Fotbolti.net
Valur Gunnarsson
Valur Gunnarsson
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Kórinn
HK
HK
2 - 3
KA
KA
Hákon Ingi Jónsson 16'1 - 01 - 148' Elfar Árni Aðalsteinsson 1 - 265' Aleksandar Trninic1 - 376' Elfar Árni Aðalsteinsson Ágúst Freyr Hallsson 80'2 - 3
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Svartsýnustu KA menn geta byrjað að drekka Pepsi

Hvað réði úrslitum?

Föst leikatriði KA-manna í upphafi seinni hálfleiks komu þeim í 2-1 eftir að hafa verið undir í hálfleik. Þegar lið í þeirri stöðu sem HK er í er erfitt að vinna sig úr slíku.

Bestu leikmenn

1. Juraj Grizelj

Var hættulegur í allan dag og lagði upp tvö marka KA-manna.

2. Elfar Árni Aðalsteinsson

Gerði það sem senterar eiga að gera og skoraði tvö mörk.

Atvikið

KA menn koma inn í seinni hálfleik og skora strax á 48. mínútu. Eftir það vissi maður að þetta yrði erfitt fyrir HK.

Hvað þýða úrslitin?

KA-menn eiga 10 stig í 3. sætið og það eru 12 stig í pottinum þannig að það verður að teljast ólíklegt að þeir missi það niður. HK-ingar eru áfram í hörku botnbaráttu einu stigi frá fallsæti.

Vondur dagur

Vörn HK í föstum leikatriðum. Þeir áttu í stökustu vandræðum í hvert skipti sem KA fékk fast leikatriði og það kostaði þá í dag.

Dómarinn - 6

Var heilt yfir með fín tök á leiknum en missti þau aðeins undir lokin. Jói Kalli vildi víti sem ég treysti mér ekki til að dæma um.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.