SKÝRSLAN: Hemmi Hreiðars fékk frábæra afmælisgjöf
Hvað réði úrslitum?
Þróttur átti mjög fínan fyrri hálfleik en lenti þó undir. Sýndu karakter og jöfnuðu metin og staðan 1-1 í leikhléi. Í síðari hálfleik gerðist eitthvað furðulegt. Andrés Már kemur Fylki í 2-1 með stórkostlegu marki og það virðist hafa verið blaut tuska í andlit heimamanna. Þegar gutti að nafni Valdimar Þór Ingimundarson skorar svo eftir minna en fimm mínútur í sínum fyrsta leik í Pepsi-deildinni eru Þróttarar heillum horfnir. Víðir bætir við sínu öðru marki og 4-1 sigur Fylkis er staðreynd.
Bestu leikmenn
1. Víðir Þorvarðarson
Víðir átti flottan leik og skoraði tvö mörk. Var líflegur og ógnandi fram á við.
2. Andrés Már Jónasson
Hefði verið valinn maður leiksins ef hann hefði ekki látið Dion Acoff fara nokkrum sinnum illa með sig í fyrri hálfleik. Var frábær í síðrai hálfleik, skoraði eitt af mörkum sumarsins til þessa og átti svo frábæra stoðsendingu.
Atvikið
Stórkostlegt mark Andrésar Más var vissulega merkilegt en atvik leiksins verður þó að teljast þriðja mark Fylkismanna, sem Valdimar Þór Ingimundarson skoraði. Það er draumi líkast að skora sitt fyrsta mark í Pepsi-deildinni innan við fimm mínútum eftir að maður kemur inn á í sínum fyrsta leik. Það gerði Valdimar Þór og á mikið hrós skilið.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn hífa sig upp fyrir Þrótt og af botni deildarinnar. Þeir eru nú með 8 stig í 11. sætinu og Þróttar verma botnsætið með stigi minna. Gríðarlega mikilvægur sigur fyrir lærisveina Hermanns Hreiðarssonar, sem voru sannarlega komnir með bakið upp við vegg en hafa nú unnið tvo leiki í röð í deildinni. Ekki spillti fyrir að Hermann á 42 ára afmæli í dag og fékk hann heldur betur góða gjöf frá sínum drengjum!
Vondur dagur
Þrátt fyrir að Fylkir hafi fagnað sigri hefur Jose \"Sito\" Enrique munað sinn fífil fegurri. Átti alls ekkert sérstakan leik og flest sem hann reyndi að gera varð að engu. Hann er síðan tekinn út af fyrir pilt á sautjánda ári sem skorar eftir minna en fimm mínútur. Spurning hvort Sito missi sæti sitt fyrir næsta leik.
Dómarinn - 8
Helgi Mikael átti fínan leik í dag. Sérstaklega fær hann hrós fyrir frábæra



