorsteinn Aron Antonsson (HK)
71. mín
Inn:Elmar Freyr Hauksson (Grótta) Út:Andri Freyr Jónasson (Grótta)
71. mín
Inn:Alexander Emil Stefánsson (Grótta) Út:Tristan Freyr Ingólfsson (Grótta)
71. mín
Inn:Björgvin Brimi Andrésson (Grótta) Út:Einar Tómas Sveinbjarnarson (Grótta)
67. mín MARK!
Dominik Radic (HK)
Stoðsending: Atli Hrafn Andrason
Komnir tvem mörkum yfir! Markið kemur beint frá hornspyrnu. Atli Hrafn stendur beint fyrir frmana markið með boltann og reynir skot. Varnamaður Gróttu kemur fyrir skotinu en boltinn fer aftur á Atla. Atli ákveður að senda boltann til vinstri á Radic sem er alveg opinn og kemur boltanum inn í netið.
64. mín
Þvílík varsla! Tristan Freyr skallar boltanum á markið frá stuttu fær eftir fyrirgjöf inn í teig. Ólafur er þó með frábæra vörslu og nær einhvern vegin að bjarga þessu frá því að fara inn í mark.
62. mín
Inn:Atli Þór Gunnarsson (HK) Út:Magnús Arnar Pétursson (HK)
60. mín
Grótta fær aukaspyrnu Kristófer með sendingu inn á teigin sem Ólafur í marki HK nær að grípa.
59. mín
Andri Freyr hjá Grótta með skot sem endar rétt frmahjá. Elías dæmir honr fyrir Gróttu, sá samt ekki hvern boltinn snerti í leiðinni útaf.
58. mín
Inn:Elmar Freyr Hauksson (Grótta) Út:Grímur Ingi Jakobsson (Grótta)
53. mín MARK!
Karl Ágúst Karlsson (HK)
Óvænt mark! Grótta búnir að sækja mikið seinustu mínútur á mark HK, en HK á hér fína sókn sem endar á Karl Ágúst kemur boltanum framhjá Guðmundi, Karl að skora sitt annað mark í dag og koma HKingu yfir í fyrsta sinn í þessum leik!
52. mín
Grótta eiga hornspyrnu Grótta með tvö skot í teignum sem varnamenn HK ná að koma sér fyrir.
51. mín Gult spjald: Caden Robert McLagan (Grótta)
Stendur fyrir Ólafi í markinu þegar hann tekur útspark.
50. mín
Grótta með aukaspyrnu Tristan Freyr tekur spyrnuna og skýtur á markið. Ólafur nær að verja skotið.
49. mín
Sigurður Gunnar tæklar Kristófer Dan niður eftir að hann er kominn einn í gegn. Elías gefur Sigurði aðeins gult og bæði Kristófer og stuðningsmenn Grótta eru brjálaðir að Sigurður hafi ekki fengið rautt spjald þarna.
49. mín Gult spjald: Sigurður Gunnar Jónsson (HK)
47. mín
HK vinnur hornspyrnu Ívar Örn skallar boltanum yfir markið.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Kristófer Dan hjá Gróttu sparkar leiknum aftur í gang!
45. mín
Hálfleikur
Jafn og spennadi leikur hér á ferð. Sjáumst eftir 15 mínútur.
42. mín MARK!
Karl Ágúst Karlsson (HK)
HAAAA?!? Þvílikt mark frá Karl Ágúst þarna. Hann hleypur upp hægri kantinn og er kominn að stönginnu á línunni og ég hélt að hann hafði misst boltann útaf. Hann er með mann í sér en tekur skot alveg við línunna sem kemst einhvern vegin inn í markið. Alveg ótrúlegt mark sem hann gerði alveg sjálfur.
41. mín
HK fær hornspyrnu Ekkert gerist í þessu horni.
41. mín
Dominik Radic hjá HK á skot á markið sem Guðmundur ver vel. Radic fær boltann aftur og reynir sot. Varnamaður Gróttu kemur fyrir skotið og HK fær horn.
38. mín Gult spjald: Grímur Ingi Jakobsson (Grótta)
Mjög ódýrt spjald sem ég held að hann hafi fengið fyrir að sparka bolta útaf sem var úr leik.
36. mín
Mattías Kjeld með skot fyrir utan teig sem endar langt yfir markið.
35. mín
Grótta eiga aukaspyrnu stutt fyrir utan teig Kristófer leggur botlann fyrir Einari sem á skot á markið. Boltinn fer í leikmann HK og Grótta fá horn.
33. mín
Mikil læti hérna í Kórnum HKingar eiga skot á mark sem Guðmundur gerir mjög vel í að verja. Svo á Jónatan tæklingu á leikmann HKinga inn í teignum en Elías telur það hafa verið boltinn. HK stuðningsmenn ekki sáttir með sú ákvörðun.
32. mín
Grímur tekur niður Þorstein Aron inn ít eignum eftir að HK tekur hornspyrnu. Þetta geta alveg hafa verið víti í mínum bókum, en Elías sér ekkert í þessu
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín MARK!
Jónatan Ari Bragason (Grótta)
Stoðsending: Caden Robert McLagan
Þvílikt mark! Markið kemur beint frá honspyrnunni. Boltinn endar á Caden McLagan sem sendir boltann áfram á Jónatan Ára sem er alveg opið færi og lætur vaða á markið.

