Fotbolti.net
Sævar Ólafsson
Sævar Ólafsson
Borgunarbikar karla
Leiknisvöllur
Rigning hér í Breiðholtinu og léttur vindur á annað markið
Leiknir R.
Leiknir R.
2 - 1
ÍA
ÍA
Arnór Snær Guðmundsson (sjm) 24'1 - 01 - 160' Garðar Bergmann Gunnlaugsson (víti)Elvar Páll Sigurðsson 96'2 - 1
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Sjaldséður bikardraumur lifir í Breiðholti

Hvað réði úrslitum?

Barátta Leiknismanna og varatankurinn í framlengingunni réðu úrslitum í dag. Skagamenn voru betri undir lok venjulegs leiktíma en heilt yfir voru þetta sanngjörn úrslit.

Bestu leikmenn

1. Eyjólfur Tómasson

Eyjólfur var virkilega öruggur í teignum og átti nokkrar mikilvægar vörslur undir lokin.

2. Halldór Kristinn Halldórsson

Halldór var gríðarlega öflugur í loftinu og stjórnaði vörninni eins og herforingi. Elvar Páll var einnig virkilega sterkur.

Atvikið

Í vítinu sem gestirnir fengu tók Pétur Guðmundsson upp gula spjaldið og virtist ætla að gefa Halldóri Kristni sitt annað gula spjald. Halldór var lengi að standa upp og þvi beið Pétur með spjaldið. Í millitíðinni náði aðstoðardómarinn athygli Péturs og sagði honum að sleppa spjaldinu. Án Halldórs í vörninni hefði þetta verið erfitt fyrir heimamenn.

Hvað þýða úrslitin?

Leiknismenn eru komnir í undanúrslit bikarkeppni KSÍ í fyrsta skipti í sögunni. Eitthvað sem fáir áttu von á fyrir tímabilið.

Vondur dagur

Garðar Gunnlaugsson sást lítið í kvöld fyrir utan vítið. Sóknarleikur Skagamanna lengst af var frekar einsleitur, krossar sem enduðu hjá Leiknisvörninni eða markmanni.

Dómarinn - 7

Var með stóru atvikin rétt. Þetta var erfiður leikur að dæma. Mikið um pústra.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.