Fotbolti.net
Magnús Þór Jónsson
Magnús Þór Jónsson
Pepsi Max-deild karla
Würth völlurinn
Rennislétt og blautt teppi, hægur andvari sem engu mun breyta í leiknum og tíu stiga hiti. Fullkomnar fótboltaaðstæður.
Fylkir
Fylkir
0 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
0 - 19' Kristall Máni Ingason0 - 246' Kristall Máni Ingason0 - 385' Kwame Quee
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: 561

SKÝRSLAN: Víkingar keyrðu yfir Fylki í síðari hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Víkingar mættu til síðari hálfleiks en Fylkismenn einfaldlega ekki. Mark Víkinga númer tvö eftir 40 sekúndur í honum einfaldlega drap hann og í raun áttu Víkingar að skora fleiri mörk.

Bestu leikmenn

1. Kristall Máni Ingason

Verulega yfirvegaður í báðum færunum sem hann skoraði úr og fór nálægt þrennunni. Þurfti að leysa ólíkar stöður í kvöld gerði það allt vel, svo sannarlega efni hér á ferð.

2. Aron Snær Friðriksson

Hálf kjánalegt kannski að velja markmann liðs sem tapar 0-3 en ég geri það samt. Aron hélt Fylki algerlega inni í leiknum og sýndi rosalegt hugrekki sem svo varð þess valdandi að hann uppskar höfuðhögg í vörslu og var borinn af velli og síðan keyrður burt í sjúkrabíl. Hans frammistaða þýddi að Fylkir töpuðu ekki enn...og miklu...stærra en raun varð.

Atvikið

Mörg hér en kannski það sem að gæti haft mest áhrif er tækling Ásgeirs á Hansen strax í upphafi. Sá meiddist og reyndi að halda áfram en tókst það ekki.

Það getur verið rosalega stórt fyrir Víkinga ef að hann verður frá í næstu leikjum.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar eru bara í hörku titilbaráttu og fara í rosalegan leik í næstu umferð við Valsmenn.

Arnar er einfaldlega bara kominn með Víkinga á þann stað að þeir eru alvöru þátttakendur í öllum keppnum þrátt fyrir miklu lægra budget en þau lið sem keppt er við í þeim.

Fylkir hins vegar er á hinum endanum, hafa ekki unnið leik í deildinni síðan 13.júlí og þurfa að horfa niður á við. Þeir fara líka í sex stiga leik næst þegar þeir rúlla í Garðabæinn í lykilleik í fallbaráttunni.

Vondur dagur

Fylkisliðið átti ágætan dag í fyrri hálfleik en mætti ekki til leiks í þeim síðari utan Arons í markinu.

Allir þeir hinir þurfa bara að hlusta á viðtalið við Atla Svein þjálfara og vakna ef ekki á illa að fara í Árbænum.

Frammistaða eins og sást í seinni mun klárlega þýða að liðið kveður Pepsi Max deildina í haust.

Dómarinn - 8,5

Solid átta komma fimm...en vissulega væri gott að sjá VAR af marki Þórðar í fyrri hálfleik. Á vellinum dró maður það hins vegar ekki í efa.

Nicolaj Hansen var ósáttur við að Ásgeir fékk ekki spjald úr sínum viðskiptum en línan hjá teyminu fannst mér góð.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.