Elías Már valinn leikmaður júnímánaðar

Elías Már Ómarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elías Már Ómarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elías Már Ómarsson sóknarmaður Víkings hefur verið valinn leikmaður júnímánaðar í Bestu deildinni.
Víkingar áttu magnaðan mánuð í Bestu deildinni og unnu KR, Fram og Breiðablik. Elías skoraði þrennu á móti Fram og er markahæstur í deildinni með tólf mörk.
Þrír leikmenn voru tilnefndir sem leikmaður mánaðarins og koma þeir allir frá Víkingi. Elías hlaut 42% atkvæða, Helgi Guðjónsson 31% og Gylfi Þór Sigurðsson 27%. Kosningin fór fram á heimasvæði Fótbolta.net á Instagram.

TENGT EFNI
Kennie valinn leikmaður maímánaðar
„Síðan ég kom hefur mér bara liðið mjög vel og það hafa allir bara tekið vel á móti manni. Ég hef aldrei verið í jafn góðu liði eins og hérna, ekki bara leikmennirnir heldur fólkið í kring, það eru allir frábærir. Þetta er bara mjög ljúft," sagði Elías við Fótbolta.net í júlí en hann gekk í raðir Víkings fyrir tímabilið og hefur leikið mjög vel.