Fotbolti.net
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Pepsi-deild karla 2017
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
2 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Martin Lund Pedersen 53'1 - 01 - 160' Marcus Solberg MathiasenMartin Lund Pedersen 75'2 - 1
Dómari: Gunnar Jarl Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Sanngjarn sigur Breiðabliks

Hvað réði úrslitum?

Samvinna Arnþórs Ara og Martins Lund skipti sköpum enda voru þeir allt í öllu í báðum mörkum Blika. Spilalega séð voru Blikar skrefinu framar en Fjölnis menn en gekk erfiðlega að opna vörn Fjölnis. En þegar það gekk að þá komu mörk.

Bestu leikmenn

1. Arnþór Ari Atlason

Var frábær í þessum leik og með tvær stoðsendingar.

2. Martin Lund Pedersen

Skoraði tvö mörk og átti flottan leik.

Atvikið

Mark Fjölnis kom eins og þruma úr heiðskýru lofti. Það var ekkert sem benti til þess að þeir væru að komast inn í leikinn. Frekar að Blikar myndu bæta í en Fjölnir jafnaði leikinn og gerðu það með glæsilegu marki.

Hvað þýða úrslitin?

Blika fara upp um eitt sæti og sitja í því 6 og eru enn í fullum séns á að taka þátt í baráttu um Evrópu. Fjölnir eru 9 sæti en samt ekki í einhverri fallbaráttu.

Vondur dagur

Mér finnst erfitt að taka einhvern út og segja að viðkomandi hafi átt vondan dag. Mér fannst þó koma fulllítið frá Birni Snæ Ingasyni.

Dómarinn - 7

Gunnar Jarl var solid. Þó spurning hvort að Blikar hefðu ekki átt að fá víti þegar boltinn virtist fara í hönd varnarmann Fjölnis.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.