Fotbolti.net
Jóhann Ingi Hafþórsson
Pepsi-deild karla 2015
Fjölnisvöllur
Völlurinn er fínn. Sól a lofti en nokkuð kalt samt sem áður
Fjölnir
Fjölnir
1 - 1
Fylkir
Fylkir
Guðmundur Karl Guðmundsson 35'1 - 01 - 190' Tonci Radovinkovic
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 1114

SKÝRSLAN: Fjölnismenn klaufar er Fylkir bjargaði jafntefli

Hvað réði úrslitum?

Fjölnir voru betri aðilinn mest allan leikinn en tókst ekki að ganga frá Fylkisliðinu þrátt fyrir að hafa fengið tækifæri til þess. Þeir féllu síðan full langt til baka í síðari hálfleik og fengu það í bakið er þeir fengu á sig afar klaufalegt mark úr föstu leikatriði.

Bestu leikmenn

1. Aron Sigurðarson

Aron var stórhættulegur allan leikinn en þessi strákur hefur byrjað afar vel í sumar.

Hann er flottur á boltanum og er ófeiminn við að ráðast á varnir mótherjanna og skapa hættu.

2. Guðmundur Karl Guðmundsson

Guðmundur var flottur á miðjunni hjá Fjölni og var duglegur að sækja upp völlinn, hann gaf góðar sendingar og var ógnandi.

Hann skoraði síðan frábært mark í fyrri hálfleik.

Atvikið

Fjölnismenn voru betri aðilinn í kvöld og það hlítur að vera afar svekkjandi fyrir þá að hafa ekki fengið þrjú stig.

Atvik kvöldsins er jöfnunarmark Fylkis en það kom í blálokin og dekkningin hjá Fjölnismönnum var ekki nægilega góð og voru þeir hreinlega klaufar að tapa þessu niður.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnismenn fara frekar vel af stað í Pepsi deildinni í ár, margir höfðu spáð þeim neðarlega í deildinni og jafnvel falli. Fjögur stig úr tveimur leikjum er meira en flestir bjuggust við og miðað við fyrstu tvo leikina þá er liðið ekki að fara að falla.

Það var búist við meira af Fylkismönnum, en tvö stig úr tveimur leikjum getur ekki talist nægilega gott miðað við væntingarnar þar á bæ. Þeir geta þó huggað sig við það að vera taplausir, naumlega þó, eftir leik kvöldsins.

Vondur dagur

Bjarni Þórður Halldórsson mun ekki vilja sjá markið sem Guðmundur Karl skoraði á ný.

Skotið var gott en það fór nánast beint á Bjarna en honum tókst ekki að verja það samt sem áður. Markmaður eins og Bjarni á að verja svona skot allan daginn.

Dómarinn - 7

Fjölnismenn voru ósáttir við hversu mikið Vilhjálmur flautaði á þeirra menn.

Vilhjálmur stóð sig hins vegar vel og var það meira eigin klaufaskapur hjá Fjölni að brjóta mikið af sér. Hann hafði mikla stjórn á leiknum og stóð sig með prýði.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.