SKÝRSLAN: Víkingur R. siglir með þrjú stig úr Grindavík
Hvað réði úrslitum?
Eftir að Grindvíkingar mættu af miklum krafti til leiks í kvöld, var mikil deyfð yfir spilamennsku þeirra í seinni hálfleik og varð það þeim að falli. Víkingur var mun sterkari í seinni hálfleiknum.
Bestu leikmenn
1. Ívar Örn Jónsson
Það var enginn sem var eitthvað framúrskarandi í leiknum. En stoðsending og mark færir Ívari það að launum í kvöld. Var líka flottur varnarlega í leiknum.
2. Vladimir Tufegdzic
Var sprækur í kvöld og gat reynst varnarmönnum Grindavíkur erfiður. Skoraði ljómandi fínt mark í kvöld og kom Víkingi yfir.
Atvikið
Það er ekkert atvik sem stendur upp úr í kvöld. Því ætla ég að gefa upphafsflauti Péturs sem hóf seinni hálfleikinn. Grindvíkingar voru betri í fyrri hálfleiknum en eitthvað gerðist í hálfleik. Þegar Pétur flautaði leikinn á var Víkingur mikið betri og heimamenn hálf daufir og komust aldrei í takt við leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Þetta var þriðja tap Grindvíkinga í röð en þrátt fyrir það eru þeir í þriðja sæti. Voru skárri í kvöld en síðustu tveimur leikjum sínum.
Víkingur kom í veg fyrir að það kólnaði hressilega í Fossvoginum en tap í kvöld hefði þýtt þrjú töp í röð. Í staðinn vinna þeir leikinn og komast í 7. sætið. Mikill pakki er í kringum þá og er aðeins fjögur stig í annað sæti deildarinnar.
Víkingur kom í veg fyrir að það kólnaði hressilega í Fossvoginum en tap í kvöld hefði þýtt þrjú töp í röð. Í staðinn vinna þeir leikinn og komast í 7. sætið. Mikill pakki er í kringum þá og er aðeins fjögur stig í annað sæti deildarinnar.
Vondur dagur
Enginn sem var afburðarlélegur í kvöld. Grindvíkingar hefður líklega viljað fá meira frá vængbakvörðum sínum, Aroni Frey og Simon. Simon var að leika sinn fyrsta leik í kvöld fyrir Grindavík og átti fína spretti upp vinstri kantinn á köflum en það vantaði að klára fyrirgjafirnar. Þær voru ekki nægileg góðar
Dómarinn - 5
Pétur átti ágætis leik. Línan hans var oft á tíðum óljós. Sleppti mönnum með gul spjöld sem voru klárlega gul spjöld, og gaf gul spjöld sem hann hefði mátt sleppa. Átti samt engin afdrifarík mistök í leiknum en hefur átt betri leiki.



