Fotbolti.net
Matthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Pepsi Max-deild karla
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
2 - 1
ÍA
ÍA
0 - 16' Hákon Ingi JónssonViktor Karl Einarsson 24'1 - 183' Fannar Berg GunnólfssonÁrni Vilhjálmsson 86'2 - 188' Wout Droste
Dómari: Egill Arnar Sigurþórsson
Áhorfendur: 597

SKÝRSLAN: Þéttur varnarmúr ÍA hélt ekki út.

Hvað réði úrslitum?

Það má segja að það sé með lífsins ólíkindum að Blikar hafi ekki skorað fleiri mörk því færin fengu þeir en nýttu þau ekki. Skagamenn voru gríðarlega þéttir fyrir og gáfu fá færi á sér og virtust vera að ná að sigla einu mikilvægu stigi heim fyrir botnbaráttuna þegar Blikar fá vítaspyrnu á 83. mínútu sem Árni Vill skorar úr.

Bestu leikmenn

1. Árni Vilhjálmsson

Gríðarlega öflugur og leikinn knattspyrnumaður sem hefur gæði og baráttu til að gera út um leiki. Fékk fullt af hálffærum en nýtti svo vítaspyrnuna vel.

2. Gísli Eyjólfsson

Frábær í dag. Sólaði leikmenn ÍA oft tvo til þrjá í einu og það virtist enginn hafa roð í hann.

Atvikið

Vítadómurinn sem dæmdur er á 83. mínútu. Sá brotið ekki nægilega vel en Skagamenn voru virkilega ósáttir og fékk aðstoðarþjálfari ÍA sem var þjálfari í dag þar sem Jói Kalli var að taka út leikbann, fékk rautt spjald.

Hvað þýða úrslitin?

Blikar eru enn í bullandi toppbaráttu og eiga leik við KA til góða og geta minnkað mun Valsmanna í eitt stig.

ÍA hefði getað nálgast liðin fyrir ofan sig enn meira og gælt við það enn frekar að komast úr fallsæti, sérstaklega miðað við hvernig aðrir leikir fóru í dag.

Vondur dagur

Kannski ósanngjarnt að setja þetta á Jason Daða en hann sást varla í leiknum. Óttar Bjarni fyrirliði ÍA fær svo dæmda á sig vítaspyrnu þar sem Árni Villhjálmsson segir að hann hafi fengið putta í augað og miðað við það er það réttur dómur.

Dómarinn - 6,5

Fannst Egill dæma vel mestan hluta en hleypti þessu aðeins í ves undir lokin.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.