Jackson, Conte, Robertson, Alisson, Simons, Bernardo Silva og fleiri góðir í slúðri dagsins
Besta karla
Stjarnan
LL 2
4
Valur
Besta karla
Víkingur R.
LL 4
0
ÍA
Besta karla
Breiðablik
LL 4
0
Þór
Besta karla
KR
LL 4
2
FH
Besta karla
Fram
LL 5
1
ÍBV
KR
4
2
FH
Aron Sigurðarson '6 1-0
1-1 Tómas Orri Róbertsson '8
Eiður Gauti Sæbjörnsson '18 2-1
Amin Cosic '28 3-1
Aron Sigurðarson '33 4-1
4-2 Tómas Orri Róbertsson '43
27.04.2026  -  18:00
Meistaravellir
Besta karla
Aðstæður: Kalt, hvasst og blautt.
Dómari: Arnar Þór Stefánsson
Áhorfendur: 1007
Maður leiksins: Amin Cosic
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
11. Aron Sigurðarson (f) ('76)
14. Alexander Rafn Pálmason
17. Luke Rae ('87)
19. Amin Cosic
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson ('76)
23. Arnór Ingvi Traustason ('33)
26. Hrafn Tómasson
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
4. Michael Akoto
8. Stefán Árni Geirsson ('76)
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson ('76)
20. Tristan Gauti Línberg Arnórsson
28. Hjalti Sigurðsson
30. Sigurður Breki Kárason
45. Galdur Guðmundsson ('87)
77. Orri Hrafn Kjartansson ('33)

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Jamie Paul Brassington
Guðjón Örn Ingólfsson
Björn Valdimarsson
Lúðvík Júlíus Jónsson
Hilmar Árni Halldórsson
Magnus Börheim

Gul spjöld:
Aron Sigurðarson ('18)
Orri Hrafn Kjartansson ('83)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
KR ingar með aðra sýningu og ótrúlegt að þeir hafi ekki skorað fleiri

Skýrla og viðtöl á leiðinni
91. mín
Amin með dauðafæri Skoraði úr erfiðu færi í fyrri hálfleik en inn vill boltinn ekki úr betri færum í þeim seinni

Sá verður svekktur að vera bara eitt mark hér í kvöld
91. mín
Þremur bætt við
87. mín
Inn:Galdur Guðmundsson (KR) Út: Luke Rae (KR)
86. mín
Stefán með dauðafæri Amin Cosic er búinn að vera rosalegur í þessum leik, en og aftur að valda usla og kemur Stefáni í dauðafæri en Jökull ver vel frá honum
83. mín Gult spjald: Orri Hrafn Kjartansson (KR)
81. mín Gult spjald: Ísak Óli Ólafsson (FH)
79. mín
Inn:Benjamín Bæring Þórsson (FH) Út:Kjartan Kári Halldórsson (FH)
76. mín
Inn:Gyrðir Hrafn Guðbrandsson (KR) Út:Ástbjörn Þórðarson (KR)
76. mín
Inn:Stefán Árni Geirsson (KR) Út:Aron Sigurðarson (KR)
74. mín Gult spjald: Adolf Daði Birgisson (FH)
KR fékk hagnaðinn áðan og FH gult núna
72. mín
Amin Cosic í dauðafæri Fær boltann inni í teig og alveg galopinn, en skotið hans í stöngina og út.

Fimmta markið vill ekki inn hjá KR
72. mín
1007 manns á vellinum
70. mín
Inn:Adolf Daði Birgisson (FH) Út:Kristján Snær Frostason (FH)
Kristján Snær tekinn út af til öryggis er stálheppinn að vera ennþá inná. Tvö atvik sem hefðu geta leitt til seinna gula.
70. mín
Inn:Kári Kristjánsson (FH) Út:Viktor Nói Vidarsson (FH)
67. mín
Liggur mark í loftinu hjá KR Vinstri kanturinn enn og aftur allt í öllu
65. mín
Inn:Gils Gíslason (FH) Út:Tómas Orri Róbertsson (FH)
Til öryggis held ég þar sem Tómas er á gulu spjaldi, búinn að vera besti maður FH í dag.
61. mín
Kristján Snær heppinn að fá ekki annað gult og rautt Ég sá ekki betur en að varamaðurinn hafi notað hendurnar til að stöðva Amin Cosic. Ekkert dæmt þarna og Kristján á gulu spjaldi nú þegar.
59. mín
6 hornspyrnur á skömmu kafla hjá KR En ekkert komið úr þeim þrátt fyrir ákall stuðningsmanna KR um að fá þær á pönnuna á Eið
52. mín
Vinstri kanturinn verið allt í öllu í sóknarleik KR í kvöld Enn og aftur vinstri kanturinn opnast á gátt en FH bjargar í horn.

Kristján Snær sem leysti Grétar af í hægri bakverðinum er strax kominn með gult og verður að teljast áhyggjuefni fyrir FH.
50. mín Gult spjald: Kristján Snær Frostason (FH)
49. mín Gult spjald: Arngrímur Bjartur Guðmundsson (FH)
46. mín
KR byrjar Seinni er hafinn
46. mín
Inn:Kristján Snær Frostason (FH) Út:Grétar Snær Gunnarsson (FH)
45. mín
Nokkrar myndir úr fyrri hálfleik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikstölfræðin (af Sýn) Marktilraunir: 11-6
Á mark: 8-4
Með boltann: 59% - 41%
Heppnaðar sendingar: 191-104
45. mín
XB

Í hálfleik þá skulum við minna okkur á þá staðreynd að þessi leikur væri ekki að fara fram hér í dag ef Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar hefði ekki keyrt framkvæmdir við nýja gervigrasið áfram í tíð sinni sem borgarstjóri. Í þokkabót setti hann byggingu knatthúss á íþróttasvæði félagsins af stað. XB


Það munar um 800 milljónir

- Auglýsing -
45. mín
Hálfleikur
Rosalegur leikur og nóg eftir Tökum okkur 15
43. mín MARK!
Tómas Orri Róbertsson (FH)
Stoðsending: Baldur Kári Helgason
Gestirnir minnka muninn Þetta skrifast smá á Finn Tómas. Er of aggressívur á Úlf sem á þarna eina snögga snertingu og þá er Baldur Kári sloppinn í gegn sem sendir hann á Tómas sem þarf ekki annað en að renna honum í netið.
41. mín
Eiður næstum því búinn að skora 5. markið Já ég endurtek þarna munaði engu að Eiður hefði skorað fimmta mark KR.

Flottur sprettur hjá Luke hægra megin og aftur föst fyrirgjöf á milli varnar og markmanns en Eiður aðeins og seinn og nær ekki til hans.
38. mín
Luke Rae skorar En rangstaða dæmd, réttur dómur að mér sýndist.

En FH virkar þreytt og er í alls konar vandræðum með hraða, orku og hápressu heimamanna.
34. mín
Varamannaskýlin voru færð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vegna vinds í Vesturbænum voru varamannaskýlin færð stúkumegin fyrir þennan leik. Þar sem skýlin eru ekki föst við jörðina þá var hætta á að þau myndu fjúka!
33. mín MARK!
Aron Sigurðarson (KR)
Stoðsending: Orri Hrafn Kjartansson
Varamaðurinn með stoðsendingu með fyrstu snertingu Finnur Aron um leið rétt fyrir utan teig og hann staðsetur boltann fast niðri í hægra hornið, óverjandi fyrir Jökul.

FH martröðin heldur áfram
33. mín
Í Henson treyjum en Nike stuttbuxum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH er ekki komið með varatreyjur fyrir tímabilið og fékk því Henson til að redda sér tímabundnum treyjum. Liðið er því í Henson treyjum en Nike stuttbuxum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
33. mín
Inn:Orri Hrafn Kjartansson (KR) Út:Arnór Ingvi Traustason (KR)
Meiðsli því miður
28. mín MARK!
Amin Cosic (KR)
Stoðsending: Gabríel Hrannar Eyjólfsson
Veislan heldur áfram Geggjuð sending hjá Gabríel á Amin sem er sloppin í gegn en nóg eftir enda færið þröngt.

En Amin afgreiðir hann snyrtilega á milli fóta Jökuls og kemur KR í 3-1.
25. mín
Alexander með dauðfæri Loksins ákveður Dóri að sparka langt og boltinn skoppar yfir alla og Alexander Rafn var einn á móti Jökli.

Jökull gerir hins vegar vel og kemur út og minnkar markið og Alexander tekst ekki að stýra boltanum framhjá honum.
25. mín Gult spjald: Tómas Orri Róbertsson (FH)
Braut þarna á Alexander sem var kominn framhjá honum og á leiðinni í skyndisókn
23. mín
Ofboðslega mikill hraði í leiknum Luke Rae einn á móti Grétar þarna á vinstri og fer framhjá honum og á fínan bolta inn í teig en sóknin rennur í sand.

FH vörnin og svo sem KR vörn einnig í talsverður vandræðum hér í byrjun leiks.
18. mín Gult spjald: Aron Sigurðarson (KR)
Jóhannes Karl brjálaður FH fékk hagnaðinn og missti boltann. Í kjölfarið fær Aron hann og úr því verður mark.

En réttur dómur sýndist mér þar sem FH fékk hagnaðarregluna.
18. mín MARK!
Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Stoðsending: Aron Sigurðarson
Þetta var athyglisvert og Jóhannes Karl er brjálaður.

Aron Sig með augljóst peysutog en ekkert dæmt þar sem FH fær hagnaðarregluna en missir af boltanum.Næsta sending er á Aron og hann á flotta stungu sem sendir Eið í gegn einan og hann rennir boltanum framhjá Jökli í markinu.
18. mín
Góður sprettur hjá Amin Kosic Geysist upp vinstri og fær góða sendingu frá Aroni, gerir það hárrétta í stöðunni og sendir fastan bolta á milli varnar og markmans. En engin nær til hans.
15. mín Gult spjald: Grétar Snær Gunnarsson (FH)
8. mín MARK!
Tómas Orri Róbertsson (FH)
Gestirnir ekki lengi að jafna Dóri í marki KR inga nær ekki að grípa skot Kjartans sem fór þó beint á hann.

Gestirnir fá í kjölfarið horn og eftir smá dans inni í teig dettur boltinn fyrir fæturnar á Tómasi sem gerir virkilega vel og kemur boltanum yfir á vinstri og þrumar honum í netið óverjandi fyrir Dóra.
6. mín MARK!
Aron Sigurðarson (KR)
Stoðsending: Luke Rae
Klaufagangur í vörn FH Róbert Hugi af óskiljanlegum ástæðum ákveður að tvöfalda á Amin og skilur sinn mann Luke eftir einan.

Amin sendir á hann og Luke sendir út í teig á Aron sem tekur eina gabbhreyfingu og rennur honum í autt markið.
4. mín
Gott færi hjá Eiði Aukaspyrna dæmd rétt fyrir ofan miðju og Aron Sig tekur hana og sendir inn í teig og beint á kollinn á Eiði.

Skallinn af nokkuð löngu færi og þægilega yfir.
1. mín
Úlfur Ágúst í dauðfæri Ótrúleg byrjun en KR vörnin gleymir Úlfi sem er slopinn í gegn alveg einn á móti Halldóri.

En vel varið hjá Dóra sem ver hann með löppunum, þarna hefði Úlfur geta komið FH í 1-0.
1. mín
Leikur hafinn
Það eru gestirnir sem sparka þessu í gang.
Fyrir leik
Styttist í fjörið Liðin eru að labba inn á völlinn

Það er blautt kalt og hvasst.
Fyrir leik
Skýlin færð vegna veðurs Það var í þessu töluðu orðum verið að færa varamannaskýlin vegna veðurs, það er athyglisvert.

Mynd:
Vindurinn er ekki svona rólegur í vesturbænum í kvöld

Að leik loknum og logni verður skýlin færð aftur á sinn stað hinum megin á vellinum. En núna eru þau sömu megin og áhorfendur.
Fyrir leik
Sigurður Breki er í hóp í fyrsta skipti á tímabilinu Stórar fréttir fyrir KR Sigurður Breki Kárason er í hóp í fyrsta skipti á núverandi móti, en hann er búinn að glíma við höfuðmeiðsli.

Eins og er sagt stundum, þeir ríku verða ríkari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miklar væntingar eru gerðar til Sigurðs Breka þrátt fyrir ungan aldur
Fyrir leik
KR hefur skorað 14 mörk í þremur leikjum
Fyrir leik
Glugginn lokar núna á mivðikudaginn Af þessum tveimur liðum verður að teljast líklegt að FH leggi í meira vinnu en KR við að styrkja hópinn.

Stundum getur vinnan tengst fjölskylduböndum en hér er athyglisverð frétt um Jóhannes Kristinn Bjarnason frænda Jóhannesar Karls Guðjónssonar.

Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár Óskar gerir engar breytingar á sínu liði á meðan Jóhannes Karl gerir hvorki meira né minna en fjórar breytingar hjá FH

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Úlfur Ágúst er í byrjunarliðinu


Fyrir leik
FH eftir þrjár umferðir Eins gaman og tímabilið er að byrja hjá KR þá er alls ekki óviðeigandi að segja að tímabilið er að byrja leiðinlega í Hafnarfirðinum. FH er í ellefta sæti með aðeins eitt stig.

Vissulega eru margar breytingar á hópnum og ber þar helst að nefna Böðvar Böðvarsson sem fór til ÍA, Björn Daníel Sverrisson sem hætti og Sigurð Bjart Hallsson sem var seldur til Spánar fyrir tímabilið.

Þetta voru allt lykilmenn í liðinu í fyrra og þar að auki er nýr þjálfari í brúnni en fyrrum atvinnumaðurinn Jóhannes Karl Guðjónsson er nýr þjálfari liðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl spilaði 34 landsliðsleiki á sínum glæsta ferli

Í fyrstu umferð gerði FH 1-1 jafntefli í Eyjum og náðu að bjarga stigi á 80. mínútu með marki frá Kára Kristjánssyni sem kom til liðsins frá Þrótti fyrir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kári Kristjánsson hefur verið einn besti leikmaður Lengjudeildarinnar undanfarin ár

Í annari umferð tapaði FH 2-3 á móti Stjörnunni á Samsungvellinum og í síðustu umferð tapaði FH 0-3 á móti Val á Hlíðarenda.

Ekki er nú verkefnið auðveldara í 4. umferð þegar liðið mætir á Meistarvöll.

En það er alls ekki öll von úti enn og þá sérstaklega í ljósi þess að liðið byrjar tímabilið með fjórum útileikjum í röð á meðan grasið grænkar á Kaplakrika.

En FH liðið var þekkt fyrir að spila sinn langbesta fótbolta í fyrra á alvöru grasi.

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nýleg mynd af grasinu á Kaplakrika
Fyrir leik
KR eftir þrjár umferðir KR er einfaldlega heitasta liðið í deildinni og er hápressuboltinn að skila sér á þessu ári í glimmrandi sóknarbolta. Hins vegar eru KRingar líka að fá á sig mörk og þá sérstaklega í lok leikja.

Í fyrstu umferð sigraði KR nýliða Keflavíkur 3-2 með sigurmarki frá hinum bráðefnilega Alexander Rafni Pálmassyni á 88. mínútu.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Alexander Rafn fer til Danmerkur í sumar

Í annarri umferð komu aftur nýliðar á Meistaravelli þegar KR sigraði Þór 5-2.

Í þriðju umferð gerði KR góða ferð til Eyja og unnu 6-2 og skoraði fyrirliði liðsins Aron Sigurðarson tvennu.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Sigurðarson er einn allra besti leikmaður deildarinnar
Fyrir leik
Spámaður vikunnar Það er enginn annar en Stefán Þór Pálsson leikmaður ÍR sem er spámaður vikunnar. Sá átti leik í fyrstu umferð lengjudeildarinnar og kom að fjórum mörkum þegar ÍR sigraði Aftureldingu 7-4.

Og spáin hans er í djarfari kantinum en hann spáir 7-4 sigri KR:

KR 7-4 FH
Skemmtilegasti leikur umferðarinnar. Minnir á leik sem var spilaður í Mosfellsbæ nýlega.

Fyrir leik
Spáin fyrir mót FH FH endaði í efra hluta í fyrra eftir skiptingu en það voru talsverðar breytingar á liðinu og spáin gerði ráð fyrir einu skrefi afturábak.

Hins vegar er byrjunin í ár undir pari og liðið situr í 11. sæti með aðeins eitt stig eftir 3 leiki.

Fyrir leik
Spáin fyrir mót KR Flesta grunaði að KR yrði betra en í fyrra en gengið í ár hefur svo sannarlega komið á óvart og KR situr eitt á toppnum og ekkert lið hefur skorað eins mikið af mörkum síðan árið 1959.



Fyrir leik
Dómgæslan í kvöld Dómarinn í kvöld verður Arnar Þór Stefánsson.
Þórður Arnar Árnason og Jovan Subic eru aðstoðardómarar.
Fjórði dómari er Pétur Guðmundsson á meðan Viðar Helgason er eftirlitsdómari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Kæru áhorfendur.

Verið velkomin í beina textalýsingu frá Meistaravöllum þegar KR fær FH í heimsókn 4.umferð Bestu deildar karla.

Leikurinn hefst á slaginu klukkan 18.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


mánudagur 27. apríl

Besta karla
17:30 Fram-ÍBV (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-FH (Meistaravellir)
19:15 Breiðablik-Þór (Kópavogsvöllur)
19:15 Víkingur R.-ÍA (Víkingsvöllur)
19:15 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
Byrjunarlið:
1. Jökull Andrésson (m)
2. Birkir Valur Jónsson
6. Grétar Snær Gunnarsson ('46)
7. Kjartan Kári Halldórsson ('79)
22. Ísak Óli Ólafsson (f)
23. Tómas Orri Róbertsson ('65)
33. Úlfur Ágúst Björnsson
37. Baldur Kári Helgason
38. Arngrímur Bjartur Guðmundsson
40. Róbert Hugi Sævarsson
66. Viktor Nói Vidarsson ('70)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
24. Daði Freyr Arnarsson (m)
3. Kristján Snær Frostason ('46) ('70)
4. Tobias Carlsson
8. Kári Kristjánsson ('70)
9. Kristján Flóki Finnbogason
10. Sverrir Páll Hjaltested
14. Adolf Daði Birgisson ('70)
32. Gils Gíslason ('65)
39. Benjamín Bæring Þórsson ('79)

Liðsstjórn:
Jóhannes Karl Guðjónsson (Þ)
Árni Freyr Guðnason
Arnar Sigþórsson
Guðmundur Jón Viggósson
Benjamin Gordon Mackenzie
Númi Már Atlason
Kjartan Sturluson

Gul spjöld:
Grétar Snær Gunnarsson ('15)
Tómas Orri Róbertsson ('25)
Arngrímur Bjartur Guðmundsson ('49)
Kristján Snær Frostason ('50)
Adolf Daði Birgisson ('74)
Ísak Óli Ólafsson ('81)

Rauð spjöld: