
Stjarnan
4
4
Breiðablik

0-1
Viktor Karl Einarsson
'5
0-2
Aron Bjarnason
'6
0-3
Aron Bjarnason
'28
Emil Atlason
'30
1-3
Emil Atlason
'38
2-3
2-4
Kristófer Ingi Kristinsson
'54
Emil Atlason
'64
3-4
Birnir Snær Ingason
'80
4-4
16.06.2026 - 19:15
Samsungvöllurinn
Besta karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 543
Maður leiksins: Emil Atlason
Samsungvöllurinn
Besta karla
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson
Áhorfendur: 543
Maður leiksins: Emil Atlason
Byrjunarlið:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
2. Heiðar Ægisson
('82)
('82)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
10. Daníel Finns Matthíasson
('86)
('86)
11. Birnir Snær Ingason
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
22. Emil Atlason (f)
23. Benedikt V. Warén
('63)
('63)
32. Örvar Logi Örvarsson
- Meðalaldur 27 ár
Varamenn:
1. Darri Bergmann Gylfason
4. Þorri Mar Þórisson
14. Bjarki Hauksson
17. Haukur Örn Brink
('63)
('63)
27. Damil Serena Dankerlui
('82)
('82)
28. Bjarki Friðjón Sæmundsson
29. Alex Þór Hauksson
33. Bjarki Hrafn Garðarsson
('86)
('86)
36. Arnar Breki Björnsson
- Meðalaldur 21 ár
Liðsstjórn:
Jón Þór Hauksson (Þ)
Guðmundur Kristjánsson (Leikmaður utan hóps)
Hrannar Bogi Jónsson (AÞ)
Hákon Ernir Haraldsson (AÞ)
Egill Atlason (Sjúkraþj.)
Brynjar Gauti Guðjónsson (Liðsstj.)
Rajko Stanisic (MÞ)
Gul spjöld:
Jóhann Árni Gunnarsson ('43)
Emil Atlason ('51)
Örvar Logi Örvarsson ('67)
Hrannar Bogi Jónsson ('68)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Ótrúlegum leik lokið
Leikur sumarsins sem við fengum hér í Garðabænum.
Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld.
Ég þakka kærlega fyrir mig.
Skýrsla og viðtöl væntanleg síðar í kvöld.
Ég þakka kærlega fyrir mig.
92. mín
Emil!
Reynir skot fyrir utan teiginn en boltinn fer yfir markið. Sá er í leit að sínu fjórða marki.
89. mín
DAUÐAFÆRI STJARNAN
Bjarki nýkominn inn á fær frían skalla nánast inni í markteignum en skallar beint á Anton sem ver þetta.
88. mín
Blikar í færi
Góð hornspyrna inn á teiginn og Viktor Örn á fjærsvæðinu nær ekki að setja boltann á markið.
83. mín
Emil í færi!
Hittir boltann ekki nægilega vel og boltinn fer ekki á markið en hann var engu að síður í fínasta færi.
80. mín
MARK!
MARK!Birnir Snær Ingason (Stjarnan)
JA HÉRNA HÉR!!!
ÞESSI ÓTRÚLEGI LEIKUR VERÐUR ENN ÓTRÚLEGRI
Birnir fær boltann utarlega í teignum og er frekar lengi að athafna sig en nær á endanum skoti á nærstöngina og Anton Ari sigraður.
Heimamenn hafa jafnað og er ekki alltaf eitt mark eftir í þessu?
Birnir fær boltann utarlega í teignum og er frekar lengi að athafna sig en nær á endanum skoti á nærstöngina og Anton Ari sigraður.
Heimamenn hafa jafnað og er ekki alltaf eitt mark eftir í þessu?
79. mín
Stjarnan fær aukaspyrnu
Frábær sending inn á teiginn sem Heiðar skallar framhjá markinu. Fínasta færi sem fer þar forgörðum.
75. mín
Blikar vilja víti
Ágúst gerir vel og kemur sér í gott færi og nær skoti sem fer í einhvern og Blikar ósáttir.
68. mín
Gult spjald: Hrannar Bogi Jónsson (Stjarnan)
Gult spjald: Hrannar Bogi Jónsson (Stjarnan)
Fær að lýta gula spjaldið fyrir munnsöfnuð á bekknum.
67. mín
Gult spjald: Örvar Logi Örvarsson (Stjarnan)
Gult spjald: Örvar Logi Örvarsson (Stjarnan)
Rífur Ágúst niður sem hafði sjálfið runnið en samt náð að komast framhjá honum. Brotið á sér stað rétt fyrir utan teig Stjörnunnar.
64. mín
MARK!
