Fotbolti.net
Orri Rafn Sigurðarson
Orri Rafn Sigurðarson
Mjólkurbikar kvenna
Hertz völlurinn
Blautt, logn og frábært fótboltaveður
ÍR
ÍR
0 - 8
Breiðablik
Breiðablik
0 - 119' Alexandra Jóhannsdóttir 0 - 220' Berglind Björg Þorvaldsdóttir0 - 325' Alexandra Jóhannsdóttir 0 - 442' Selma Sól Magnúsdóttir 0 - 547' Karólína Lea Vilhjálmsdóttir 0 - 664' Selma Sól Magnúsdóttir 0 - 774' Guðrún Arnardóttir0 - 892' Agla María Albertsdóttir
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson

SKÝRSLAN: Breiðablik í engum vandræðum með ÍR í Breiðholtinu

Hvað réði úrslitum?

Gæðin ráða úrslitum í dag. Þetta var einstefna og lítið hægt að segja nanað en Breiðablik er 1 númeri ef ekki 10 númerum of stórar fyrir ÍR. Ég held að ÍR hafi snert boltann 3 svar í fyrri hálfleik á vallarhelmingi Blika. Úrslitin í raun sanngjörn og munurinn á góðu Pepsí deildar liði og liði í miðjuhnoð í Inkasso deildinni eins og Guðmundur þjálfari ÍR sést bara þarna. Gæði Gæði Gæði

Bestu leikmenn

1. Ásta Eir Árnadóttir (Breiðablik)

Hún spilaði bara 55 mínútur en guð minn góður hvað hún var góð í þessar 55 mínútur. Áætlunarferðir upp kantinn eins, geggjaða krossa og síógnandi. Næstum því allur sóknarleikur Blika í fyrri hálfleik endaði á því að hún fékk boltann og kom með hann fyrir frábær leikur hjá Ástu.

2. Alexandra Jóhannsdóttir (Breiðablik)

Ég set nafnið hennar Alexöndru hérna en hún var frábær í þessum leik tvö mörk og assist. Hinsvegar voru svo margar góðar eiginlega geggjaðar að ég verð að nefna að Selma Sól var eins og hun er alltaf virkilega góð með tvö mörk og assist einnig og Berglind Björg á risa þátt í því að Blikar brjóti ísinn með stoðsendingu og marki og leikurinn game over.

Atvikið

Varslan hennar Ástu á 20 mínútú verður að vera hérna. Vá vá vá þessi varsla var svo sjúk! ÍR gat jafnað í 1-1 en í staðinn bruna Blikar fram og komast í 2-0

Hvað þýða úrslitin?

ÍR er dottið út og Breiðablik komnar í 4-liða úrslit þar sem þær geta mætt Val, Stjörnunni eða Fylkir.

Vondur dagur

Vinstri vængur ÍR var hreinlega pakkað saman í fyrri hálfleik meðan Ásta var í hægri bakverðinum. Anna Bára Másdóttir og Ástrós Eiðsdóttir áttu ekki möguleika í að stoppa sóknarleik Blika sem í fyrri hálfleik og þær fengu alltaf að krossa. Uppskáru mörk út úr því, þú verður að stíga betur fyrir fyrirgjafir sérstaklega gegn svona góðu liði.

Dómarinn - 8

Lögfræðingurinn átti auðveldan dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.