Þrettán leikmenn gætu yfirgefið Man Utd - Liverpool á eftir leikmanni Betis
   sun 26. apríl 2026 13:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stefán Þór spáir í 4. umferð Bestu deildarinnar
Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson
,,Skemmtilegasti leikur umferðarinnar. Minnir á leik sem var spilaður í Mosfellsbæ nýlega
,,Skemmtilegasti leikur umferðarinnar. Minnir á leik sem var spilaður í Mosfellsbæ nýlega"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ Runavík í Færeyjum, var með þrjá rétta þegar hann spáði í 3. umferð Bestu deildarinnar.

Stefán Þór Pálsson, leikmaður ÍR, spáir í 4. umferð sem hefst í kvöld þegar KA fær Keflavík í heimsókn. Stefán Þór kom að fjórum mörkum þegar ÍR vann ótrúlegan 7-4 sigur á Aftureldingu í fyrstu umferð Lengjudeildarinnar á föstudaginn.

KA 2-1 Keflavík (18:00 í kvöld)
Mínir gömlu félagar í KA komast í 2-0. Okkar allra besti ÍR-ingur, Sindri Snær, klórar í bakkann fyrir Keflavík.

Fram 2-1 ÍBV (18:00 á morgun)
Framararnir klára þennan leik 2-1. Róbert Elís skorar mark ÍBV

KR 7-4 FH (18:00 á morgun)
Skemmtilegasti leikur umferðarinnar. Minnir á leik sem var spilaður í Mosfellsbæ nýlega.

Breiðablik 1-1 Þór (19:15 á morgun)
Spái því að Þórsarar láti Blikana hafa mikið fyrir þessum leik og Þór fer heim með gott stig í fartöskunni.

Stjarnan 3-2 Valur (19:15 á morgun)
Þar sem síðustu þrír leikir Stjörnunnar hafa endað 3-2 eða 2-3 spái ég því að það haldi áfram og þeir ná að klára þennan leik 3-2

Víkingur 2-0 ÍA (19:15 á morgun)
Spái því að leikurinn verði jafn framan af en Víkingarnir klára þetta í seinni hálfleik.

Fyrri spámenn:
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Ágúst Brynjars (3 réttir)
Siggi Hall (1 réttur)
Slapp
banner
banner