SKÝRSLAN: Valsmenn léttir á Ghetto grund
Hvað réði úrslitum?
Valsmenn voru graðari en Leiknismenn þegar kom að færum og sóknum á síðasta þriðjung vallarins, gott dæmi markið hjá Kristni Inga, vantaði bit frá Leikni fram á við.
Bestu leikmenn
1. Patrick Pedersen
Hljóp á við tvo og var gjörsamlega frábær, átti stóran þátt í marki Valsmanna. Var að koma niður til að fá boltann og dreifa spilinu og svo var hann einnig duglegur að fá boltann í gegn, topp senter sem á stóran þátt í velgengni Vals þessa dagana.
2. Kristján Páll Jónsson
Ekki algengt að velja mann í tapliðinu sem annan af bestu mönnum leiksins en í þetta skiptið er ekki annað hægt. Kristján Páll var á tímabili eini leikmaður Leiknis með lífsmarki, var duglegur að koma sér í boltann og skapaði hættu með fyrirgjöfum og hraðanum sínum.
Atvikið
Ansi skemmtilegt atvik þegar Iain Williamsson meiðist og er í þann mund að fara að fá skiptingu þá vildu Bjössi og Óli Jó teygja lopann örlítið og sögðu honum að leggjast í grasið og fá aðhlynningu svo Baldvin Sturlu gæti gert sig kláran, Erlendur lét ekki gabba sig og vísaði Iain beint útaf. Góð tilraun engu að síður.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn halda áfram að vera sjóðandi heitir og hafa ekki tapað knattspyrnuleik síðan 20.maí, á hinn bóginn hafa Leiknir ekki unnið leik síðan 26.maí, þeir eru í fallsæti eins og staðan er núna.
Vondur dagur
Fyrir sóknarlínu Leiknis, þeim vantar einfaldlega einhvern X-factor upp á topp. Óli Hrannar var að reyna en það var bara ekki nóg, þeir verða að ná sér í sóknarmann ætli þeir að halda sér í deild þeirra bestu.
Dómarinn - 8
Erlendur var með fín tök á þessum leik en fór að dæma á full soft brot undir lokin og var ekki samkvæmur sjálfum sér þegar kom að því að dæma á vitlaus innköst sem voru þó nokkur í leiknum. Flottur leikur heilt yfir.



