Fotbolti.net
Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Rafholtsvöllurinn
Njarðvík
Njarðvík
1 - 5
Haukar
Haukar
0 - 116' Aron Freyr Róbertsson 0 - 225' Fareed Sadat0 - 335' Alexander Freyr Sindrason 0 - 445' Ísak JónssonAri Már Andrésson 49'1 - 41 - 593' Daði Snær Ingason
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Fimm stjörnu sigur hja Haukum

Hvað réði úrslitum?

Fyrri hálfleikurinn í dag var eitt það alversta sem sést hefur hjá Njarðvíkingum og Haukar gengu á lagið og kláruðu dæmið þegar þeir fengu tækifærið. Njarðvíkingar virkuðu ekki tilbúnir í dag og Haukamenn nýttu sér það og jörðuðu þá grænu.

Bestu leikmenn

1. Fareed Sadat

Lét varnarmenn Njarðvíkur alveg vel fyrir sér finna og þeir áttu enginn svör við honum í leiknum og hann skilaði góðu marki.

2. Aron Elí Sævarsson

Var virkilega öflugur í liði Hauka í dag. Flottur varnarlega og átti frábæra spretti fram líka.

Atvikið

Fimmta og síðasta mark Hauka.
Brynjar Atli er með boltann aðeins út úr teignum hjá sér og reynir að sparka fram en Daði Snær nær að komast fyrir og er komin einn fyrir opnu marki þegar hann rekur boltann upp að marklínu áður en hann beygir sig svo niður og skorar með skalla, óþarfa niðurlæging sem maður á ekki að sjá í fullorðnisbolta.

Hvað þýða úrslitin?

Haukar færa sig upp úr fallsæti og senda þá grænklæddu niður fyrir rauða strikið.

Vondur dagur

Njarðvíkurliðið sem heild átti vondan dag.

Dómarinn - 3

Mjög tilviljunarkenndir dómar.
3-3 í höfuðhöggum, menn meiddir af velli og mikil harka. Haukar áttu að fá víti sem ekki var dæmt og heilt yfir var þetta ekki góður dagur á skrifstofunni í dag.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.