Það er komið að Powerade-slúðurpakka dagsins en Aston Villa, Man Utd og Man City koma öll við sögu.
Morgan Rogers (23), leikmaður Aston Villa, er opinn fyrir því að spila utan Englands. Franska félagið Paris Saint-Germain er komið í baráttuna um Rogers, sem er einnig á ratsjá Arsenal, Manchester United og Chelsea. (Talksport)
Svissneski landsliðsmaðurinn Manuel Akanji (30) mun gera skipti sín til Inter frá Manchester City varanleg í sumar, en umsamið verð er 13 milljónir punda. (Fabrizio Romano)
Man City er fullvisst um að geta gengið frá kaupum á Elliot Anderson (23) frá Nottingham Forest, en hann gæti kostað félagið allt að 100 milljónir punda. (Sun)
Ítalski framherjinn Lorenzo Lucca (27) mun snúa aftur til Napoli þegar lánssamningur hans hjá Forest rennur út í sumar, en Forest hefur ekki áhuga á að nýta kaupákvæðið í samningnum. (Corriere dello Sport)
Atlético Madríd hefur opnað viðræður við Wolves um brasilíska miðjumanninn Joao Gomes (25), en gæti þurft að vera reiðubúið að greiða 40 milljónir punda til að landa honum. (Talksport)
Jorge Mendes, umboðsmaður Bernardo Silva, hefur boðið Real Madrid að fá portúgalska leikmanninn. Silva rennur út á samningi hjá Man City í sumar. (AS)
Argentínski varnarmaðurinn Marcos Senesi (28) hefur náð munnlegu samkomulagi við Tottenham um að ganga í raðir félagsins á frjálsri sölu frá Bournemouth í sumar. (Florian Plettenberg)
Man Utd er meðal félaga sem hafa áhuga á portúgalska vængmanninum Rafael Leao (26) frá AC Milan. (Calciomercato)
Enzo Maresca, fyrrum stjóri Chelsea, er talinn líklegasti kosturinn til að taka við Man City í sumar, það er að segja ef Pep Guardiola ákveður að yfirgefa félagið. (Fabrizio Romano)
Juventus er að íhuga að framlengja samning franska varnarmannsins Pierre Kalulu (25), en hann er á óskalista Manchester United, sem ætlar að senda fulltrúa til að fylgjast með honum gegn Milan um helgina. (Tuttomercatoweb)
Hollenski varnarmaðurinn Micky van de Ven (25) ætlar ekki að framlengja við Tottenham og mun reyna að komast frá félaginu í sumar. (Teamtalk)
Enski miðjumaðurinn Curtis Jones (25), sem er á mála hjá Liverpool, er á óskalista Aston Villa. (Football Insider)




