SKÝRSLAN: Þórsarar sigruðu örugglega á heimavelli
Hvað réði úrslitum?
Þórsarar voru betri í dag og höfðu það fram yfir Fjarðarbyggð að klára hættuleg færi. Lið Fjarðarbyggðar átti í töluverðum vandræðum með að stilla sendingar af á blautu grasinu og hikuðu of mikið fyrir framan mark Þórsara. Ungu strákarnir í Þórsliðinu voru ferskir í dag og stóðu sig vel.
Bestu leikmenn
1. Óskar Jónsson
Óskar stóð sig frábærlega í dag. Var öruggur á boltanum og stjórnaði spilinu vel. Skoraði fyrsta mark Þórsara og sitt fyrsta í meistaraflokk úr aukaspyrnu.
2. Aron Birkir Stefánsson
Hinn 17 ára gamli Aron var mjög öruggur í marki Þórsara þrátt fyrir að völlurinn væri blautur. Gerði engin mistök og gat lítið gert í markinu sem hann fékk á sig.
Atvikið
Fyrsta mark leiksins, góð aukaspyrna Óskars Jónssonar, sem fór í hægra hornið framhjá Uros Poljanec. Ekki aðeins fyrsta mark leiksins heldur einnig fyrsta mark Óskars í meistaraflokki. Markið kom Þór á bragðið, sem skoruðu öll þrjú mörkin á fyrsta hálftíma leiksins.
Hvað þýða úrslitin?
Eftir leikinn er lið Fjarðarbyggðar komið í fallsæti og eru þeir nú næst neðstir með 17 stig en Huginn fer uppfyrir þá eftir að hafa sigrað í dag. Þórsarar sitja nú í 4.sæti deildarinnar með 29 stig.
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir allt Fjarðarbyggðarliðið sem var frekar bitlaust þrátt fyrir að þurfa nauðsynlega á stigum að halda í fallbaráttunni. i
Dómarinn - 8
Fá vafaatriði og atburðalítill leikur. Dómarinn stóð sig vel og sparaði flautuna frekar en hitt.


