SKÝRSLAN: Víkingabarátta í Garðabænum
Hvað réði úrslitum?
Víkingar voru betri, fengu betri færi og spiluðu leikinn betur á flestum sviðum fótboltans.
Bestu leikmenn
1. Nikolaj Hansen (Víkingur)
Niko var frábær í dag, skoraði fyrsta markið með góðri pressu en eftir mistök Halla, bjó til færi fyrir Erling og skoraði annað úr víti.
2. Kári Árnason (Víkingur)
Það koma margir til greina svosem en Kári var stórkostlegur í hafsentinum hjá Víkingum og gjörsamlega lokaði þessum leik í seinni hálfleik.
Atvikið
Mistökin hjá Halla í fyrsta markinu, rándýrt!
Markið hjá Tristan, mark tímabilsins? Af nægu að taka í þessum leik.
Markið hjá Tristan, mark tímabilsins? Af nægu að taka í þessum leik.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar eru í þægilegum málum við toppinn með 7 stig eftir 3 leiki, Stjarnan er hinsvegar í fallsæti með 1 stig!
Vondur dagur
Halli verður að taka þetta á kassann fyrir að gefa Víkingum mark í upphafi leiks, það voru dýr mistök.
Dómarinn - 9
Ívar Orri og félagar gerðu hrikalega vel í mjög erfiðum leik að dæma! Stóru dómarnir voru allir hárréttir og hafði hann flott tök á hitanum og spennustiginu sem var til staðar, toppdómari!



