Liverpool opið fyrir því að selja Van Dijk - Tveir á óskalista Man Utd - Suzuki til Leeds?
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 3
3
Völsungur
Besta karla
ÍBV
LL 1
0
Valur
Besta karla
ÍA
LL 1
2
Breiðablik
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 0
0
Vestri
EM U19 kvenna - Riðill B
Ísland
LL 3
4
Sviss
ÍBV
1
0
Valur
Alex Freyr Hilmarsson '58 1-0
Hólmar Örn Eyjólfsson '65
04.07.2026  -  16:00
Hásteinsvöllur
Besta karla
Aðstæður: Sól og smá gola.
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Byrjunarlið:
33. Ari i Haraldstovu Petersen (m)
4. Mattias Edeland
6. Milan Tomic
7. Sesar Örn Harðarson ('75)
8. Bjarki Björn Gunnarsson ('81)
22. Eiður Atli Rúnarsson ('81)
23. Arnór Ingi Kristinsson
25. Alex Freyr Hilmarsson (f)
26. Felix Örn Friðriksson
27. Róbert Elís Hlynsson ('69)
30. Vicente Valor
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
3. Alexander Örn Friðriksson
5. Sturla Sagatun-Kristjánsson
10. Viggó Valgeirsson ('75)
11. Þorri Heiðar Bergmann
14. Arnar Breki Gunnarsson ('81)
17. Emil Gautason
28. Heiðmar Þór Magnússon
42. Pisco ('81)
67. Omar Sowe ('69)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Aleksandar Linta (Þ)
Jakob Fannar Möller (Liðsstj.)
Óskar Elías Zoega Óskarsson (AÞ)
Filipe Andre Alexandre Machado (MÞ)
Björgvin Eyjólfsson (Sjúkraþj.)
Branisalv Bajic (AÞ)
Elías Árni Jónsson (Styrktarþj.)
Guðrún Ágústa Möller (Forráðam.)

Gul spjöld:
Bjarki Björn Gunnarsson ('41)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
ÍBV sigur í miklum baráttuleik. Eyjamenn á skrið.
94. mín Gult spjald: Albin Skoglund (Valur)
Brot
93. mín
Vicente reynir að þræða Omar í gegn en sendingin alltof löng og endar hjá Frederik. Illa farið með gott upphlaup.
92. mín Gult spjald: Tryggvi Hrafn Haraldsson (Valur)
91. mín
Darraðardans inn á teig Valsmanna sem endar á því að Omar kemur sér í skotfæri en Valsmenn kasta sér fyrir boltann og kom honum í burtu.
90. mín
+7 í uppbótartíma.
87. mín
Albin fékk sendingu inn á teiginn og var næstum sloppinn í gegn en Eyjamenn bægja hættunni frá.
86. mín
Arnar Breki fær boltann hægra megin og er alveg einn. Hann keyrir að teignum og lætur vaða rétt fyrir utan teig en skotið hans er beint á Frederik.

Eyjamenn hefðu líklega getað gert aðeins betur í þessu upphlaupi.
84. mín
Inn:Gunnar Karl Heiðdal (Valur) Út:Bjarni Mark Duffield (Valur)
83. mín
Tryggvi í fær! Tryggi Hrafn er allt í einu aleinn í gegn á móti Ara en skotið hans er alveg skelfilegt, beint á Ara.

