SKÝRSLAN: Tvö mörk í nýliðaslagnum
Hvað réði úrslitum?
Varnarleikur og skipulag Magna var frábært í leiknum, sérstaklega í seinni hálfleik. Þeir gáfu lítill færi á sér og nýta sín færi í dag.
Bestu leikmenn
1. Gunnar Örvar Stefánsson
Hann var ótrúlega góður í dag, vann nánast alla skallabolta í framlínunni. Hörku dulegur með boltann og að taka hlaupin án boltans. Sinnti líka varnavinnunni vel. Kórónar sinn leik með því að skora tvö lagleg skallamörk.
2. Baldvin Ólafsson
Það er hægt að velja ýmsa hér enda áttu margir leikmenn góðan dag. Fannst Baldvin hins vegar hörku duglegur í dag, varð aldrei þreyttur á því að taka hlaupin og koma boltanum fyrir. Gaf Njarðvíkingum enginn færi á sér og var öruggur í sínum varnar aðgerðum. Á líka laglega stoðsendingu.
Atvikið
Seinna mark Magna lokar þessum leik. Eftir að þeir skora fyrsta markið reyna Njarðvíkingar að leita að jöfnunarmarkinu og mér fannst koma smá stress í Magna menn en seinna markið siglir þessum þremur stigum til Grenivíkur.
Hvað þýða úrslitin?
Njarðvík nær ekki að slíta sig frá botnbaráttunni en Magna menn hentu í líflínu í dag upp á framhaldið í deildinni. Jafna ÍR að stigum og eru nú tveimur stigum frá öruggu sæti.
Vondur dagur
Mér fannst enginn eiga vondan dag í dag, leikmenn voru að skila sínu í báðum liðum. Robert Blakala í marki Njarðvíkur vill samt líklegast gleyma seinna markinu sem hann fékk á sig í dag sem fyrst.
Dómarinn - 8
Gunnþór Steinn átti fínan leik í dag og ekkert út á hann að setja þannig.



