Fotbolti.net
Arnar Laufdal Arnarsson
Arnar Laufdal Arnarsson
Pepsi Max-deild karla
Extra völlurinn
Steikjandi hiti, smá vindur, sólin kemur inn á milli
Fjölnir
Fjölnir
1 - 4
Stjarnan
Stjarnan
0 - 14' Guðjón Baldvinsson Jóhann Árni Gunnarsson (víti) 45'1 - 11 - 254' Halldór Orri Björnsson 1 - 363' Þorsteinn Már Ragnarsson 1 - 480' Emil Atlason
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 1113
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Frábær seinni hálfleikur Stjörnumanna skilaði sigri

Hvað réði úrslitum?

Frammistaða Stjörnumanna í seinni hálfleik skilaði sigrinum í dag, Stjörnumenn svoleiðis gengu á lagið og völtuðu yfir Fjölnismenn í seinni og unnu seinni hálfleikinn 0-3

Bestu leikmenn

1. Þorsteinn Már Ragnarsson

Mark og stoðsending frá Þorsteini í dag, var að koma sér í mörg góð færi og var gríðarlega hættulegur úti hægra megin og Fjölnir voru í veseni með hann.

2. Guðjón Baldvinsson

Hljóp eins og vitleysingur allann leikinn og gaf Stjörnumönnum blóð á tennurnar þegar hann skoraði fyrsta mark Garðbæinga í dag og var að búa til gott spil, hættulegur í loftinu sem og í teignum

Atvikið

Þriðja mark Þorsteins gerði út um leikinn og Stjörnumenn stjórnuðu leiknum eftir það og Fjölnismenn bitu ekki mikið frá sér

Hvað þýða úrslitin?

Þau þýða einfaldlega það að Stjarnan eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvö leikina og eru efstir eins og er en Fjölnir eru með eitt stig af sex mögulegum í 10. sæti eins og er

Vondur dagur

Torfi Tímóteus átti ekki góðan leik í dag, tvö mörk Stjörnunar komu hans megin, heillt yfir áttiu öftustu þrír Fjölnis ekkert spes dag en Torfi var í basli í dag!

Dómarinn - 4

Pétur hefði mögulega getað gefið rautt spjald á Jósef þegar Fjölnir fengu víti þegar Jósef var aftasti varnarmaður, fer í bakið á Inga Kort og var ekkert að reyna við boltann, leikurinn hefði getað endað allt öðruvisi ef svo væri
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.