0. mín
Góðan kvöldið kæru lesendur Fótbolta.net. Anton Ingi Leifsson heiti ég og mun lýsa fyrir ykkur því sem gerist hér á Kópavogsvelli.
Hér innan skamms mun ég birta byrjunarlið beggja liða.
0. mín
Blikar gera fjórar breytingar frá sunnudeginum þegar þeir steinlágu gegn FH 3-0. Þeir Rafn Andri Haraldsson, Arnar Már Björgvinsson, Árni Vilhjálmsson og Andri Rafn Yeoman koma inn.
Þeir Elfar Árni Aðalsteinsson, Haukur Baldvinsson og Peter Rnkovic fá sér sæti á bekknum. Tómas Óli Garðarsson er ekki í hópnum, líklega vegna meiðsla.
0. mín
Fram gerir þrjár breytingar á liði sínu. Þeir Daði Guðmundsson, Ásgeir Gunnar Ásgeirsson og Hólmbert Aron Friðjónsson fá sér sæti á bekknum.
Þeir Kristján Hauksson, Jón Gunnar Eysteinsson og Hlynur Atli Magnússon koma inn í liðið. Hlynur Atli mun leika sinn fyrsta leik í sumar, en hann hefur verið meiddur.
0. mín
Leikir liðanna á síðustu leiktíð voru ekki mikil skemmtun. Fyrri leikurinn á Kópavogsvelli endaði 1-1 þar sem Arnar Gunnlaugsson og Kristinn Steindórsson skoruðu mörkin.
Á Laugardalsvellinum unnu Framarar 1-0 þar sem Arnar skoraði einnig.
0. mín
Við minnum fólk á að valin tíst munu birtast hér í textalýsingunni. Noti fólk hash-tagið #fotbolti á það möguleika að koma fram hér í textalýsingunni. Koma svo!
0. mín
Vilhjálmur Alvar mun dæma leikinn í dag og honum til aðstoðar eru þeir Smári Stefánsson og Sverrir Gunnar Pálmason. Eftirlitsmaður frá KSÍ er Eyjólfur Ólafsson.
0. mín
Bæði lið eru að enda upphitun sína og fara senn að koma sér til búningsherbergja. Það styttist í leikinn og vonandi verður hann mikil skemmtun.
0. mín
Liðin ganga hér út á völlinn á eftir dómurum leiksins.
0. mín
Leikurinn er hafinn! Góðaskemmtun.
10. mín
Lítið að gerast fyrstu tíu mínúturnar. Framarar áttu þó ágætis skot áðan sem Sigmar varði vel.
14. mín
Árni Vilhjálmsson var við það að sleppa í gegn, en Kristján Hauksson var vel á verði og bjargaði í horn. Úr horninu gerðist ekkert.
16. mín
Jón Gunnar Eysteinsson með hörkuskot, en boltinn himinn hátt yfir markið.
20. mín
Hér í Kópavogi eru liðnar tuttugu mínútur og nákvæmlega ekkert hefur gerst. Leikurinn afar tíðindalítill og vonandi fer eitthvað að hressa við þessu.
22. mín
Gult spjald
Halldór Hermann Jónsson
Fyrir að brjóta á Andra Rafn Yeoman.26. mín
MAAAARK!
Kristinn Ingi Halldórsson
MAAARK! Sam Tillen gaf ágætis fyrirgjöf fyrir markið sem stefndi á Sigmar í marki Blika, en hann reyndi að slá boltann út - þar var Kristinn Ingi sem skoraði með svokallaðari bakfallsspyrnu!36. mín
Framarar ráða hér lögum og lofum. Liðið er að spila ágætis fótbolta, en vantar þó að skapa sér fleiri færi.
38. mín
Almarr í flottu færi eftir mistök blika, en Sigmar lokar vel á hann.
41. mín
Renee Troost í ágætis færi, en lætur Ögmund verja frá sér. Það var þó haldið aðeins utan um hann og vildu Blikar í stúkunni fá víti. Það hefði verið full harkalegt að dæma víti þarna.
45. mín
Fyrri hálfleik er lokið. Framarar verðskuldað yfir.
45. mín
Seinni hálfleikur er hafinn. Fólk má endilega vera duglegra við að tísta!
50. mín
Þórður Steinar með hörkuskot, en boltinn yfir.
55. mín
Seinni hálfleikur byrjar eins og sá fyrri. Afar lítið í gangi.
56. mín
Steve Lennon skýtur boltanum yfir markið eftir aukaspyrnu frá Sam Tillen. Skotið úr miðjum vítateignum.
59. mín
Gult spjald
Kristinn Jónsson
Annað gula spjald leiksins. Fyrir brot á Almarri.61. mín
InnHaukur Baldvinsson
ÚtArnar Már Björgvinsson
62. mín
InnGuðmundur Pétursson
ÚtDavíð Kristján Ólafsson
Tvöföld skipting hjá Blikum. Á að hressa upp á sóknarleikinn.
70. mín
MAAAARK!
Jón Gunnar Eysteinsson
MAARK! Framarar komnir í 2-0. Eftir mikið klafs eftir hornspyrnu Tillen náði Jón Gunnar að pikka í boltann og hann lak framhjá Sigmari í marki Blika!75. mín
InnElfar Árni Aðalsteinsson
ÚtÞórður Steinar Hreiðarsson
Þriðja og síðasta skipting Blika.
76. mín
Árni Vilhjálmsson fær hér algjört dauðafæri eftir miklan barning í teignum. Hann fékk boltann inní markteig Framara, en hitti ekki boltann og féll í jörðina.
82. mín
Gult spjald
Damir Muminovic
Fyrir brot á Steven Lennon.Leik lokið!
Leik lokið í Kópavogi með 2-0 sigri Framara. Umfjöllun og viðtöl væntanleg.


