SKÝRSLAN: Stórleikurinn endaði jafn í skemmtilegum leik
Hvað réði úrslitum?
Stjarnan komst yfir snemma leiks en féllu full langt til baka eftir markið og FH-ingar byrjuðu að taka völdin.
Þeim var síðan loksins verðlaunað í seinni hálfleik. FH-ingar fengu betri færi en tókst ekki að nýta þau til að tryggja sér stigin þrjú.

Bestu leikmenn
1. Gunnar Nielsen
Færeyingurinn var frábær á milli stanganna hjá Stjörnunni í kvöld. Hann varði nokkrum sinnum virkilega vel og hélt sínum mönnum í leiknum.
Án Gunnars hefði Stjarnan ekki fengið stig úr þessum leik.

2. Davíð Þór Viðarsson
Davíð Þór var virkilega góður í dag. Hann átti mikið af flottum sendingum sem og að vera mjög sterkur varnarlega þar sem hann vann sinn skerf af tæklingum.
Atvikið
Kassim \"The Dream\" Doumbia skoraði mark FH en hann kom svo sannarlega til baka eftir að hafa fengið dæmt á sig víti sem kostaði FH íslandsmeistaratitilinn á síðustu leiktíð. Hann fór í kjölfarið í fjögurra leikja bann en kom til baka í dag og skoraði.
Á síðustu augnablikum leiksins hefði hann getað skorað aftur en Gunnar Nielsen varði meistaralega.

Hvað þýða úrslitin?
Stjörnumenn eru enn taplausir í deildinni en þeir fóru taplausir í gegnum deildina á síðustu leiktíð. Þeirra runa heldur því áfram. Þeir eru í þriðja sæti og virðast ætla að vera með í toppbaráttunni í ár eins og við var að búast.
FH-ingar skelltu sér á toppinn með sigri en þeir eru með 10 stig. Heimir Guðjóns var samt sem áður ekki nógu sáttur og vildi hann vera með 12 í hið minnsta.

Vondur dagur
Fyrir fólk sem hélt sér heima og fór ekki á leik kvöldsins.
Þarna voru tvö af bestu liðum landsins að skemmta áhorfendum með mjög góðum fótboltaleik. Ekki skemmdi fyrir að stemningin í stúkunni var frábær hjá báðum liðum.

Dómarinn - 7
Garðar Örn dæmdi leikinn heilt yfir vel.
Hann lét leikinn fljóta þegar það átti við og lyfti gula spjaldinu upp tvisvar og var það í báðum atvikum rétt. Ólafur Karl vildi fá víti í fyrri hálfleik sem Garðar dæmdi ekkert á og var það réttur dómur.
Sumir voru óánægðir við að mark sem Atli Guðnason skoraði stóð ekki en Garðar dæmdi aukaspyrnu. Raunin var sú að Stjörnumenn voru hættir því þeir vissu að Garðar hafði dæmt. Heilt yfir komst hann vel frá sínu.