SKÝRSLAN: Áætlun Hermanns gekk upp
Hvað réði úrslitum?
Vinnsla Fylkismanna. Þeir börðust fyrir hverjum einasta bolta og gáfust aldrei upp. Spilamennskan ekki sú besta oft á tíðum fram á við en áttu góðar skyndisóknir í síðari hálfleik. Gáfu Blikum nánast engin færi á sér.
Bestu leikmenn
1. Tonci Radovinkovic (Fylkir)
Var frábær í miðverðinum, steig varla feilspor og vann alla skallabolta. Blikar fengu hátt í 12 hornspyrnur í leiknum en fengu ekkert upp úr þeim þar sem Tonci og Ásgeir Eyþórsson áttu alla bolta á teignum.
2. Ásgeir Eyþórsson (Fylkir)
Miðverðir Fylkis stóðu einfaldlega upp úr í dag. Mikil vinnsla á öllu liðinu en enginn sem var sérstaklega góður fram á við. Oliver Sigurjóns bestur hjá Blikum en Ásgeir var betri.
Atvikið
Frábært mark Alberts Brynjars eftir sendingu Hákons Inga innfyrir. Lagði boltann snyrtilega yfir Gulla í markinu.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn eru komnir upp í 5. sæti og geta með fleiri góðum úrslitum mögulega farið að krafsa í topp fjögur liðin sem virtust ætla að slíta sig frá. Blikar missa af frábæru tækifæri að komast í 2. sætið og vera stigi frá KR-ingum í því fyrsta en þeir mæta einmitt KR í næsta leik.
Vondur dagur
Ellert Hreinsson gat lítið í dag og það kom ekki mikið út úr honum. Fylkismenn auðvitað þéttir og erfitt fyrir hann að finna svæði en hann virðist þó vera veiki hlekkurinn á þessu Blikaliði eins og hann hefur verið að spila í sumar.
Dómarinn - 6,5
Lítið út á hann að setja svo sem. Engin stór mistök en hefði mátt spjalda Fylkismenn fyrr. Ragnar Bragi hefði mátt fjúka útaf, átti að fá gult fyrir fyrsta brotið sitt og eftir það fylgdu fjögur í viðbót áður en hann fékk það. Svo braut hann aftur af sér klaufalega á spjaldi þar sem hann hefði getað fokið.



