Fotbolti.net
@EgillSiEgill Sigfússon
Egill Sigfússon
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
17 stiga hiti, sól og mjög léttur vindur
Breiðablik
Breiðablik
3 - 1
Fjölnir
Fjölnir
Kristinn Steindórsson 9'1 - 051' Jóhann Árni Gunnarsson (misnotað víti)Thomas Mikkelsen (víti) 57'2 - 02 - 172' Jón Gísli Ström (víti)Gísli Eyjólfsson 84'3 - 1
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson

SKÝRSLAN: Blikar með fullt hús stiga

Hvað réði úrslitum?

Breiðablik var bara betra liðið hérna í kvöld þótt að Fjölnir var inni í leiknum lengi vel. Verðskuldaður sigur en Fjölnismenn fínir.

Bestu leikmenn

1. Gísli Eyjólfsson

Gísli var virkilega sprækur í kvöld, hélt því allan leikinn, átti marga góða spretti og kóronaði það með góðu marki.

2. Viktor Karl Einarsson

Viktor Karl var besti maður vallarins í fyrri hálfleik, síógnandi upp hægri kantinn en það hægðist á honum í seinni hálfleik. Góður leikur hjá honum.

Atvikið

Vítaspyrnuvarsla Antons Ara. Fjölnir gat jafnað leikinn 1-1 þegar Jóhann Árni steig á punktinn en Anton Ari varði vítið frá honum, hefði getað orðið annar leikur hefðu Fjölnir náð að jafna.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik er á toppi deildarinnar með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir á meðan Fjölnir er með eitt stig og situr í fallsæti eftir erfiða byrjun.

Vondur dagur

Jóhann Árni Gunnarsson. Jóhann Árni komst aldrei almennilega inn í leikinn, sást lítið og þegar Fjölnir fékk víti fór hann á punktinn og tók lélega spyrnu sem Anton Ari varði.

Dómarinn - 6

Nafni minn hann Egill Arnar og hans teymi áttu allt í lagi leik. Ég er ekki viss með allar vítaspyrnunar en þær voru nokkuð réttar þó. Hann hefði hæglega getað dæmt eitt víti til viðbótar og hann var full spjaldaglaður í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.