Fotbolti.net
@haflidibHafliði Breiðfjörð
Hafliði Breiðfjörð
Pepsi-deild karla
Fylkisvöllur
Þungt yfir, rok og rigning.
Fylkir
Fylkir
3 - 1
Valur
Valur
Árni Freyr Guðnason 13'1 - 0Árni Freyr Guðnason 44'2 - 02 - 146' Matthías GuðmundssonDavíð Þór Ásbjörnsson 85'3 - 1
Dómari: Kristinn Jakobsson
0. mín
Komiði sæl og verið velkomin í beina textalýsingu frá leik Fylkis og Vals í fimmtu umferð Pepsi-deildar karla. Leikurinn hefst klukkan 19:15.
0. mín
Fylkir gerir tvær breytingar frá 1-1 jafntefli gegn ÍBV í eyjum í síðustu umferð. Árni Freyr Guðnason og Ásgeir Börkur Ásgeirsson koma inn fyrir Magnús Þóri Matthíasson og Odd Inga Guðmundsson. Valur gerir bara eina breytingu frá síðustu umferð þegar þeir töpuðu 0-1 fyrir KR heima. Matthías Guðmundsson kemur inn fyrir Hafstein Briem.
0. mín
Heimamenn í Fylki eiga enn eftir að vinna leik í sumar en hafa samt verið að hala inn stigum með þremur jafnteflum og einu tapi í fjórum leikjum. Þeir eru í 9. sæti fyrir leiki kvöldsins en gestirnir í Val í 5. sæti með sex sig eftir tvo sigra og tvö töp.
0. mín
Björgólfur Takefusa er mættur í leikmannahóp Fylkis í fyrsta sinn í sumar en hann er á láni hjá félaginu frá Víkingum.
0. mín
Haukur Ingi Guðnason aðstoðarþjálfari Fylkis tekur fullan þátt í upphitun með leikmönnum liðsins. Hann er þó ekki með leikheimild með liðinu heldur enn skráður í Grindavík svo stuðningsmenn Fylkis geta ekki gert sér vonir um að sjá hann spila með liðinu.
0. mín
Þorlákur Árnason þjálfari Íslandsmeistara kvenaliðs Stjörnunnar er mættur í stúkuna. Hann hefur þjálfað bæði liðin sem mætast hér í kvöld. Sonur hans, Indriði, er leikmaður Vals en er ekki í hóp í kvöld og því með honum í stúkunni.
0. mín
Leikurinn fer senn að hefjast. Liðin ganga hér inn á völlinn. Fylkismenn að venju í appelsínugulum búningum en Valur í varabúningum sínum, bláum treyjum og hvítum buxum og sokkum.
0. mín
Hjörtur Hermannsson er í byrjunarliði Fylkis í dag en þessi 17 ára gamli leikmaður er að leika kveðjuleik sinn fyrir félagið því hann er að ganga til liðs við PSV Eindhoven í Hollandi. Hann er að leika fjórða leik sinn á tímabilinu og 13 leik alls og er miðvörður í dag.
1. mín
Leikurinn er hafin. Heimamenn í Fylki leika í átt að Fylkisheimilinu.
3. mín
Leikurinn byrjar fjörlega. Árni Freyr Guðnason átti aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Vals sem hann skaut með jörðinni og Sindri varði. Valsmenn fóru upp og Guðjón Pétur komst í gott skotfæri sem Fylkismenn náðu að verjast.
7. mín
Svona stilla liðin upp í dag. Fylkir: Bjarni Þórður Andri Þór - Hjörtur - Elebert - Ásgeir Eyþórs Finnur - Ásgeir Börkur Davíð Ingimundur - Árni Freyr - Tómas Joð Valur: Sindri Andri - Atli Sveinn Halldór - Úlfar Haukur - Guðjón Rúnar Ásgeir - Hörður Matthías
10. mín
Hörður Sveinsson í dauðafæri eftir að Ásgeir Börkur sendi inn fyrir eigin vörn á hann. Bjarni Þórður blakaði horninu yfir markið og í horn.
Fylkir
13. mín
MAAAARK!

