Fotbolti.net
Mist Rúnarsdóttir
Mist Rúnarsdóttir
1. deild kvenna
Eimskipsvöllurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
1 - 0
Hamrarnir
Hamrarnir
Andrea Rut Bjarnadóttir 3'1 - 0
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Þróttarar þjarma að toppliðunum

Hvað réði úrslitum?

Andrea Rut Bjarnadóttir skoraði eina mark leiksins strax í upphafi. Það var ákveðin deyfð yfir leiknum og þrátt fyrir að bæði lið hafi fengið tækifæri til að skora úr opnum leik virtust þau ekkert sérstaklega líkleg. Þá hefðu Þróttarar átt að fara betur með fjölmarga sénsa úr föstum leikatriðum.

Bestu leikmenn

1. Andrea Rut Bjarnadóttir

Andrea Rut skoraði eina markið í heldur flötum fótboltaleik. Markið augljóslega mjög mikilvægt fyrir Þróttara og sterkt hjá þessum unga leikmanni að taka af skarið.

2. Andrea Dögg Kjartansdóttir

Hin Andrean á vellinum var best hjá gestunum. Fyrirliðinn átti góðan leik og efldist bara þegar leið á. Virkar í betra formi en í fyrra og lofar góðu.

Atvikið

Sigurmarkið í byrjun leiks. Yngsti leikmaður vallarins, Andrea Rut Bjarnadóttir, skoraði eftir laglega sendingu Þórkötlu Maríu.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttarar jafna efstu lið deildarinnar að stigum. Eru nú með 13 stig rétt eins og Keflavík og Haukar. Stigi á undan Fylki sem er í 4. sæti en á leik til góða, rétt eins og Keflavík. Hamrarnir sitja hinsvegar áfram í 8. sæti með 5 stig.

Vondur dagur

Það vantaði broddinn í leik beggja liða og margir leikmenn töluvert frá sínu besta. Föstu leikatriðin hjá Þrótti ullu vonbrigðum. Ég missti snemma tölu á fjölmörgum hornspyrnum þeirra. Þórkatla María sá um að taka þær flestar og skilaði jafnan góðum boltum af sér en það vantaði alla grimmd í teignum og hungur til að skora.

Dómarinn - 6,5

Gunnar stóð sig vel. Eitthvað smotterí sem betur mátti fara en ekkert sem hafði neikvæð áhrif á leikinn sem var tiltölulega auðveldur að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.