Fotbolti.net
Elvar Geir Magnússon
Elvar Geir Magnússon
Pepsi-deild karla
Kaplakriki
FH
FH
3 - 0
Breiðablik
Breiðablik
Björn Daníel Sverrisson (víti) 25'1 - 0Ólafur Páll Snorrason 54'2 - 0Ólafur Páll Snorrason 57'3 - 0
Dómari: Erlendur Eiríksson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.
Fyrir leik
Heil og sæl! Leikur FH og Blika hefst klukkan 20:00! Byrjunarliðin koma inn von bráðar en ég get upplýst um það nú þegar að lið FH er algjörlega óbreytt frá síðasta leik.
Fyrir leik
Heimir Guðjóns, þjálfari FH, og Gummi Ben, aðstoðarþjálfari Breiðabliks, standa úti á velli, hella í sig kaffi og spjalla um eitthvað fyndið. Allavega báðir skælbrosandi.
Fyrir leik
Það er mikið húllumhæ í tengslum við þennan leik. Íþróttaálfurinn sprellar og gefur ís, Gylfi Sigurðsson áritar á blöð og valda líkamshluta og þeir Baldur Bett og Jón Þorgrímur grilla borgara fyrir gesti og gangandi.

Sólin skín og þetta hlýtur að verða skemmtilegur leikur! Ég trúi ekki öðru!
Fyrir leik
FH-ingar eru í öðru sæti deildarinnar með sjö stig en Blikar hafa fjögur. Bara svona svo það sé á hreinu.

Endilega skrifið á Twitter eins og enginn sé morgundagurinn og notið hashtagið #fótbolti - Valdar færslur verða birtar í textalýsingunni.
Fyrir leik
Danny Justin er á bekknum hjá FH. Justin er fjölhæfur Englendingur og væri gaman að sjá hann sprikla eitthvað á grasinu í Krikanum í kvöld!
Fyrir leik
Liðin eru komin út á völlinn. Allt að verða klárt!
1. mín
Leikurinn er hafinn. FH sækir í átt að KFC í Hafnarfirði í fyrri hálfleiknum.
11. mín
Blikar byrja betur og bakvörðurinn Þórður Steinar átti fyrsta skot á mark í leiknum. Gunnleifur reyndar ekki í vandræðum með þetta.
15. mín
FH-ingar þurfa að setja sig í gang. Blikar hættulegir.
23. mín
Enn eru Blikar líklegri. Boltinn skoppaði rétt framhjá fjærstönginni eftir að Kristinn Jónsson tók aukaspyrnu
FH
25. mín
Mark úr víti!

Björn Daníel Sverrisson

Hendi dæmd innan teigs og FH fékk víti. Guðjón Árni skaut í höndina á Sverri sýndist mér. Björn Daníel á punktinn og var öryggið uppmálað.
39. mín
Hörkufæri hjá Blikum! Eftir misheppnaða spyrnu Gunnleifs í markinu (eftir misheppnaða sendingu frá Guðmanni) skaut Elfar Árni naumlega framhjá. Hefði getað rennt boltanum á Rnkovic sem var fyrir opnu marki.
45. mín
Hálfleikur - Friðrik Dór vallarþulur minnir fólk á að hægt sé að kaupa FH-derhúfur í hálfleik.
46. mín
Seinni hálfleikur.
FH
54. mín
MAAAARK!

Ólafur Páll Snorrason

Frábær sókn hjá FH ber ávöxt! Atli Viðar með glæsilegt þríhyrningaspil við Atla Guðnason sem leggur upp mark fyrir Ólaf Pál!
FH
57. mín
MAAAARK!

Ólafur Páll Snorrason

Þá er þetta komið í hús... sé Blika ekki setja þrjú mörk í þessum leik. Óli Palli aftur eftir sendingu frá Atla Guðnasyni.
Breiðablik
60. mín
InnÁrni Vilhjálmsson
ÚtPetar Rnkovic
60. mín
71. mín
FH-ingar nær því að bæta við en Blikar að minnka muninn. Atli Viðar átti hörkuskalla sem Sigmar varði í slánna.
87. mín
Kerfið hefur verið erfitt og því vantar inn slatta af skiptingum. FH-ingar allavega verið miklu betri í leiknum og sigurinn sem þetta stefnir í síst of stór.
93. mín
LEIK LOKIÐ
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.