SKÝRSLAN: Almarr hetja Valsmanna
Hvað réði úrslitum?
Gríðarleg barátta í þessum leik þar sem bæði lið lögðu allt í þetta. Það voru þó Íslandsmeistararnir í Val sem stálu sigrinum í uppbótartíma með marki frá varamanninum Almarri Ormarssyni og sendu HK tómhenta heim.
Bestu leikmenn
1. Birnir Snær Ingason
Binni bolti var virkilega flottur í liði HK og voru Valsmenn í stökustu vandræðum með að halda honum í skefjum
2. Almarr Ormarsson
kom virkilega sterkur inn í lið Valsmanna og var flottur á miðjunni eftir að hann kom inná. Var að brjóta niður sóknaraðgerðir HK og skoraði svo markið sem skilur á milli.
Atvikið
Sigurmark Valsmanna.
Boltinn berst inn í teig HK og barningur um boltann sem dettur fyrir Almarr Ormarsson fyrir utan teig sem lætur vaða og skorar sigurmark Vals í uppbótartíma.
Boltinn berst inn í teig HK og barningur um boltann sem dettur fyrir Almarr Ormarsson fyrir utan teig sem lætur vaða og skorar sigurmark Vals í uppbótartíma.
Hvað þýða úrslitin?
Valsmenn halda sér áfram í baráttunni um efstu sætin og eru jafnir á topnum með FH, KA og Víkingi R.
HK fara með súrt bragð í munni tómhentir heim.
HK fara með súrt bragð í munni tómhentir heim.
Vondur dagur
Johannes Vall átti ekkert sérstakan dag í bakverðinum hjá Val. Valgeir og Arnþór Ari voru með áætlunarferðir upp vængin og sóttu á hann.
Dómarinn - 7
Erlendur var virkilega flottur í dag. Leyfði leiknum að fljóta vel og var ekki að flauta á neinn óþarfa.



