SKÝRSLAN: Selfoss fullkomnaði þrennuna gegn ÍBV
Hvað réði úrslitum?
Leikurinn var í járnum framan af þangað til Selfoss skoraði opnunarmarkið. Þá var eins og leikmenn ÍBV misstu móðinn og komust þær aldrei almennilega inn í leikinn aftur. Það má því segja að barátta Selfyssinga og andleysi Eyjakvenna hafi ráðið úrslitum
Bestu leikmenn
1. Dagný Brynjarsdóttir
Var hvað líflegust í þessum leik, skoraði eitt mark og var nokkrum sinnum nálægt því að skora annað.
2. Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir
Gat lítið gert í fyrstu tveimur mörkunum en svaraði annars kallinu þegar það barst. Átti nokkrar hörkuvörslur og steig ekki feilspor í dag.
Atvikið
Fyrra mark Selfoss. Leikurinn var jafn framan af og Eyjastúlkur búnar að vera betri ef eitthvað var en markið sló þær greinilega út af laginu því Selfyssingar bættu við öðru í seinni hálfleik og ÍBV var ekki nærri eins ógnandi og í byrjun leiks.
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss fer upp í 3. sæti tímabundið en ÍBV situr enn í 5. sæti en á í hættu á að detta niður í það sjöunda ef úrslit eru óhagstæð.
Vondur dagur
Varnarlína ÍBV var alls ekki sannfærandi í dag. Í fyrra markinu hljóp markaskorarinn framhjá hverjum varnarmanninum á fætur öðrum og þar var varnarleiknum svo sannarlega ábótavant.
Dómarinn - 7,5
Tók réttar ákvarðanir þegar hann þurfti yfirhöfuð að dæma á eitthvað. Var ekki mikið að flauta í dag enda lítil ástæða til þess.


