SKÝRSLAN: Guðjón Pétur bjargaði stigi fyrir Breiðablik
Hvað réði úrslitum?
Skemmtilegur leikur í Kópavogi. Gott skot frá Guðjóni sem að Stefán Logi hefði kannski átt að taka réði því að liðin skiptu stigunum á milli sín hér í kvöld. Frábær leikur samt sem áður.
Bestu leikmenn
1. Sören Fredriksen
Var sprækur og kórónaði leik sinn með góðu marki sem kom KR í 2-1.
2. Gunnleifur Gunnleifsson
Greip vel inn í það sem að hann átti að grípa og hann fær þessa nafnbót vegna vörslunnar sem að hann tók þegar að Óskar Örn skaut og boltinn var á leið efst í hornið. Þvílík varsla.
Atvikið
Þegar að Arnór Sveinn ætlaði að setja boltann til baka á Gunnleif en sendingin varð of laus og Óskar Örn komst inn í sendinguna og skoraði rétt fyrir hálfleiksflautið. Blaut tuska í andlit Blika.
Hvað þýða úrslitin?
KR eru einungis komnir með 1 stig eftir 2 leiki sem að er ekki ásættanlegt í Vesturbænum. Eru strax komnir 5 stigum á eftir FH og Stjörnunni. En enn er þó mikið eftir af mótinu. Blikar halda áfram að gera jafntefli í Pepsi-deildinni. En þeir hafa ekki enn tapað sem er þó ágætt.
Vondur dagur
Arnór Sveinn gerði ekki vel í fyrra marki KR-inga en var stabíll í sinni spilamennski eftir það. Einnig sást lítið til miðjumanna KR í þessum leik.
Dómarinn - 6
Spjaldaði Damir ranglega. En var annars ágætur.



