Fotbolti.net
Gunnar Birgisson
Gunnar Birgisson
Pepsi-deild karla 2015
Leiknisvöllur
Þoka, rigning og smá gola.
Leiknir R.
Leiknir R.
2 - 0
Víkingur R.
Víkingur R.
Sindri Björnsson 32'1 - 0Charley Roussel Fomen 62'2 - 0
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson
Áhorfendur: 785

SKÝRSLAN: Aggressívir Leiknismenn

Hvað réði úrslitum?

Leiknismenn mættu til leiks á 1.mínútu á meðan Víkingar byrjuðu leikinn í seinni hálfleik. Það var augljóst að Leiknir ætluðu að kæfa leikinn snemma og þeim tókst það.

Bestu leikmenn

1. Charley Fomen

Var gífurlega öflugur í sínum aðgerðum sóknarlega og varnarlega. Skoraði svo stórgott mark.

2. Óttar Bjarni Guðmundsson

Hreint lak og flottur leikur hjá Óttari í dag, sá um að stoppa margar sóknir Víkinga og var grimmur í návígum, tapaði ekki mörgum.

Atvikið

Aukaspyrnan hjá Fomen. Ef netið hefði ekki stoppað boltann þá hefði hann sennilega aldrei stoppað. Greinilega mikill sprellikall hann Fomen, kom dansandi og hoppandi inn í klefa eftir leik.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknismenn eru með 8.stig einungis tveimur stigum frá toppnum, draumabyrjun hjá nýliðunum þrátt fyrir að hafa tapað fyrir ÍA í nýliðaslagnum.

Víkingar hins vegar að tapa sínum fyrsta leik í deildinni.

Vondur dagur

Umgjörð Leiknis og þá sérstaklega aðstaða fjölmiðla fær algjörlega falleinkunn í dag. 5 fjölmiðlamenn enduðu á því að deila tveimur litlum gluggum á milli sín. Leiknir voru ekki að fara upp um deild í gær, þeir hafa haft nægan tíma til að gera þetta klárt og ekki hægt að finna margar afsakanir fyrir þessu.

Dómarinn - 8

Flottur leikur hjá Vilhjálmi í dag, hafði hemil á leiknum, setti línu snemma í leiknum og hélt sig við hana.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.