SKÝRSLAN: Fylkissigur í atvikaríkum haustroksleik
Hvað réði úrslitum?
Tvö atriði, frábær sóknarleikur fyrstu 58 mínúturnar og svo mögnuð varnarframmistaða síðustu 32 mínúturnar hjá Fylki. Góður leiklestur þjálfarateymisins líka klárlega þáttur.
Frábær fótboltaleikur í alla staði.
Frábær fótboltaleikur í alla staði.
Bestu leikmenn
1. Geoffrey Castillion
Sennilega besti leikur Castillion í Fylkistreyjunni. Lykilmaður í tveimur mörkum og sýndi heldur betur á sér bardagahliðina eftir að Fylkir þurfti að loka svæðum og berjast. Var lykilmaður í því að losa um pressuna þá og bjó til hættulegar skyndisóknir.
2. Ólafur Ingi Skúlason
Á það atvik sem að sigldi heim síðustu metrunum að sigri þar sem hann fórnaði í líkamanum í skutlutæklingu til að koma í veg fyrir mark. Er þó bara sjónarmun á undan Stefáni Loga.
Atvikið
Svo mörg mögnuð, tækling Ólafs Inga, stórbrotin markvarsla Stefáns Loga...en rauða spjaldið hlýtur að vera atvikið.
Valgeir og Valdimar eru að kljást um boltann, Egill dæmir á Valdimar sem er ekki sáttur og lætur Valgeir heyra það. Sá labbar í átt að Valdimar sem hrindir honum í jörðina og úr verður mikill hasar sem lýkur með því að Egill sýnir Valdimar rautt spjald.
Eftir það var suðumarkið við völd í Árbænum.

Hvað þýða úrslitin?
Fylkismenn ættu að hafa tryggt veru sína í PepsiMax-deildinni eftir þennan leik og ná HK mönnum.
Bæði lið sitja með 25 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.
Bæði lið sitja með 25 stig þegar fjórar umferðir eru eftir.
Vondur dagur
Þrátt fyrir tvö mörk HK má segja að bit hafi vantað í framlínu HK manna utan Ásgeirs.
Sérstaklega átti Birnir Snær erfiðan dag og var að lokum skipt útaf.
Sérstaklega átti Birnir Snær erfiðan dag og var að lokum skipt útaf.
Dómarinn - 7,0
Fljótandi og flottur leikur og auðdæmdur í 58 mínútur en svo fékk tríóið alvöru verkefni. Ég er ekki viss um að vera sammála því þegar Egill dæmdi á Valdimar upphaflega en var algerlega sammála rauða spjaldinu og þeim sem fylgdu. Eftir það var mikill hasar og mörg leikbrot til enda og þar náði Egill ekki að halda línunni, sem er ekki gott auðvitað.
Heilt yfir voru stóru ákvarðanirnar að mínu mati réttar og einkunnin eftir því.
Heilt yfir voru stóru ákvarðanirnar að mínu mati réttar og einkunnin eftir því.