SKÝRSLAN: FH með fullt hús eftir sigur á Skagamönnum
Hvað réði úrslitum?
FH voru bara betri heilt yfir og stjórnuðu leiknum allan tímann fyrir utan smá hikst undir lokin en náðu að sigla þessu heim. Jónatan Ingi er strákur með gæði og ef hann ætlar að spila svona í sumar þá verða FH í bullandi titilbaráttu.
Bestu leikmenn
1. Jónatan Ingi Jónsson
Var langbesti maður vallarins. Er þetta sumarið sem hann springur út? Ef við miðum við þennan leik þá er svarið já.
2. Daníel Hafsteinsson
Var virkilega öflugur á miðjunni hjá FH í dag. Var mjög góður á báðum endum vallarins.
Atvikið
Vítið.
Boltinn fer í hendina á Guðmanni og Helgi Mikael bendir á punktinn. Við þetta virtust Skagamenn ætla að fara gera sig gildandi lokamínúturnar en FH náði þó að loka leiknum.
Boltinn fer í hendina á Guðmanni og Helgi Mikael bendir á punktinn. Við þetta virtust Skagamenn ætla að fara gera sig gildandi lokamínúturnar en FH náði þó að loka leiknum.
Hvað þýða úrslitin?
FH er með fullt hús stiga þegar 2.Umferðir eru búnar. Skagamenn fara stigalausir og eflaust svekktir heim eftir ekkert sérstaka framistöðu lengst af leik en það kemur leikur eftir þennan.
Vondur dagur
Aron Kristófer Lárusson átti enginn svör við Jónatan Inga í þessum leik, var tekinn af velli á gulu í hálfleik.
Dómarinn - 6
Átti inn á milli vafasamar ákvarðanir en komst heilt yfir ágætlega frá þessum leik. Mikill hasar í leiknum og æst stúka var ekki að gera verkefnið léttara.