MARK!Emil Atlason (Stjarnan)
Stoðsending: Haukur Örn Brink
Stoðsending: Haukur Örn Brink
ÞAÐ SJÖUNDA ER KOMIÐ
ÞRENNA ÞRENNA ÞRENNA
Vel gert hjá Hauki Brink sem fer framhjá Ívari og lyftir boltanum skemmtileg á fjærsvæðið þar sem enginn annar en Emil Atlason neglir boltanum í netið úr góðri stöðu.
Stúkan tekur nú heldur betur við sér.
Vel gert hjá Hauki Brink sem fer framhjá Ívari og lyftir boltanum skemmtileg á fjærsvæðið þar sem enginn annar en Emil Atlason neglir boltanum í netið úr góðri stöðu.
Stúkan tekur nú heldur betur við sér.
62. mín
Daníel Finns með skot framhjá markinu eftir fína fyrirgjöf Benedikts. Stjarnan leitar grimmt að þessu mikilvæga sjöunda marki.
60. mín
Anton Ari með afar lélega sendingu beint á Benedikt Warén og úr því fá heimamenn góða stöðu en Anton sjálfur endar á að bjarga þessu.
58. mín
EMIL ATLA
Góð sending utan á varnarlínu Blika sem Emil tekur með sér að marki og skýtur á nærstöngina en boltinn sleikir slána og fer yfir markið.
56. mín
Inn:Arnar Bjarki Gunnleifsson (Breiðablik)
Út:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Markaskorarinn tekinn útaf.
54. mín
MARK!
MARK!Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Viktor Örn Margeirsson
Stoðsending: Viktor Örn Margeirsson
MIKIÐ VAR ÞETTA EINFALT
Viktor Örn er að dóla sér með boltann í vörninni og Kristófer tekur gott hlaup inn fyrir vörn Stjörnunnar og fær frábæra sendingu inn fyrir og lyftir boltanum bara í fyrstu snertingu yfir Árna Snæ sem var í þessu fræga einskinsmanslandi.
Gríðarlega einfalt mark á fá á sig en engu að síður vel gert hjá Blikum.
Gríðarlega einfalt mark á fá á sig en engu að síður vel gert hjá Blikum.
51. mín
Gult spjald: Emil Atlason (Stjarnan)
Gult spjald: Emil Atlason (Stjarnan)
Sparkar Ásgeir niður um 80 metrum frá marki Stjörnunnar. Afar óþarflegt spjald.
49. mín
Stjarnan fær aðra hornspyrnu og hefur náð að halda smá pressu á Blikum. Stúkan farin að taka við sér einnig.
48. mín
Birnir Snær tekur frákast eftir hornspyrnu en sú marktilraun ratar ansi langt frá marki og meira að segja rúllar boltinn í innkast.
47. mín
Blikar byrja strax af krafti og ná tveimur skotum að marki Stjörnunnar sem ekkert verður þó úr.
45. mín
Hálfleikur
Rosalegum fyrri hálfleik lokið
Tökum okkur 15 mínútna hlé og vonumst eftir annarri eins skemmtun í þeim síðari.
45. mín
Kristófer Ingi með gott hlaup á nærstöngina og potar boltanum í átt að marki en boltinn með viðkomu af varnarmanni og aftur fyrir endalínuna.
38. mín
MARK!
MARK!Emil Atlason (Stjarnan)
Stoðsending: Benedikt V. Warén
Stoðsending: Benedikt V. Warén
ÞVÍLÍK SKEMMTUN
Benedikt Warén með góða fyrirgjöf með vinstri fæti á fjærsvæðið og Viktor Örn nær ekki til boltans og Emil lúrir á bakvið hann og klárar í autt markið.
Hlýtur að vera besti hálfleikur sumarsins hingað til.
Hlýtur að vera besti hálfleikur sumarsins hingað til.
36. mín
Aftur Birnir!
Annað skot hjá Birni eftir hina hornspyrnuna og aftur er hann nálægt því að skora en tekst ekki að koma boltanum í markið.
Betra frá Stjörnunni.
Betra frá Stjörnunni.
35. mín
DAUÐAFÆRI
Úr hornspyrnunni ratar boltinn á Birni Snæ sem neglir honum í nærhornið en Ásgeir fær hann í bakið á línunni og bjargar þessu í horn.
30. mín
MARK!
MARK!Emil Atlason (Stjarnan)
EÐA HVAÐ?
Emil fær boltann inni í teig Blika og er með grunsamlega mikinn tíma og klárar niðri í hornið og Anton nær ekki til boltans.
Þvílíkur leikur sem verið er að bjóða upp á.
