Fotbolti.net
Egill Sigfússon
Egill Sigfússon
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
18 stiga hiti, stuttbuxnaveður
Fylkir
Fylkir
0 - 1
Breiðablik
Breiðablik
0 - 181' Damir Muminovic
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson
Áhorfendur: 1440

SKÝRSLAN: Damir stangaði inn þrjú stig fyrir Blika

Hvað réði úrslitum?

Þessi hornspyrna hjá Oliver sem rataði beint á kollinn á Damir sem stangaði inn eina mark leiksins. Fylkismenn fengu nokkur dauðafæri en inn vildi ekki boltinn.

Bestu leikmenn

1. Damir Muminovic

Damir átti góðan leik, hélt hreinu og skoraði eina mark leiksins sem tryggði Blikum 3 dýrmæt stig.

2. Ásgeir Eyþórsson

Ásgeir átti mjög góðan leik, bjargaði oft á ögurstundu og Blikarnir komust lítið í gegnum hann.

Atvikið

Vítaspyrnan sem Fylkir hefðu átt að fá í fyrri hálfleik.
Davíð Ingvars virtist klárlega toga niður Valdimar í teignum og hefði átt að fá á sig vítaspyrnu, hefði getað komið Fylki í vænlega stöðu.

Hvað þýða úrslitin?

Blikarnir eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvær umferðinnar á meðan Fylkismenn eru án stiga.

Vondur dagur

Guðjón Pétur Lýðsson.
Guðjón sem er einn besti spyrnumaður deildarinnar átti ekki góðan dag, hann átti margar slakar hornspyrnur og aukaspyrnur sem er ólíkt honum. Komst aldrei í neinn takt við leikinn og var tekinn útaf í seinni hálfleik.

Dómarinn - 7

Dómaranir áttu heilt yfir fínan dag. Klikkuðu á vítadóm í fyrri hálfleik en markið sem þeir dæmdu af var hárrétt hendi á Höskuld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.