Fotbolti.net
Anton Freyr Jónsson
Anton Freyr Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
17 gráður og logn. Leikmenn fá ekki betra fótboltaveður
Fylkir
Fylkir
2 - 0
Grótta
Grótta
Valdimar Þór Ingimundarson (víti) 62'1 - 0Valdimar Þór Ingimundarson 72'2 - 086' Óliver Dagur Thorlacius (misnotað víti)
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Fylkismenn komnir á blað eftir hörku leik í Árbænum.

Hvað réði úrslitum?

Fylkismenn kláruðu færin sín einfaldlega betur en Gróttumenn í dag og það var það sem réði þessu í dag.

Bestu leikmenn

1. Valdimar Þór Ingimundarson (Fylkir)

Skoraði bæði mörk Fylkis í dag og gerði sérstaklega vel í öðru markinu þegar hann kemur sér inn í sendingu Gróttumanna og leikur á einn áður en hann lagði boltan skemmtilega í netið

2. Aron Snær Friðriksson (Fylkir)

Mér fannst Aron flottur í dag. Varði vítaspyrnu Ólivers í síðari hálfleik og hélt marki Fylkis hreinu í dag.

Atvikið

Helgi Valur Daníelsson brýtur á sér sköflunginn í byrjun síðari hálfleiks eftir samstuð við Sigurvin Reynisson Vonandi bindir þetta ekki enda á ferilinn hans og óska ég honum alls hins besta.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkismenn fá sín fyrstu 3 stig sumarsins en Gróttumenn þurfa að bíða aðeins lengur eftir sínum fyrstu stigum.

Vondur dagur

Sóknarleikur Gróttu - Komu sér oft í afar góðar stöður oft í leiknum og klúðra meðal annars vítaspyrnu undir lok leiks. 0 mörk í 3 leikjum hlýtur að vera áhyggjuefni fyrir Ágúst Gylfason.

Dómarinn - 5

Gerði vel í vítaspyrnu dómnum þegar hann dæmir víti á Ásgeir - Annars voru aðrar ákvarðanir ekki góðar hjá Sigga í dag
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.