Tryggði hefði getað gert svo mikið betur þarna!
82. mín
Mathias með langa sendingu í gegn ætlaða Omar Sowe en flaggið fer á loft.
81. mín
Inn:Pisco (ÍBV) Út:Eiður Atli Rúnarsson (ÍBV)
81. mín
Inn:Arnar Breki Gunnarsson (ÍBV) Út:Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
79. mín
Inn:Emil Nönnu Sigurbjörnsson (Valur) Út:Ingimar Torbjörnsson Stöle (Valur)
79. mín
Frábærlega spilað hjá ÍBV. Bjarki kemur svo boltanum á Arnór Inga sem er kominn upp að endamörkum og kemur með fyrirgjöf. Valsmenn skalla boltann út beint fyrir fætur Alex. Hann tekur skotið í fyrsta en það er yfir markið.
75. mín
Inn:Viggó Valgeirsson (ÍBV) Út:Sesar Örn Harðarson (ÍBV)
74. mín
OMAR SOWE !!! Omar fékk boltann inn á teig Valsmanna frá Sesari sem er kominn í gott skotfæri. Hann tekur skotið en Frederik ver frábærlega frá honum og Eyjamenn fá hornspynrnu.
73. mín
Vel spilað hjá Eyjamönnum. Vicente kemur svo boltanum í gegn á Sesar en Sesar rennur og nær ekki að koma með fyrirgjöfina.
70. mín
BJARKI! Omar Sowe nýkominn inn á og vinnur boltann ofarlega á vellinum. Hann kemur boltanum á Bjarka og hann keyrir áfram og tekur skotið rétt fyrir utan teig en fram hjá markinu.
69. mín
Inn:Omar Sowe (ÍBV) Út:Róbert Elís Hlynsson (ÍBV)
69. mín
Inn:Ólafur Flóki Stephensen (Valur) Út:Kristján Oddur Kristjánsson (Valur)
69. mín
Inn:Jakob Franz Pálsson (Valur) Út:Samúel Kári Friðjónsson (Valur)
66. mín
Valur fær hornspyrnu. Tryggvi með spyrnuna sem Eyjamenn hreinsa. Kom svo skot fyrir utan teig sem Ari grípur.
65. mín Rautt spjald: Hólmar Örn Eyjólfsson (Valur)
Valsmenn voru að fara að taka innkast og Hólmar virtist ýta Alex Frey og fær beint rautt spjald.
64. mín
FÆRI HJÁ VAL!! Kom langt innkast inn á teig ÍBV og Markus nær skallanum en Ari í marki Eyjamanna er vel á verði og nær að verja frá honum.
61. mín
Bjarki Björn er sestur niður og fær aðhlynningu.
58. mín MARK!
Alex Freyr Hilmarsson (ÍBV)
Stoðsending: Bjarki Björn Gunnarsson
Eyjamenn leiða!! Bjarki kom með fyrirgjöf frá hægri á Alex Freyr sem stendur á markteignum. Alex tekur eina snertinu og Fredrik Schram fipast eitthvað til og Alex klárar örugglega fram hjá honum.
1-0!!
56. mín Gult spjald: Bjarni Mark Duffield (Valur)
Brýtur á Bjarki Birni á miðjum vellinum.
55. mín
Samúel Kári kemur með fyrirgjöf frá hægri vængnum en hún er slök og fer beint aftur fyrir markið.
53. mín
Fínasta hornspyrnua frá Tryggva sem Ari nær að slá í burtu.
52. mín
Valur fær hornspyrnu Tryggvi Hrafn með spyrnuna inn á teiginn og Eiður Atli setur boltann aftur fyrir.
51. mín
Kristján Oddur reynir að finna Tryggva Hrafn í hlaupinu en Eiður Atli gerir vel og er fyrstur á boltann. Valsmenn fá svo aukaspyrnu í kjölfarið.
49. mín
Valur fær aukaspyrnu á miðjum vellinum.
48. mín
Alex kom með langan bolta fram á Sesar. Hann kemur boltanum á Vicente inn á teig Vals en hann nær ekki að koma sér í almenntilegt skotfæri. Færið rennur út á sandinn.
45. mín
Seinni hálfleikur hafinn Þetta er farið í gang aftur!

Vonandi verður seinni hálfleikur skemmtilegri.
45. mín
Hálfleikur
Frekar þurr leikur í raun
45. mín
Uppbótartími er ein mínúta
41. mín Gult spjald: Bjarki Björn Gunnarsson (ÍBV)
Fyrir brot á valarhelmngi Vals
39. mín
Töluverður atgangur í teig Eyjamanna án þess að úr verður færi
36. mín
Önnur hornspyrna ÍBV í leiknum enn Valsmenn koma knettinum í burtu
35. mín
Enn nokkuð rólegt fyrir framan mark liðanna
32. mín
Önnur aukaspyrna Tryggva af svipuðu færi og áðan og aftur koma Eyjamenn boltanum í burtu
30. mín
Milan Tomic með gott skot af löngu færi en rétt yfir
27. mín
Vicente með gott skot fyrir utan teig en rétt framhjá
25. mín
Fátt um fína drætti þessa stundina
24. mín
Tryggvi með aukaspyrnu utan af kanti en Eyjamenn koma þessu í burtu
23. mín
Sesar með fínt skot úr teignum en Fredrik ver vel
19. mín
Tryggvi Hrafn reyndi sendingu aftur fyrir vörn ÍBV en Edeland varðist vel
17. mín
Vicente skot úr teignum en beint á Fredrik
15. mín
Fyrsta honspyrna leiksins Varð ekkert úr henni hjá ÍBV
13. mín Gult spjald: Myles A Veldman (Valur)
Brot á miðjum velli
12. mín
Hörkustemmari ápöllunum
7. mín
ÍBV með aukaspyrnu Rétt yfir hjá Vicente
5. mín
Liðin að þreifa fyrir sér í byrjun
1. mín
Leikur hafinn ÍBV byrjaði leikinn
Fyrir leik
Liðin að gera sig klár Liðin eru að gera sig tilbúin að labba inn á völlinn, þetta fer að fara af stað!
Guðmundur Jónasson
Fyrir leik
Byrjunarliðin Valur gera 2 breytingar frá 4-2 sigrinum á Þór í síðustu umferð út fara Hörður Ingi Gunnarsson og Jónatan Ingi Jónsson og inn fyrir þá koma Kristján Oddur Kristjánsson og Bjarni Mark.

