Fotbolti.net
Þórir Steinn Valgeirsson
Þórir Steinn Valgeirsson
Inkasso deildin 1. deild karla 2016
Fjarðabyggðarhöllin
Leiknir F.
Leiknir F.
2 - 4
Huginn
Huginn
0 - 116' Stefan SpasicKristófer Páll Viðarsson 23'1 - 1Jesus Guerrero Suarez 36'2 - 12 - 241' Rúnar Freyr Þórhallsson 2 - 345' Rúnar Freyr Þórhallsson 2 - 447' Birkir Pálsson Andres Salas Trenas 78'
Dómari: Vilhjálmur Alvar Þórarinsson

SKÝRSLAN: Huginn úr fallsæti

Hvað réði úrslitum?

Aukaspyrnur Marko Nikolic. Þrjú af fjórum mörkum Hugins komu úr aukaspyrnum frá honum. Allar spyrnur hans virtust rata á samherja og Leiknismenn réðu ekki við þær.

Bestu leikmenn

1. Marko Nikolic

Eins og fyrr sagði komu þrjú mörk upp úr aukaspyrnum hans. Allar spyrnurnar sem hann tók í leiknum virtust rata á samherja. Hann átti einnig fínan leik varnarlega og kom í veg fyrir mikið kantspil hjá Leikni

2. Rúnar Freyr Þórhallsson og Stefán Ómar Magnússon

Rúnar Freyr skoraði tvö gríðarlega mikilvæg mörk sem lyfta Huginsmönnum úr fallsæti.

Stefán Ómar var mjög líflegur í sóknarleik Hugins. Hann hljóp og skapaði gríðarlega mikið fyrir samherja sína sem skilaði sér í einni stoðsendingu.

Atvikið

Rauða spjald Andres Salas Trenas. Hann var nýbúinn að fá gult spjald fyrir að brjóta á Stefáni Ómari. Þeim lendir síðan aftur saman inn í teignum strax eftir það. Það endar með því að Stefán Ómar hnígur niður og grípur um bakið á sér. Niðurstaðan er annað gula spjald Andres Trenas ásamt því að Stefán Ómar fékk gult spjald.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknir situr sem fastast á botni deildarinnar og eru nú 6 stigum frá öruggu sæti þegar aðeins fjórar umferðir eru eftir í deildinni.
Huginsmenn geta hins vegar verið ánægðir. Með sigrinum í dag eru þeir komnir úr fallsæti í fyrsta sinn síðan í upphafi móts

Vondur dagur

Andres Salas Trenas. Hann átti í miklum erfiðleikum með að höndla sóknarmenn Hugins og fullkomnaði dag sinn með að láta reka sig út af. Ekki það sem Leiknir þurfti þegar þeir voru að elta leikinn í fallbaráttuslag

Dómarinn - 6,5

Vilhjálmur átti ágætan dag en hann hefði þó getað verið duglegri að flauta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.