Mjög flott spil þarna hjá Gróttu!
29. mín
Grótta á hornspyrnu
24. mín
HK vinnur hornspyrnu Boltinn nær inn í teigin en Elías virðist dæma brot inn í teig eftir að hornið er tekið.
20. mín
Mattías Kjeld hjá Gróttu fékk fastan bolta frá stuttu færi beint í andlitið og Elías dómari stoppar hér leikinn.

Mattías virðist vera í góðu lagi og er tekinn til hliðar í smá stund meðan hann nær sér.
18. mín
HK vinnur horn Hornið tekið stutt á Ívar Örn sem kemur boltanum á Aron Kristófer sem stendur fyrir utan teig. Aron tekur lágt skot sem endar rétt framhjá markinu.
17. mín
Grímur Ingi tekur auakspyrnu fyrir Gróttu á vallarhelming HK. Spyrnan nær inn í teig en Ólafur grípur boltann í loftinu.
16. mín
Andri Freyr hjá Gróttu skýtur á markið, en varnamaður HKinga nær að koma fyrir skotið. Það eru alvöru senur hérna fyrsta korterið í þessum leik!
15. mín
Tristan með lága fyrirgjö inn í teig HKinga, en Ólafur tekur á móti snedingunni.
14. mín
Dagur Bjarka með flotta fyrirgjöf inn í teig HK sem Kristófer Dan reynir að skalla inn í mark en Ólafur í marki HK nær að grípa boltann.
Lengjudeildin er á Livey - Með kóðanum fotboltinet fæst 30% afsláttur af fyrsta mánuðinum! Livey
10. mín
Tumi með svakalega sprett upp að teignum fyrir HK og reynir skoti á markið. Guðmundur er þó tilbúin og ver skotið vel.
9. mín
Andri Freyr með skot fyrir Gróttu sem endar rétt framhjá markinu.
3. mín
VÁÁ Tumi fyrir HK á skot á mark sem Guðmundur ver. Boltinn endar aftur á Tuma sem er við stöngina og reynir að renna boltanum inn í markið, en boltinn endar í gengum allan teigin. Leit í smá stund eins og boltinn væri á leiðinni inn í mark þarna!
1. mín
Grímur Ingi með skot fyrir Gróttu sem Ólafur fer létt með að grípa
1. mín
Leikur hafinn
Heimamenn sparka þessu í gang!
Fyrir leik
Halli Hróðmars spáir í 1 umferð Haraldur Árni Hróðmarsson, fyrrum þjálfari Grindavíkur, spáir í leikina sem eru framundan. Haraldur býst við markamiklum jöfnunarleik hér í Kórnum.

HK 2 - 2 Grótta
HK hefur lekið mörkum í allan vetur og Grótta nær í sterkt stig í Kórnum.
Fyrir leik
Dómarateymið Aðaldómari leiksins er Elías Ingi Árnason. Með honum til aðstoðar eru Guðni Freyr Ingason og Ragnar Arelíus Sveinsson. Eftirlitsmaður leiksins frá KSÍ er Ásgrímur Helgi Einarsson.
Fyrir leik
Komnir/farnir HK
Komnir
Svavar Örn Þórðarson frá Njarðvík
Sigurður Gunnar Jónsson frá Stjörnunni á láni
Dominik Radic frá Njarðvík
Atli Hrafn Andrason frá KR
Róbert Quental Árnason frá Leikni

Farnir
Atli Arnarson hættur
Dagur Orri Garðarsson í Val (var á láni frá Stjörnunni)
Eiður Atli Rúnarsson í ÍBV
Kristján Snær Frostason í FH
Bart Kooistra í Aftureldingu
Marten Leon Jóhannsson til Bröndby
Hákon Ingi Jónsson
Rúrik Gunnarsson í Leikni (var á láni hjá Grindavík)
Kári Gautason í KA (var á láni)

Grótta
Komnir
Nökkvi Már Nökkvason frá ÍBV
Emil Skúli Einarsson frá Þrótti R.
Guðmundur Rafn Ingason frá KFG
Jónatan Ari Bragason frá Leikni
Tristan Freyr Ingólfsson frá Stjörnunni
Andri Freyr Jónasson alfarið frá Aftureldingu (var á láni)
Mattías Kjeld frá Val

Farnir
Pétur Theódór Árnason hættur
Marvin Darri Steinarsson í Vestra
Marciano Aziz til Þýskalands
Þórður Sveinn Einarsson í Val (var á láni)
Kristófer Melsted í Kríu
Fyrir leik
Styttist í leikinn Áhugavert að sjá hérna í upphitun að Grótta eru að fara spila í bláum treyjum og hvítum buxum, sem er ekki skrítið. En HK æfa hér í bláum buxum og virðist vera að fara spila í rauðri treyju og bláum buxum, sem er alveg frekar ruglingslegt. Vonandi á þetta ekki eftir að rugla fólk þegar leikurinn hefst.
Fyrir leik
Smá skemmtun fyrir upphitun Lengjudeildin hefur aldrei verið öflugri og fékk hún stóra sviðið í útvarpsþættinum á X977. Þátturinn er kominn á allar veitur og í spilarann á .Net:

Fyrir leik
Grótta spáð í 10. sæti Þjálfarrar og fyrirliðar liða í Lengjudeildinni spáðu í spilunum fyrir deildina í ár. Samkvæmt þeirra spá endar Grótta í 10. sæti.

Seltirningar stoppuðu ekki lengi í 2. deild, voru bara þeir í eitt ár og eru komnir aftur upp í Lengjudeildina. Grótta fór í uppbyggingu við fallið úr Lengjudeildinni sumarið 2024 og voru lengi í gang í 2. deild í fyrra. Þegar þeir komust hins vegar í gang, þá voru þeir illviðráðanlegir og þeir enduðu mótið frábærlega. Það réðist í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni hvort Grótta færi upp eða Þróttur Vogum og þar voru Gróttumenn sterkari á svellinu, unnu 2-0 sigur þar sem Andri Freyr Jónasson og Kristófer Dan Þórðarson skoruðu mörkin. Síðast þegar Grótta lék í Lengjudeildinni þá skítféllu þeir en ef þessi spá rætist þá halda þeir sér uppi í sumar og það er klárlega eitthvað sem stefnt er að á Seltjarnarnesinu.

Fyrir leik
HK spáð 5. sæti Þjálfarrar og fyrirliðar liða í Lengjudeildinni spáðu í spilunum fyrir deildina í ár. Samkvæmt þeirra spá endar HK í 5. sæti.

HK fer inn í Lengjudeildina þetta sumarið með skýran metnað eftir að hafa farið alla leið í úrslit umspilsins í fyrra, þar sem draumurinn um sæti í efstu deild rann þeim úr greipum á lokametrunum. Þeir áttu ekki mikinn möguleika í Keflavík í úrslitaleiknum og urðu að gera sér það að góðu að vera áfram í næst efstu deild. Það var þó tímabil sem sýndi að liðið hefur burði til að komast upp og væntingarnar eru því eðlilega til staðar. HK er spáð 5. sæti, sem setur þá í hóp þeirra liða sem gætu hæglega blandað sér í toppbaráttuna. Breytingar hafa orðið fyrir tímabilið, þar sem nýr þjálfari hefur tekið við keflinu. Áfram er það þó Eyjamaður sem stýrir skútunni og því má gera ráð fyrir því að það verði mikil stemning í Kórnum í sumar. Ef HK nær að byggja ofan á það sem gekk vel í fyrra og bæta enn frekar ofan á það, þá er alls ekki ólíklegt að þeir verði í Bestu deildinni að ári.

Fyrir leik
'Besta' deildin er hafin! Góða dagin gott fólk og verið hjartanlega velkomin á þessa beina textalýsingur frá Kórnum þar sem HK býður nýliðum Gróttu velkomin. Lengjudeildin er nú loksins hafin, einhverjir meina það vera besta deildin á Íslandi. Deildin hóf með látum í gær þar sem 14 mörk voruð skoruð í aðeins tvem leikjum. Ég væri alls ekki á móti því að fá marka leik hér í dag!

Leikurinn hefst kl. 16:00.
Byrjunarlið:
12. Guðmundur Rafn Ingason (m)
3. Jónatan Ari Bragason
4. Dagur Bjarkason
8. Caden Robert McLagan
9. Andri Freyr Jónasson ('71)
10. Grímur Ingi Jakobsson (f) ('58)
14. Einar Tómas Sveinbjarnarson ('71)
20. Kristófer Dan Þórðarson ('77)
21. Tristan Freyr Ingólfsson ('71)
24. Nökkvi Már Nökkvason
30. Mattías Kjeld
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
1. Alexander Arnarsson (m)
2. Hrannar Ingi Magnússon
7. Björgvin Brimi Andrésson ('71)
16. Halldór Hilmir Thorsteinson
19. Alexander Emil Stefánsson ('71)
22. Viktor Orri Guðmundsson ('77)
25. Elmar Freyr Hauksson ('58) ('71)

Liðsstjórn:
Rúnar Páll Sigmundsson (Þ)
Paul Benjamin Westren
Björgvin Stefánsson
Connor Bromley
Halldór Svavar Sigurðsson
Bjarni Björnsson
Anton Bogdanov

Gul spjöld:
Grímur Ingi Jakobsson ('38)
Caden Robert McLagan ('51)
Elmar Freyr Hauksson ('73)

Rauð spjöld: