Tottenham vill Summerville - Juventus með augastað á Brobbey - Klopp hefur áhuga á þýska starfinu
Besta karla
Víkingur R.
LL 3
2
KA
2. deild kvenna
Fylkir
LL 6
0
ÍR
Víkingur R.
3
2
KA
Aron Elís Þrándarson '5 1-0
1-1 Hallgrímur Mar Steingrímsson '14
1-2 Hallgrímur Mar Steingrímsson '23
Aron Elís Þrándarson '81 2-2
Gylfi Þór Sigurðsson '94 , víti 3-2
02.07.2026  -  19:15
Víkingsvöllur
Besta karla
Dómari: Þórður Þorsteinsson Þórðarson
Byrjunarlið:
29. Aron Snær Friðriksson (m) ('60)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar ('82)
9. Helgi Guðjónsson ('46)
10. Gylfi Þór Sigurðsson
19. Óskar Borgþórsson
20. Tarik Ibrahimagic
21. Aron Elís Þrándarson
24. Davíð Örn Atlason ('76)
25. Valdimar Þór Ingimundarson
28. Elías Már Ómarsson ('76)
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
47. Ögmundur Kristinsson (m) ('60)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson ('76)
7. Erlingur Agnarsson
8. Viktor Örlygur Andrason ('82)
14. Jóhannes Kristinn Bjarnason
23. Nikolaj Hansen ('76)
35. Þorri Ingólfsson
54. Bjarki Már Ásmundsson
69. Ármann Ingi Finnbogason ('46)
- Meðalaldur 25 ár

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Aron Baldvin Þórðarson (AÞ)
Hajrudin Cardaklija (MÞ)
Rúnar Pálmarsson (Sjúkraþj.)
Viktor Bjarki Arnarsson (AÞ)
Kári Sveinsson (Styrktarþj.)
Þórir Ingvarsson (Liðsstj.)
Daníel Darri Arnarsson (Leikgr.)

Gul spjöld:
Aron Elís Þrándarson ('31)
Óskar Borgþórsson ('97)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Tæpt var það Frábær leikur í Víkinni. Súrt tap fyrir KA eftir frábæra endurkomu Víkinga. Viðtöl og skýrsla væntanlega
97. mín Gult spjald: Óskar Borgþórsson (Víkingur R.)
Fær gult spjald fyrir dýfu í vítateig gestanna. Hann er allt annað en sáttur
95. mín
KA nærri því búnir að jafna í restina, Ögmundur ver skot frá Birgi af stuttu færi
94. mín
Inn:Breki Hólm Baldursson (KA) Út:Oliver Heiðarsson (KA)
Oliver fer meiddur af velli
94. mín Mark úr víti!
Gylfi Þór Sigurðsson (Víkingur R.)
Víkingar að vinna þetta Sendir Stubb í vitlaust horn
93. mín Gult spjald: Kári Gautason (KA)
92. mín
Víti Víkingur fær víti, Kári brýtur á Óskari
91. mín
Fimm mínútum bætt við
90. mín Gult spjald: Diego Montiel (KA)
85. mín
Klaufagangur Boltinn skoppar á slánni, Stubbur ætlar að grípa boltann en missir hann eftir að hann lendir í smá árekstri. Boltinn hrekkur til Arons Elís sem reynir bakfallsspyrnu
82. mín
Inn:Diego Montiel (KA) Út:Guðjón Ernir Hrafnkelsson (KA)
82. mín
Inn:Kári Gautason (KA) Út:Jakob Héðinn Róbertsson (KA)
82. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Út:Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
81. mín MARK!
Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Óskar Borgþórsson
Þeir jafna! Óskar með baneitraðan bolta fyrir á Aron Elís. Hann á gott skot í nærhornið og Stubbur á ekki séns. Aron búinn að skila sér vel í boxið
78. mín
Nikolaj Hansen Gylfi með stórhættulegan bolta sem Niko Hansen nær til. Niko hittir hins vegar boltann illa og Sveinn Gísli er allt í einu kominn í dauðafæri. Hann kemur boltanum ekki í netið en það kom ekki að sök því hann var rangstæður.
77. mín Gult spjald: Jakob Snær Árnason (KA)
Enn og aftur er brotið á Ármanni, aukaspyrna á hættulegum stað
76. mín
Inn:Nikolaj Hansen (Víkingur R.) Út:Elías Már Ómarsson (Víkingur R.)
76. mín
Inn:Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.) Út:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
75. mín
Gestirnir komnir í lágblokk, þetta verður líklega sviðsmyndin það sem eftir lifir leiks
69. mín
Inn:Valdimar Logi Sævarsson (KA) Út:Danijel Dejan Djuric (KA)
69. mín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

66. mín
Víkingar halda áfram að banka Valdimar finnur Aron Elís sem er kominn í stórhættulega stöðu. Hann er frekar lengi að athafna sig en nær svo fínu skoti sem Stubbur ver vel
65. mín Gult spjald: Jeppe Pedersen (KA)
Rífur Aron Elís niður. Víkingur fær aukaspyrnu á fínum stað en Elías skallar boltann framhjá eftir fyrirgjöf Gylfa
62. mín
Frábær skyndisókn hjá KA, endar með skoti hjá Hallgrími.
KA fær hornspyrnu og Markús Máni skallar hann yfir af stuttu færi, Ögmundur náði að trufla hann.
60. mín
Inn:Ögmundur Kristinsson (Víkingur R.) Út:Aron Snær Friðriksson (Víkingur R.)
Börurnar voru mættar en Aron gengur útaf
59. mín
Mér sýnist þetta vera ökklinn
57. mín
Aron Snær sárþjáður Oliver lendir á Aroni sem liggur eftir. Samherjar hans horfa strax á bekkinn og biðja um skiptingu.
55. mín
Kraftmikil byrjun hjá Ármanni Frábær tilþrif hjá Ármanni sem leikur á nokkra áður en hann fær aukaspyrnu. Fyrirgjafarstaða!
53. mín
Víkingar að byrja seinni hálfleikinn vel, Elías keyrir upp vinstri kantinn og á laust skot/sendingu sem endar hjá Stubbi
51. mín
HÆTTA Ármann Ingi með sendingu út á Gylfi sem á skot í nærhornið rétt fyrir utan teig. Stubbur er fljótur niður og ver vel, Aron Elís er svo mættur í frákastið en skot/tækling hans fer útaf.
50. mín
Óskar með fína takta, á skot sem er skallað frá
46. mín
Inn:Ármann Ingi Finnbogason (Víkingur R.) Út:Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn Heimamenn gera eina breytingu í hálfleik
45. mín
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Gestirnir leiða í hálfleik. Tökum okkur 15
45. mín
9 hornspyrnur Víkingar hafa fengið níu hornspyrnur hingað til! Þær hafa allar verið gæðamiklar, eiginlega spurning um hvenær þeir fá mark úr einni.

Akkúrat þegar ég hrósa hornspyrnum Víkinga á Gylfi eina verstu hornspyrnu sem ég hef séð. Hún svífur yfir allan pakkann og beint í innkast.
43. mín
Hornspyrnu Gylfa fer á fjærstöngina á Davíð Örn sem skallar hann í bakið á Markúsi Mána
40. mín
Þjálfarar liðanna fara væntanlega missáttir inn í hálfleikinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
36. mín
Hans Viktor liggur eftir og fær aðhlynningu. Virðist hafa fengið eitthvað högg.
33. mín
Óskar með þrumuskot eftir hornspyrnu. Skotið fer í gegnum pakkann og í Aron Elís og útaf.
31. mín Gult spjald: Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Sparkar Danijel Djuric niður

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
29. mín Gult spjald: Oliver Heiðarsson (KA)
Brýtur á Tarik, réttur dómur
28. mín
Vandræðagangur Boltinn fer hátt upp í loftið í vítateig KA-manna. Stubbur hleypur út og ætlar að grípa hann. Hann kallar greinilega á Markús Mána sem hættir við að skalla frá. Stubbur er hins vegar of seinn til boltans og svo fer að boltinn rennur af Markúsi Mána og í hornspyrnu. Elías Már var nærri því að komast til boltans.
24. mín
Hallgrímur með sýningu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

23. mín MARK!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Stoðsending: Birgir Baldvinsson
KA leiðir! Hallgrímur Mar er með boltann í vítateig gestanna. Hann fær að klappa boltanum nokkrum sinnum áður en hann fer á hægri fótinn sinn og rennir boltanum í fjærhornið.

Slakur varnarleikur hjá Víkingi
21. mín
HÆTTA Elías á fínt skot sem Stubbur ver út í teiginn. Valdimar er svo ekki langt frá því að fylgja á eftir
17. mín
Baneitruð hornspyrna frá Helga. Boltinn er nálægt markinu en Stubbur rétt nær að kýla hann frá
14. mín MARK!
Hallgrímur Mar Steingrímsson (KA)
Stoðsending: Danijel Dejan Djuric
Gestirnir jafna Hallgrímur á skot fyrir rétt fyrir utan vítateig. Skot hans fer af Tarik og svífur yfir Aron í markinu sem kemur engum vörnum við.

Þetta var fyrsta skot gestanna sem voru þó farnir að ógna.
13. mín
Hafliði Breiðfjörð er á vellinum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

10. mín
Leikurinn í jafnvægi núna eftir að Víkingur komst yfir
5. mín MARK!
Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
Þetta lá í loftinu! Helgi lyftir boltanum fyrir markið þar sem Aron Elís er einn og yfirgefinn. Hann á fastan skalla framhjá Stubbi í markinu.

Víkingar að mæta grimmir til leiks
4. mín
Mikill darraðardans í teig KA-manna eftir hornspyrnuna. Gestirnir ná loksins að hreinsa frá
3. mín
Heimamenn fá fyrstu hornspyrnu leiksins
1. mín
Leikur hafinn
Hallgrímur Mar sparkar þessum leik af stað
Fyrir leik
Fyrir leik
Karl Friðleifur er í banni Ástæðan fyrir því að Karl Friðleifur er ekki með er sú að hann tekur út leikbann.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Sölvi gerir fimm breytingar á sínu liði frá tapleiknum gegn Breiðabliki. Haddi gerir tvær. Þeir Daníel Hafsteinsson og Karl Friðleifur Gunnarsson er ennfremur utan hóps ásamt Sveini Margeiri, leikmanni KA.

Fyrir leik
Fyrirliðinn spáir stórsigri Helga Rut Einarsdóttir, fyrirliði U19 landsliðs kvenna, spáir fyrir leiki umferðarinnar. Varnarmaðurinn er sem stendur í Bosníu á lokakeppni Evrópumótsins með U19.

Víkingur R. 4 - 0 KA
„Víkingar mæta KA eftir tap í bikar á móti Breiðabliki. Öruggur sigur hjá Víking."


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Víkingur Yfirburðir Víkinga hafa verið gífurlegir í sumar. Liðið hefur unnið 12 leiki og gert eitt jafntefli í 13 leikjum og eru með 9 stiga forskot á toppi deildarinnar. Víkingar fengu alvörunni próf í júní þar sem þeir mættu KR, Fram og Breiðabliki. Það má segja að þeir hafi staðist prófið, Víkingar unnu leikina þrjá með markatöluna 11 - 1. Liðið fékk hins vegar skell um helgina þegar það tapaði 3 - 0 gegn Breiðabliki í undanúrslitum bikarsins. Víkingar mæta því væntanlega hungraðir í þennan leik.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fara Akureyrarliðin saman niður? Í Innkastinu var rætt um slæmt gengi hjá Akureyrarliðunum Þór og KA í Bestu deildinni.

Fyrir leik
KA Norðanmenn hafa verið í vandræðum í sumar. Félagið styrkti sig fyrir tímabilið og stefnan sett á top 6 í Brekkunni. Sóknarmennirnir Danijel Djuric og Oliver Heiðarsson sem að liðið sótti hafa hins vegar spilað undir getu ásamt öðrum og KA er nú 10. sæti deildarinnar með 10 stig. Liðið er búið að tapa 5 leikjum í röð og ljóst að verkefnið á eftir verði mjög erfitt. Það hefur vantað stöðugleika í leik liðsins það sem af er, eftir að hafa varist ágætlega í byrjun móts hefur liðið fengið á sig 15 mörk í síðustu fjórum leikjum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
13. umferðin fimmtudagur 2. júlí

17:00 Þór-KR (VÍS völlurinn)

19:15 Víkingur R.-KA (Víkingsvöllur)



föstudagur 3. júlí

19:15 FH-Stjarnan (Kaplakrikavöllur)



laugardagur 4. júlí

14:00 ÍA-Breiðablik (ELKEM völlurinn)

16:00 ÍBV-Valur (Hásteinsvöllur)


mánudagur 6. júlí

19:15 Keflavík-Fram (HS Orku völlurinn)
Fyrir leik
Verðlaunaðir Víkingar Víkingur átti frábæran júnímánuð í Bestu deildinni en liðið vann KR, Fram og Breiðablik. Það kemur ekki á óvart að leikmaður mánaðarins kemur úr röðum Víkings og þá á liðið meirihluta leikmanna í úrvalsliði umferða 1-11.



Fyrir leik
Dómarateymið Þórður Þorsteinsson Þórðarson dæmir leikinn í kvöld. Honum til aðstoðar verða Gylfi Már Sigurðsson og Ronnarong Wongmahadthai á flöggunum. Róbert Þór Guðmundsson er fjórði dómari og Halldór Breiðfjörð Jóhannsson er dómaraeftirlitsmaður.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Sú allra besta Góða kvöldið kæru lesendur og verið þið velkomnir í þessa þráðbeinu textalýsingu frá Víkingsvellinum. Hér munu Víkingur og KA etja kappi í 13. umferð Bestu deildarinnar. Þess ber að nefna að Víkingur leikur í Evrópu í ár og eru því að leika sinn fjórtanda leik í sumar rétt eins og önnur Evrópulið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Byrjunarlið:
13. Steinþór Már Auðunsson (m)
2. Birgir Baldvinsson
8. Jeppe Pedersen
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
14. Danijel Dejan Djuric ('69)
15. Oliver Heiðarsson ('94)
16. Jakob Héðinn Róbertsson ('82)
23. Markús Máni Pétursson
28. Hans Viktor Guðmundsson (f)
29. Jakob Snær Árnason
30. Guðjón Ernir Hrafnkelsson ('82)
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Ívar Arnbro Þórhallsson (m)
3. Kári Gautason ('82)
19. Breki Hólm Baldursson ('94)
20. Diego Montiel ('82)
21. Mikael Breki Þórðarson
32. Sigurður Nói Jóhannsson
44. Valdimar Logi Sævarsson ('69)
75. Ívar Logi Jóhannsson
91. Snorri Kristinsson
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Hallgrímur Jónasson (Þ)
Egill Daði Angantýsson (AÞ)
Nicklas Cleemann Rulle (MÞ)
Atli Sveinn Þórarinsson (AÞ)

Gul spjöld:
Oliver Heiðarsson ('29)
Jeppe Pedersen ('65)
Jakob Snær Árnason ('77)
Diego Montiel ('90)
Kári Gautason ('93)

Rauð spjöld: