Fotbolti.net
Arnar Daði Arnarsson
Arnar Daði Arnarsson
Pepsi-deild karla 2016
Valsvöllur
Logn, skýjað. Fínt veður.
Valur
Valur
2 - 1
ÍBV
ÍBV
0 - 111' Simon Kollerud SmidtGuðjón Pétur Lýðsson 17'1 - 1Kristinn Ingi Halldórsson 44'2 - 1
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson

SKÝRSLAN: Valsmenn stálheppnir í sigri á Eyjamönnum

Hvað réði úrslitum?

Valsmenn með töluvert betri færanýtingu í leiknum. Það skilaði sér heldur betur í dag. Spilamennska beggja liða var langt í frá því að vera góð og geta Valsmenn prísað sig sæla að hafa unnið þennan leik.

Bestu leikmenn

1. Rolf Toft

Lagði fyrra mark Vals í leiknum. Virkilega vel gert. Var frískur í leik Vals og þá sérstaklega í fyrri hálfleiknum.

2. Simon Smidt

Skoraði eina mark Eyjamanna í leiknum. Var hættulegur sóknarlega og átti eina aukaspyrnu í þverslánna. Óheppinn en góður. Dalaði í seinni hálfleik eins og margir á vellinum.

Atvikið

Dauðafærin sem Eyjamenn klikkuðu í leiknum reyndist þeim dýrkeypt.

Hvað þýða úrslitin?

Valsmenn fara uppfyrir ÍBV í deildinni og eru komnir með 14 stig á meðan ÍBV er með 13 stig um miðja deild.

Vondur dagur

Aron Bjarnason hefði hæglega getað skorað mark og jafnvel mörk í þessum leik.

Dómarinn - 7,5

Gunnar Jarl fór af velli meiddur í leiknum. Jóhann Ingi mætti og stóð vaktina vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.