Þvílíkur leikur sem verið er að bjóða upp á.
28. mín
MARK!
MARK!Aron Bjarnason (Breiðablik)
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
Stoðsending: Ágúst Orri Þorsteinsson
BLIKAR AÐ GERA ÚT UM LEIKINN
Ágúst Orri fer afar auðveldlega framhjá Örvari Loga í teignum og rennir honum á Aron sem setur boltann í netið af markteigslínunni.
Afar erfitt verkefni framundan fyrir heimamenn.
Afar erfitt verkefni framundan fyrir heimamenn.
27. mín
Inn:Ásgeir Helgi Orrason (Breiðablik)
Út:Davíð Ingvarsson (Breiðablik)
Davíð hefur lokið leik hér í dag.
26. mín
Þungt samstuð á milli Antons Ara og Emils sem skella saman en virðast báðir tveir vera í lagi.
24. mín
Stjarnan!
Vel spilað hjá heimamönnum og Emil Atla er í góðri stöðu inni í miðjum teig Blika en reynir sendingu í staðinn fyrir skot og hittir boltann illa og úr þessu verður ekkert.
24. mín
Davíð Ingvars er sestur og fær aðhlynningu. Hann var búinn að vera að kveinka sér fyrir nokkrum mínútum.
23. mín
Blikar fá færi!
Góður bolti fyrir markið sem ratar á Óla Val á fjærsvæðinu sem dúndrar honum yfir.
21. mín
Eftir frábærar fyrstu tíu mínútur hjá Blikum hafa þeir lítið komist áleiðis og heimamenn hafa aðeins sótt í sig veðrið.
16. mín
Daníel Finns tekur spyrnuna en skýtur í vegginn og fær frákastið en skýtur aftur í vegginn.
Síðustu mínútur hafa þó verið mun betri hjá heimamönnum.
Síðustu mínútur hafa þó verið mun betri hjá heimamönnum.
16. mín
Örvar Eggerts sækir aukaspyrnu við teigslínu Blika aðeins hægra megin við markið.
15. mín
Fyrsta skot Stjörnunnar á markið kemur frá Birni rétt fyrir utan teiginn en Anton Ari ver það þægilega.
14. mín
Stjörnumenn komast í fyrsta sinn í leiknum inn á teig Blika en úr því verður ekkert.
13. mín
Árni Snær með slæma sendingu og Blikar keyra hratt. Endar með skoti frá Antoni Loga sem Árni ver þó ágætlega.
10. mín
Enn ein hornspyrnan sem Blikar fá. Blikarnir eru með Garðbæinga í köðlunum þessa stundina.
8. mín
Blikar nálægt því þriðja!!
Kristófer Ingi tekur góða gabbhreyfingu og nær skoti á nærstöngina sem Árni ver í horn.
6. mín
MARK!
MARK!Aron Bjarnason (Breiðablik)
HRIKALEG BYRJUN NÝJA ÞJÁLFARANS
Aron Bjarna leikur listir sínar vinstra megin í teig Stjörnunnar og tekur síðan bara snyrtilegt skot í fjærhornið sem Árni Snær nær ekki að teygja sig í.
Líklega ekki byrjunin sem Jón Þór óskaði sér.
Líklega ekki byrjunin sem Jón Þór óskaði sér.
5. mín
MARK!
MARK!Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
FYRSTA MARKIÐ KOMIÐ
Snögg hornspyrna tekin hjá Blikum og boltinn ratar á Ívar Örn sem tekur bylmingsskot með hægri fæti í slána og boltinn hrekkur á Viktor í frákastinu sem klárar vel.
1. mín
Emil reynir skot af löngu færi þar sem Anton Ari var framarlega í markinu en það fer víðsfjarri markinu.
Fyrir leik
Vert að hafa í huga
Nýr þjálfari sem mun koma með stemmingu í Garðabæinn, Blikar eru andlausir og enginn Höskuldur. Stjarnan sigur er 2,95 fyrir þá hörðu og “Stjarnan jafntefli ekki með” er 2.23 á Epic. mæli með
— Kristalkúlan (@kristalkulan) June 16, 2026
Fyrir leik
Korter í leik
Fínasta veður hér í Garðabænum. Léttskýjað og smávægileg gola og trommur í stúkunni farnar á loft.
Fyrir leik
Innkastið verður í beinni 21:30 á X977
Elvar Geir, Valur Gunnars og Kristinn Kjærnested gera umferðina upp.
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Áhugavert er að Guðmundur Kristjánsson sé ekki í leikmannahópi Stjörnunnar hér í kvöld en hann er skráður í liðsstjórn. Emil Atlason tekur því við fyrirliðabandinu í hans fjarveru.
