SKÝRSLAN: Vesturbæjarsigur í miklum hasar í Kórnum
Hvað réði úrslitum?
Mark Kjartans Henry Finnbogasonar skildu liðin af en HK voru hrikalega óheppnir í kvöld. Aldrei hefur tiltakið "stöngin út" mögulega átt meira við en í kvöld þar sem HK áttu skot í þverslá, stöng og brenndu af víti.
KR sýndu samt mikinn karakter og sóttu stigin þrjú með marki frá fyrr nefndum Kjartan Henry eftir góðan undirbúning Stefáns Árna Geirssonar.
KR sýndu samt mikinn karakter og sóttu stigin þrjú með marki frá fyrr nefndum Kjartan Henry eftir góðan undirbúning Stefáns Árna Geirssonar.
Bestu leikmenn
1. Kjartan Henry Finnbogason
Erfiður leikur og hann er sá sem skildi liðin af. Reynsla hans vegur vafalaust þungt í svona leikjum sem hefði verið auðvelt að missa hausinn.
2. Stefán Árni Geirsson
Var ógnandi og alltaf eitthvað um að vera þegar hann fékk boltann, lagði upp mark Kjartans Henry á virkilega smekklegan hátt.
Atvikið
Vítaspyrnuklúður HK.
Vítaspyrnur HK hafa ekki verið að falla með þeim í sumar og það gæti reynst liðinu gríðarlega dýrkeypt. Hefði snúið leiknum í allt aðra átt að fá mark frá HK.
Vítaspyrnur HK hafa ekki verið að falla með þeim í sumar og það gæti reynst liðinu gríðarlega dýrkeypt. Hefði snúið leiknum í allt aðra átt að fá mark frá HK.
Hvað þýða úrslitin?
Evrópudraumur KR lifir á meðan HK misstu af frábæru tækifæri á að lyfta sér uppfyrir rauðu línuna og úr fallsæti.
Vondur dagur
Stöngin út hjá sóknarliði HK. Brenndu af víti, skot í slá og stöng. Var bara einn af þessum dögum því miður fyrir HK.
Dómarinn - 4
Átti nokkrar furðulegar ákvarðanir og fengu bæði lið að kenna svolítið á furðulegri línu í leiknum.