ÍBV gera eina breytingu á sínu liði frá 1-1 jafntefli gegn FH í síðustu umferð inn í liðið kemur Milan Tomic fyrir Liam Daða Jeffs.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðmundur Jónasson
Fyrir leik
Valur er í fimmta sæti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



Valsmenn sitja í fimmta sæti Bestu deildarinnar. Þeir unnu Þór í síðustu umferð en fyrir leikinn voru örlög Hermanns Hreiðarssonar ráðin. Þetta var langþráður sigur fyrir Val sem er með 19 stig, 21 stigi frá toppliði Víkings.
Fyrir leik
Þegar liðin mættust í apríl Valur vann 2-1 sigur. Felix Örn Friðriksson kom Val yfir en Lúkas Logi Heimsson og Hólmar Örn Eyjólfsson skoruðu mörk Vals.
Fyrir leik
Eyjamenn taplausir í fimm leikjum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stigasöfnunin hjá heimamönnum í ÍBV hefur verið ansi fín að undanförnu, eftir erfiða byrjun. Eyjamenn gerðu 1-1 jafntefli gegn FH í síðustu umferð. Eftir þann leik var Aleksandar Linta þjálfari ÍBV spurður út í komandi leik gegn Val.


„Líka mjög erfiður leikur, við trúum á okkur sjálfa, áttum góðan leik gegn þeim síðast en töpuðum. Reynum að ná í sömu frammistöðu en aðeins öðruvísi niðurstöðu og þá verð ég sáttur," sagði Linta en Valur vann 2-1 þegar liðin mættust á Hlíðarenda 17. apríl.


Leikmannaglugginn opnar eftir tvo leiki hjá ÍBV eða þann 16. júlí. „Stjórnin sér um þær aðstæður, ég held að ef við finnum eitthvað sem hentar okkur þá munu þeir bregðast við og styrkja liðið fyrir seinni hluta tímabilsins," segir Linta. ÍBV er í níunda sæti.
Fyrir leik
Twana með flautuna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Twana Khalid Ahmed dæmir leikinn í dag. Egill Guðvarður Guðlaugsson og Antoníus Bjarki Halldórssons sigldu með honum í Herjólfi og eru aðstoðardómarar dagsins.
Fyrir leik
Vestmannaeyjar heilsa!
Mynd: ÍBV

Leikur ÍBV og Vals í 13. umferð Bestu deildarinnar verður flautaður á klukkan 16:00! Það er spenna í lofti og ég ætla að lofa hörkuleik og mikilli skemmtun!
Byrjunarlið:
18. Frederik Schram (m)
4. Markus Lund Nakkim
6. Bjarni Mark Duffield ('84)
11. Ingimar Torbjörnsson Stöle ('79)
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
13. Kristján Oddur Kristjánsson ('69)
14. Albin Skoglund
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
17. Lúkas Logi Heimisson
24. Myles A Veldman
28. Samúel Kári Friðjónsson ('69)
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
25. Stefán Þór Ágústsson (m)
95. Tómas Blöndal-Petersson (m)
8. Jónatan Ingi Jónsson
16. Loki Kristjánsson
21. Jakob Franz Pálsson ('69)
26. Emil Nönnu Sigurbjörnsson ('79)
30. Gunnar Karl Heiðdal ('84)
37. Stefan Tufegdzic
66. Ólafur Flóki Stephensen ('69)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Chris Brazell (Þ)
Örn Erlingsson (Liðsstj.)
Hilmar Andrew McShane (Styrktarþj.)
Baldvin Orri Friðriksson (Leikgr.)
Kirian Elvira Acosta (Styrktarþj.)
Emil Alexander Larsen (MÞ)
Halldór Eyþórsson (Liðsstj.)
Einar Óli Þorvarðarson (Sjúkraþj.)

Gul spjöld:
Myles A Veldman ('13)
Bjarni Mark Duffield ('56)
Tryggvi Hrafn Haraldsson ('92)
Albin Skoglund ('94)

Rauð spjöld:
Hólmar Örn Eyjólfsson ('65)