PSG á eftir Rogers - Leao á óskalista Man Utd - Bernardo Silva til Real Madrid?
Lengjudeild karla
Þróttur R.
14:00 0
0
Njarðvík
Lengjudeild karla
Vestri
14:00 0
0
Grindavík
Besta kvenna
Fram
45' 1
3
ÍBV
Völsungur
0
0
Leiknir R.
25.04.2026  -  16:00
GPG völlurinn
Lengjudeild karla
Dómari: Bergvin Fannar Gunnarsson
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Fyrir leik
Hlustaðu á þáttinn Lengjudeildin hefur aldrei verið öflugri og fékk hún stóra sviðið í útvarpsþættinum á X977. Þátturinn er kominn á allar veitur og í spilarann á .Net:

Fyrir leik
Komnir og farnir hjá Leikni Komnir:
Marko Veselinovic frá Búlgaríu
Viktor Andri Pétursson frá Augnabliki
Árni Elvar Árnason frá Fjölni
Rúrik Gunnarsson frá HK (var á láni hjá Grindavík)
Davíð Jónsson frá Víkingi
Eiríkur Örn Beck frá Haukum
Birnir Breki Burknason frá ÍA á láni
Arnór Valur Ágústsson frá ÍA á láni
Marko Zivkovic frá Kormáki/Hvöt (var á láni)
Bjarki Arnaldarson frá Fram (var á láni)

Farnir:
Aron Einarsson í Njarðvík
Patryk Hryniewicki í Fjölni
Dusan Brkovic til Serbíu
Róbert Quental Árnason í HK
Jónatan Ari Bragason til Gróttu
Davíð Júlían Jónsson í KB
Fyrir leik
Komnir og farnir hjá Völsungi Komnir:
Jeffrey Baltus frá Nepal
Modoumatarr Mbye frá Svíþjóð
Juan Guardia frá Þór
Davíð Leó Lund frá Tindastóli (var á láni)
Ýmir Hjálmsson frá Njarðvík
Javon Jerrod Sample frá Dalvík
Indriði Ketilsson
Dagbjartur Búi Davíðsson

Farnir:
Jakob Héðinn Róbertsson í KA
Bjarki Baldvinsson hættur
Elvar Baldvinsson í Þór
Ívar Arnbro Þórhallsson í KA (var á láni)
Ismael Salmi Yagoub til Víkings Ó.f
Sergio Parla Garcia til Spánar
Pétur Orri Arnarson í Þór (var á láni)
Ólafur Jóhann Steingrímsson í Magna
Rafnar Máni Gunnarsson hættur
Einar Ísfjörð Sigurpálsson í Tindastól
Aron Bjarki Jósepsson í KV
Gunnar Kjartan Torfason aumingi
Fyrir leik
Þjálfararnir Bæði lið eru með nýja þjálfara frá síðasta tímabili.
Hjá Völsungi stýra þeir bekkjarbræður Elfar Árni Aðalsteinsson og Bjarki Baldvinsson liðinu eftir að Patrick De Wilde var látinn fara á dögunum eftir skrautlegt undirbúningstímabil. Þeir félagar eru þrautreyndir sem leikmenn og hefur Bjarki verið aðstoðarþjálfari en það verður spennandi að sjá hvernig tekst til í frumraun þeirra sem aðalþjálfara meistaraflokks.

Þjálfari Leiknis, Brynjar Björn Gunnarsson er hins vegar reynslumikill sem þjálfari og sem atvinnumaður erlendis. Hér á Íslandi hefur hann þjálfað HK og Grindavík, auk þess hefur hann verið aðstoðarþjálfari hjá Stjörnunni, Fylki og Víkingi.
Hann tók við Leiknisliðinu í vetur eftir að Ágúst Þór Gylfason lét af störfum eftir síðasta tímabil.
Fyrir leik
Leikni er spáð 9.sæti deildarinnar Úr spá þjálfara og fyrirliða á fotbolti.net:
9. Leiknir R.
Síðustu tvö tímabil hafa í raun verið spegilmynd hvort af öðru hjá Leikni. Liðið hefur byrjað hrikalega illa, lent strax undir pressu og brugðist við með því að skipta um þjálfara snemma sumars. Það er aldrei góð uppskrift að stöðugleika. Leiknisgoðsögnin Óli Hrannar Kristjánsson byrjaði síðasta tímabil sem þjálfari liðsins eftir að hafa bjargað því þægilega tímabilið árið áður, en ævintýrið varð stutt. Hann var látinn taka pokann sinn eftir að liðið fékk á sig sex mörk í tveimur leikjum í röð snemma sumar og þá var enn og aftur farið í endurstillingu. Leiknir náði að bjarga sér að lokum í fyrra, en það var meira bras en menn vilja sjá í Breiðholtinu. Þetta er félag sem vill vera að horfa upp töfluna, ekki niður hana. Spurningin fyrir þetta tímabil er einföld: Læra þeir af reynslunni eða fer þetta í sama farið aftur?

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 9. sæti
Fyrir leik
Völsungi er spáð neðsta sæti deildarinnar Úr spá þjálfara og fyrirliða á fotbolti.net:
12. Völsungur
Annað sumarið í röð er Völsungi spáð neðsta sæti Lengjudeildarinnar, en fyrir þetta sumar er þeim spáð botninum með enn meiri yfirburðum. Nánast allir þeir sem sendu inn sína spá eru með Völsung í neðsta sæti og það er erfitt að segja annað en að það sé skiljanlegt. Þeir stóðu sig frábærlega á síðasta tímabili og voru í engri fallhættu allt sumarið, komu öllum á óvart og enduðu að lokum í 7. sæti. En núna er staðan önnur. Aðalsteinn Jóhann Friðriksson, Alli Jói, hætti sem þjálfari liðsins en hann var ein stærsta ástæðan fyrir þessum magnaða árangri og festan í liðinu. Húsvíkingar hugsuðu út fyrir boxið í þjálfararáðningu en það gekk engan veginn upp og eru þeir í leit að nýjum þjálfara þegar stutt er í mót. Þetta er alls ekki ákjósanleg staða og Völsungur er í slæmri stöðu á leiðinni inn í sumarið. Það hefur líka gengið illa á undirbúningstímabilinu og þurftu þeir að hætta í Lengjubikarnum þar sem þeir náðu ekki í lið. Geta þeir komið öllum aftur á óvart?

Spá þjálfara og fyrirliða fyrir Lengjudeildina: 12. sæti
Fyrir leik
Lengjudeildin er farin af stað! Góðan daginn og velkomin í beina textalýsingu frá GPG - vellinum á Húsavík. Hér kl. 16:00 mætast Völsungur og Leiknir í 1. umferð Lengjudeildar karla.
Byrjunarlið:

Varamenn:

Liðsstjórn:

Gul spjöld:

Rauð spjöld: