KR trónir á toppi Bestu deildarinnar og er eina liðið sem er með fullt hús stiga eftir þrjár fyrstu umferðirnar á nýju tímabili.
KR hefur farið feykilega vel af stað og er með markatöluna 14-6, en ekkert lið hefur skorað meira í fyrstu þremur umferðum efstu deildarinnar síðan KR gerði það árið 1959. KR átti magnað tímabil það árið og vann deildina með fullt hús stiga. Víðir Sigurðsson vekur athygli á þessu í færslu þar sem hann gerir upp 3. umferðina.
Þetta er þó ekki met á Íslandsmótinu útaf því að Valur skoraði 21 mark í fyrstu þremur leikjum sínum árið 1934.
Síðast þegar KR vann fyrstu þrjá deildarleikina í röð endaði stórveldið sem Íslandsmeistari árið 2013.