Árni Freyr Guðnason

Fylkismenn eru komnir yfir. Í kjölfar hornspyrnu vann Hjörtur boltann tvívegis og kom honum svo inn á Árna Frey sem var meter frá marki og skoraði með skoti á markið. Hans fyrsta mark í efstu deild en hann kom til liðsins frá ÍR í vetur.
Fylkir
18. mín
Gult spjald

Davíð Þór Ásbjörnsson

Davíð Þór fær áminningu fyrir brot á Úlfari Hrafni úti á miðjum velli.
Fylkir
21. mín
Gult spjald

Ásgeir Börkur Ásgeirsson

Ásgeir Börkur fékk áminningu fyrir brot nokkrum metrum fyrir utan vítateig Fylkis. Valur fékk aukaspyrnu sem Guðjón Pétur tók og Bjarni Þórður mátti hafa sig allan við að verja í horn.
25. mín
Það er nóg að gera hjá Bjarna Þórði sem varði núna frá Matthíasi af stuttu færi eftir góðan undirbúning Ásgeirs Ingólfssonar.
35. mín
Valsmenn halda áfram að sækja og á rúmri mínútu hafa þeir átt þrjú skot að marki. Fyrst varði Bjarni Þórður í horn frá Rúnari Má og svo skutu Hörður Sveinsson og Rúnar Már framhjá markinu.
Fylkir
44. mín
MAAAARK!

Árni Freyr Guðnason

Eftir skyndiupphlaup Fylkismanna sendi Finnur Ólafsson frábæra sendingu inn í vítateiginn beint á kollinn á Árna Frey sem bætti við sínu öðru marki í kvöld.
Valur
46. mín
MAAAARK!

Matthías Guðmundsson

Eftir atgang í teignum kom Haukur Páll boltanum fyrir framan markið þar sem Matthías skoraði með skoti af stuttu færi. Staðan í hálfleik 2-1 í fjörugum leik.
46. mín
Síðari hálfleikur er hafinn. Liðin koma óbreytt til leiks.
49. mín
Nú munaði engu að Árni Freyr næði þrennunni. Davíð Þór sendi inn í teiginn frá hægri kanti á Árna sem tók boltann viðstöðulaust en skaut rétt framhjá.
Fylkir
53. mín
InnKjartan Ágúst Breiðdal
ÚtHinrik Atli Smárason
Hjörtur fer af velli í síðasta sinn í búningi Fylkis. Nú heldur hann til Hollands þar sem hann hefur samið við PSV Eindhoven.
Fylkir
53. mín
Gult spjald

Ásgeir Eyþórsson

Ásgeir fær áminningu fyrir að brjóta á Matthíasi Guðmundssyni rétt fyrir utan teig.
54. mín
Ingimundur í dauðafæri en setti boltann framhjá marki Vals með innnanfótarskoti.
Valur
58. mín
InnHafsteinn Briem
ÚtGuðjón Pétur Lýðsson
59. mín
Tómas Joð með þrumuskot fyrir utan teig sem Sindri Snær markvörður Vals rétt náði að blaka yfir markið.
Valur
69. mín
InnAtli Heimisson
ÚtHörður Sveinsson
Fylkir
75. mín
InnOddur Ingi Guðmundsson
ÚtFinnur Ólafsson
80. mín
Haukur Páll í fínu skotfæri í teignum en skaut yfir mark Fylkismanna.
Valur
82. mín
InnKolbeinn Kárason
ÚtÚlfar Hrafn Pálsson
Fylkir
84. mín
InnBjörgólfur Takefusa
ÚtÁrni Freyr Guðnason
Markaskorarinn Árni Freyr fer af velli, inná kemur markahrókurinn Björgólfur Takefusa í sínum fyrsta leik í sumar.
Valur
84. mín
Gult spjald

Atli Sveinn Þórarinsson

Fylkir
85. mín
MAAAARK!

Davíð Þór Ásbjörnsson

Frábært mark beint úr aukaspyrnu úti á miðjum vallarhelmingi Valsmanna. Fylkir komið í 3-1 og virðist ætla að landa sínum fyrsta sigri í sumar.
94. mín
Leiknum er lokið með 3-1 sigri Fylkis. Fyrsti sigur liðsins í sumar en þriðja tap Valsmanna. Áhorfendur voru 833. Viðtöl og frekari umfjöllun koma hér á Fótbolta.net síðar í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.