SKÝRSLAN: Umdeildasta atvik sumarsins er Valur og Stjarnan skildu jöfn
Hvað réði úrslitum?
Það var sennilega bara atvikið þegar Stjarnan komst í 3-1 en markið var skyndilega dæmt af löngu seinna. Þá kviknaði í Völsurum sem jöfnuðu og náðu næstum því að taka stigin þrjú en Patrick Pedersen klikkaði víti á 89. mínútu.
Bestu leikmenn
1. Hilmar Árni Halldórsson
Hilmar Árni er frábær knattspyrnumaður og sýndi það enn og aftur í kvöld. Skorar frábært mark með sleggju fyrir utan teig og leggur svo upp seinna markið á Sölva með nákvæmri sendingu innfyrir.
2. Ívar Örn Jónsson
Ívar var virkilega öflugur í kvöld, stórhættulegur upp vinstri kantinn og lagði upp bæði mörk Valsara með mjög góðum fyrirgjöfum á fjærstöngina.
Atvikið
Aldrei verið auðveldara að velja það.
Þegar staðan var 2-1 skoraði Stjarnan mark sem hefði sennilega klárað leikinn. Helgi ræddi við Bryngeir aðstoðardómara og dæmdi mark en þegar Valur var að fara taka miðjuna dæmdu þeir markið af vegna rangstæðu. Stjörnumenn æfir og Rúnar Páll vandaði dómurum leiksins alls ekki kveðjurnar eftir leik.

Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan fer uppfyrir FH á markatölu með 28 stig í þriðja sætið, 5 stigum frá Blikum í öðru sætinu.
Valur fer upp um tvö sæti í fimmta sætið með 25 stig með þessu stigi í kvöld og geta enn náð Evrópusæti.
Valur fer upp um tvö sæti í fimmta sætið með 25 stig með þessu stigi í kvöld og geta enn náð Evrópusæti.
Vondur dagur
Kristinn Freyr Sigurðsson.
Kristinn Freyr átti afleitan dag, missti boltann nánast í hvert einasta skipti sem hann fékk hann og var að reyna alltof flókna hluti með boltann. Var tekinn útaf og þá byrjuðu Valur að spila betur á síðasta þriðjungi vallarins.

Dómarinn - 2
Dómaratríóið réði ekkert við þennan leik. Þetta mark sem þeir dæmdu af var mjög ílla framkvæmt. Þeir ræða saman, dæma mark en svo löngu seinna dæma þeir allt í einu rangstæðu þegar þeir átta sig á því að Þorsteinn skoraði markið en ekki Guðmundur Hafsteinn. Sama þótt dómurinn var réttur sem ég er ekki viss um var framkvæmdin fáranleg.