Fyrir leik
Ólafur Kristjáns um Breiðablik
Ólafur Kristjáns ræddi um tímabil Breiðabliks í aðdraganda leiksins við Fótbolta.net, meðal annars um ástæður óstöðugs gengis og hvað þyrfti að laga.
Fyrir leik
Þorkell Máni um Stjörnuna
Þorkell Máni ræddi við Fótbolta.net í aðdraganda leiksins um tímabil Stjörnunnar til þessa og hver næstu skref liðsins væru.
Fyrir leik
Stjarnan komið með mótherja í Evrópukeppninni
Í dag var dregið í 1. umferð undankeppni Sambandsdeildarinnar og var Stjarnan í pottinum. Liðið mun mæta Víkingi frá Götu, færeyskt lið sem endaði í 4. sæti í Betri deildinni á síðustu leiktíð.
Fyrir leik
Hvernig kemur Stjarnan inn í þennan leik?
Stjarnan datt út úr 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins gegn Aftureldingu eftir 1-3 tap í síðasta leik Jökuls sem þjálfari Stjörnunnar. En liðið situr í 9. sæti Bestu deildarinnar með einungis 10 stig eftir 10 leiki sem verður að teljast vera mikil vonbrigði. Síðasti leikur liðsins í deildinni var 1-3 útisigur gegn Þór sem eru þó í fallsæti en ljóst er að Stjarnan má ekki við fleiri slæmum úrslitum.

Fyrir leik
Hvernig koma Blikar inn í þennan leik?
Blikar tryggðu sér sæti í undanúrslitum Mjólkurbikarsins með 0-3 sigri gegn Ægi en þeirra bíða Íslandsmeistarar Víkinga sem þeir þurfa að fara í gegnum ef þeir ætla á Laugardalsvöll. Liðið er í 4. sæti Bestu deildarinnar með 15 stig eftir 9 leiki og eru 13 stig í efsta sætið. Í síðustu umferð var 4-3 tap gegn Fram niðurstaðan í mjög fjörugum leik en Blikar voru nálægt því að koma til baka úr 4-1 stöðu.

Fyrir leik
Frumraun þjálfarans
Eins og flestir vita þá var Jón Þór ráðinn sem nýr aðalþjálfari Stjörnunnar eftir að Jökull var rekinn í síðustu viku eftir slæmt gengi á tímabilinu. Jón Þór stýrði Vestra í síðustu þremur umferðum Bestu deildarinnar á síðasta ári en hann vann enn aðeins í kringum liðið á þessari leiktíð ásamt því að vera hjá Livey í umfjöllun um Lengjudeildina.

Fyrir leik
Dómarateymið
Dómari leiksins er Ívar Orri Kristjánsson, aðstoðardómararnir tveir eru Birkir Sigurðarson og Kristofer Bergmann og Þórður Þorsteinsson Þórðarson sér um hlutverk fjórða dómara. Gylfi Þór Orrason er dómaraeftirlitsmaður.

Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
5. Ívar Örn Árnason
8. Viktor Karl Einarsson (f)
9. Óli Valur Ómarsson
11. Aron Bjarnason
('77)
('77)
13. Anton Logi Lúðvíksson
15. Ágúst Orri Þorsteinsson
('77)
('77)
18. Davíð Ingvarsson
('27)
('27)
21. Viktor Örn Margeirsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson
('56)
('56)
30. Andri Rafn Yeoman
('77)
- Meðalaldur 28 ár
('77)
Varamenn:
99. Elmar Ágúst Halldórsson (m)
4. Ásgeir Helgi Orrason
('27)
('27)
6. Arnór Gauti Jónsson
('77)
('77)
10. Kristinn Steindórsson
('77)
('77)
16. Dagur Örn Fjeldsted
19. Kristinn Jónsson
('77)
('77)
29. Gabríel Snær Hallsson
33. Arnar Bjarki Gunnleifsson
('56)
('56)
45. Þór Andersen Willumsson
- Meðalaldur 23 ár
Liðsstjórn:
Ólafur Ingi Skúlason (Þ)
Jón Guðni Fjóluson (AÞ)
Brynjar Dagur Sighvatsson (Liðsstj.)
Dagur Elís Gíslason (Liðsstj.)
Haraldur Björnsson (MÞ)
Helgi Jónas Guðfinnsson (Styrktarþj.)
Emil Pálsson (AÞ)
Valgeir Viðarsson (Sjúkraþj.)
Gul spjöld:
Viktor Örn Margeirsson ('76)
Rauð spjöld:








