SKÝRSLAN: Garðar býr til martraðir fyrir Leikni
Hvað réði úrslitum?
Skalli Garðars Gunnlaugssonar var augljóslega það sem réði úrslitum. Garðar hefur nú skorað fjögur mörk á móti Leikni í síðustu þremur leikjum liðanna og líður greinilega vel í Breiðholtinu. Um var að ræða iðnaðarleik þar sem fallegur fótbolti var lítt sjáanlegur og gat þetta dottið báðum m
Bestu leikmenn
1. Arnór Snær Guðmundsson
Miðvörðurinn ungi í liði skagamanna var öruggur í sínum aðgerðum og spilaði virkilega vel. Verður fróðlegt að fylgjast með honum í sumar.
2. Árni Snær Ólafsson
Markmaður ÍA er orðinn þrusumarkmaður og hefur greinilega haft gott að því að hafa Gumma Hreiðars sem sinn mentor í vetur. Öruggur í öllu sem hann gerði.
Atvikið
Fyrsti heimaleikur Leiknis í efstu deild og þeir gerðu vel. Gengu ungir iðkenndur með rætur til yfir 20 þjóðlanda inn á völlinn með leikmönnum. Stuðningsmenn Leiknis, Leiknisljónin fylltu stúkuna og sungu og trölluðu allan leikinn. Flott umgjörð og vel gert í alla staði.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að báðir nýliðarnir eru komnir á blað með sigur í Pepsí deildinni 2015 og hlýtur það að vera ágætis punktur fyrir framhaldið hjá báðum liðum.
Vondur dagur
Elvar Páll Sigurðsson hefur leikið undir væntingum í fyrstu leikjum mótsins. Lykilmenn Leiknis geta betur. Hilmar Árni fékk fín skotfæri og átti að setja mark í kvöld og Eyjólfur markvörður leit ekki vel út í markinu sem ÍA skoraði.
Dómarinn - 8
Erlendur átti fínan leik. Leyfði boltanum að rúlla og var agaður og sanngjarn í sínum aðgerðum.



