Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi-deild karla 2016
Samsung völlurinn
Hæg gola þvert á völlinn, 14°C og teppið fullkomlega klárt
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Halldór Orri Björnsson 13'1 - 01 - 161' Martin Lund PedersenHalldór Orri Björnsson 75'2 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Halldór sá um Fjölnismenn

Hvað réði úrslitum?

Færanýting.

Fjölnismenn voru örugglega meira með boltann og fengu góð færi sem þeim tókst ekki að nýta.

Stjarnan fékk færri færi en nýttu þau betur og það telur víst í fótbolta.

Spyrjið bara þá sem hafa verið að horfa á EM í sumar.

Bestu leikmenn

1. Halldór Orri Björnsson

Tvö mörk og vel afgreitt í báðum tilvikum.

Var þess utan gríðarlega duglegur að vinna til baka og hjálpa sínum mönnum.

2. Duwayne Kerr

Hefur fengið gagnrýni í sumar og slapp nú sennilega í lokin þegar mark Ægis var dæmt af.

Hann lokaði rammanum í fyrri hálfleiknum og varði þá nokkur góð skot. Allan leikinn greip hann vel inní sóknarlotur Fjölnis.

Atvikið

Við lok fyrri hálfleiks vann Guðjón sig í skotstöðu en þá virtist farið í bak hans og hann steinlá.

Pétur veifaði leiknum áfram við mikil mótmæli heimamanna.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnismönnum mistekst að komast í efsta sæti deildarinnar en Stjörnumenn lyfta sér í fjórða sætið upp fyrir Breiðablik.

Vondur dagur

Marcus Solberg verður ekkert endilega glaður að rifja þennan leik upp.

Miðað við hvað Fjölnir sá mikið af boltanum á sóknarþriðjungnum þá á senterinn að vera meira í færum en ahnn var í kvöld.

Dómarinn - 8,0

Pétur leyfir mikið í sínum leikjum og hann hélt þeirri línu algerlega ásamt teyminu. Það pirrar oft áhorfendur sem vilja sjá aukaspyrnur og svoleiðis var í kvöld. En línunni héldu þremenningarnir.

Hins vegar þarf að skoða það sem við ræðum í atvikinu, ég held að hann verði svekktur að sjá þá endursýningu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.